Stefndi, Íslenska ríkið, var sýknað af kröfum stefnenda um ógildingu á úrskurði Kærunefndar Útlendingamála, sem staðfesti ákvarðanir Útlendingastofnunar um synjun um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi af mannúðarástæðum í málum stefnenda. Var ekki fallist á málsástæður stefnenda um að borið hafi að veita þeim slíka alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi að lögum eins og á stóð eða að málsmeðferð hafi verið þannig áfátt að varðaði ógildingu.
Stefnendur kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun annars stefnandans um dvalaraleyfi og jafnframt að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála um brottvísun og endurkomubann hennar. Stefndu íslenska ríkið og Útlendingastofnun voru sýknaðir af öllum kröfum annars stefnandans vegna aðildarskorts hans að málinu og ekki var fallist á kröfur um ógildingu umræddra stjórnvaldsákvarðana í málum hins stefnandans. Til grundvallar sönnun um umdeild atvik var meðal annars lagður dómur í sakamáli þar sem stefnendur voru bæði fundin sek og dæmd til refsingar fyrir misnotkun skjals og fyrir brot gegn lögum um útlendinga.
Hafnað var kröfu stefnanda um að ógiltur yrði með dómi úrskurður Kærunefndar útlendingamála þar sem synjað var umsókn stefnanda um alþjóðlega vernd á Íslandi, ásamt því að honum var þá einnig synjað um dvalarleyfi á grunni 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og vísað frá landinu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Aleksi Koci
Ákærði var sakfelldur fyrir skjalafals og brot gegn lögum um útlendinga og gert að sæta fangelsi í 60 daga en fullnustu 30 daga er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Khatuna Danelishvili
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga, lögum um útlendinga og skjalafals. Dæmd í 90 daga fangelsi, þar af voru 60 dagar skilorðsbundnir til tveggja ára.
Ákæruvaldið (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Cristinu Tugui (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Skjalafals og brot á útlendingalögum í tengslum við atvinnu og dvöl hér á landi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Giorgi Patashuri
Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn útlendingalögum og lögum um atvinnuréttindi útlendinga fyrir að hafa dvalið og starfað í heimildarleysi á Íslandi. Var honum dæmt að sæta fangelsi í 45 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem kröfu hans um endurupptöku á synjun um alþjóðlega vernd var hafnað. Stefnandi fékk ekki úrlausn í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er um í 2. mgr. 74. gr. laga 80/2016 en 27 mánuðir liður frá umóknardegi og þar til úrskurður kærunefndar lá fyrir. Ákvörðun kærunefndar byggðist á því að skilyrði um auðkenn og uppruna hefði ekki verið uppfyllt og stefnandi hefði ekki veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Hvorki var fallist á með stefnanda að hinn umdeildi úrskurður væri efnislegar rangur né að brotið hefði verið gegn reglum um meðferð máls. Var kröfu um ógildingu því hafnað.
Kröfu stefnanda var hafnað um að ógilda úrskurð kærunefndar útlendingamála þess efni að hafna umsókn um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Hvorki var fallist á að brotið hefði verið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar né að misskilningur hefði verið eða mistök gerð við meðferð málsins.
Krafist ógildingar á úrskurði kærunefndar útlendingamála þar sem hafnað var frestun réttaráhrifa úrskurðar um að synja um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Sýkna.
Hafnað var kröfum stefnenda sem eru írakskir ríkisborgarar um að felldur yrði úr gildi úrskurður kærunefndar útlendingamála og ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja stefnendum um alþjóðlega vernd á grundvelli 37. og 40. gr. laga nr. 80/2016 og synjun um dvalarleyfi samkvæmt 74. gr. sömu laga á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (
Bryndís Ósk Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
David Chitadze (
Kristján Óskar Ásvaldsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals, brot á lögum um útlendinga og lögum atvinnuréttindi útlendinga.
Lagaskilyrði skorti fyrir dvöl stefnanda á landinu.
Íslenska ríkið sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingamála.
Íslenska ríkið sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar kærunefndar útlendingamála.
Felldur var úr gildi úrskurður dóms- og kirkjumálaráðuneytisins þar sem staðfest var ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja stefnanda um hæli og dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Stefnanda var synjað um dvalarleyfi með ákvörðun Útlendingastofnunar sem staðfest var með úrskurði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins. Fallist var á kröfu stefnanda um að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi.
Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins og á ákvörðun stefnda þar sem henni var synjað um dvalarleyfi. Stefndu voru sýknuð af kröfunni.
Stefnanda var synjað um dvalarleyfi þar sem rökstuddur grunur var um að til hjónabands hennar hefði verið stofnað í þeim tilgangi einum að afla henni dvalarleyfis hér á landi. Úrskurður dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, þar sem synjun stefnda Útlendingastofnunar var staðfest, var felldur úr gildi með dóminum
Með dóminum var felldur úr gildi úrskurður dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins 17. febrúar 2010 þar sem staðfest var ákvörðun stefndu, Útlendingastofnunar, um að synja stefnanda um dvalarleyfi.
Stefnendur kröfðust ógildingar á úrskurði dómsmálaráðherra og ákvörðun Útlendingastofnunar um afturköllun á dvalarleyfi ungrar filippseyskrar telpu. Ekki var fallist á kröfu stefnenda.
Stefnandi krafðist ógildingar ákvörðunar Útlendingastofnunar og úrskurðar dómsmálaráðherra varðandi umsókn stefnanda um hæli og dvalarleyfi. Stefndu voru sýknuð af kröfum stefnanda.
Með dóminum var felld úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar frá 19. júní 2006 um að synja umsókn stefnanda um hæli og neita honum um dvararleyfi og að honum skyldi vísað úr landi. Úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 10. janúar 2007, þar sem ákvörðun Útlendingastonunar var staðfest, var einnig felldur úr gildi. Á báðum stigum stjórnsýslunnar hafði þess ekki verið gætt að afla fullnægjandi upplýsinga um aðstæður stefnanda sjálfs í heimalandinu áður en ákvörðun var tekin. Með því var ekki farið að 10. gr. stjórnsýslulaga en samkvæmt þeirri lagagrein ber stjórnvaldi að sjá til þess að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því.
Stefnandi krafðist þess að úrskurður dómsmálaráðuneytisins frá 15. apríl 2005 um að honum skyldi vísað úr landi og bönnuð endurkoma til Íslands næstu tíu árin yrði felldur úr gildi. Stefnandi byggði kröfuna á því að ekki hefði verið staðið rétt að ákvörðun Útlendingaeftirlitsins sem staðfest var með framangreindum úrskurði og að ekki hefðu verið forsendur til að vísa stefnanda úr landi. Á það var ekki fallist og íslenska ríkið var sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðarins.