Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Blekking

Landsréttur birt 26. febrúar 2021

528/2019

Ákæruvaldið (Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari) gegn X (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Eggert Páll Ólason lögmaður, 3. prófmál) (Arnar Þór Stefánsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir nauðgun og brot gegn blygðunarsemi, með því að hafa á nánar tilgreindu tímabili sýnt af sér lostugt athæfi og sært blygðunarsemi A er hann beitti hana blekkingum og nýtti sér villu hennar um að hann væri annar maður í samskiptum þeirra á milli, í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat, í þeim tilgangi að eiga í kynferðislegum samskiptum við hana og brjóta gegn henni með nánar tilgreindum hætti. Við ákvörðun refsingar var litið til þess sérstaklega hver framganga og háttsemi X hefði verið þann langa tíma sem um ræddi og brot hans áttu sér stað. Hann hefði leikið tveim skjöldum í samskiptum sínum við A um lengri tíma. Ásetningur hans var því metinn einarður og brot hans bæði alvarleg og óvenjuleg. Þá var einnig höfð hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing X var ákveðin fangelsi í fjögur ár og honum gert að greiða A miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. desember 2019

S-1964/2019

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Omid Hussini Tabar (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Misneyting. Blekking.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 157. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi.