Landsréttur
Úrskurður miðvikudaginn 1. apríl 2026.
Mál nr. 258/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
X
(Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð
Kærumál. Gæsluvarðhald. C-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Útdráttur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Úrskurður Landsréttar
Landsréttardómararnir Ásmundur Helgason, Eyvindur G. Gunnarsson og Ragnheiður Bragadóttir kveða upp úrskurð í máli þessu.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 31. mars 2026 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. mars 2026 í málinu nr. R-[…]/2026 þar sem varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til þriðjudagsins 28. apríl 2026, klukkan 16. Kæruheimild er í l-lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
- Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
- Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi.
Niðurstaða
- Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Úrskurðarorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 31. mars 2026
Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 31. mars 2026.
Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.
Varnaraðili er X, kt. […].
Dómkröfur
Sóknaraðili, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, krefst þess að varnaraðili, X, kt. […], sæti gæsluvarðhaldi með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness, til fimmtudagsins 28. apríl 2026, kl. 16:00.
Málsatvik
Í greinargerð sóknaraðila er atvikum lýst svo: „Dagana 30. september 2025, 18. nóvember 2025 og 3. febrúar 2026 gaf lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu út ákærur á hendur varnaraðila fyrir alls 59 brot, framin á tímabilinu 24. október 2024 til 11. nóvember 2025.
Ákæra dags. 30. september 2025: Mál nr. 007-2024-[…] Varnaraðili ákærður fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 24. febrúar 2024 haft í vörslum sínum 1,68 g af kókaíni sem lögregla fann við leit á ákærða við […].
Mál nr. 007-2024-[…] Varnaraðili ákærður fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 3. júlí 2024 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (kókaín 49 ng/ml, alprazólam 33 ng/ml, brómazólam 8 ng/ml, díazepam 390 ng/ml, nordíazepam 300 ng/ml, oxazepam 530 ng/ml, temazepam 24 ng/ml og zolpidem 130 ng/ml), við […] að […] þar sem akstri lauk, en lögregla hafði afskipti af ákærða inni í íbúðinni.
Mál nr. 007-2024-[…] Varnaraðili ákærður fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 31. júlí 2024 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti, austan megin við […] þar sem akstri lauk.
Mál nr. 007-2024-[…] Varnaraðili ákærður fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 1. ágúst 2024 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (kókaín 260 ng/ml, brómazólam 220 ng/ml, díazepam 43 ng/ml og nordíazepam 130 ng/ml) vestur […] að […] móts við verslunina […] þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Mál nr. 007-2024-[…] Varnaraðili ákærður fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 13. október 2024 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti við austurinngang […] og eigi sinnt merkjagjöf lögreglu þar sem akstri lauk á bifreiðastæði, en ákærði yfirgaf vettvang.
Mál nr. 007-2024-[…] Varnaraðili ákærður fyrir eignaspjöll, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 16. október 2024 um kl. 2 valdið skemmdum á bifreiðinni […] í eigu A, kt. […], með því að stíga á vélarhlíf bifreiðarinnar á bifreiðastæði að […] með þeim afleiðingum að dældir komu í hana.
Mál nr. 007-2024-[…] Varnaraðili ákærður fyrir eignaspjöll, með því að hafa að morgni laugardagsins 16. nóvember 2024 brotið rúðu í íbúð nr. […] að […] með því að slá í hana með barefli með þeim afleiðingum að hún brotnaði.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir brot á lögreglulögum, með því að hafa að kvöldi miðvikudagsins 29. janúar 2025 að […], í íbúð á […] hæð, við handtöku eigi sinnt fyrirmælum lögreglu, en ákærði reyndi að komast burt og þurftu lögreglumenn nr. B og C, að beita úða og rafvopni til að handtaka hann.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 15. mars 2025 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (amfetamín 85 ng/ml, kókaín 500 ng/ml og alprazólam 19 ng/ml) austur […] þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 14. apríl 2025 ekið bifreiðinni […], sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (amfetamín 110 ng/ml) vestur […] þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir brot á lögreglusamþykkt fyrir Reykjavíkurborg, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 21. júní 2025 verið með óspektir á almannafæri innandyra á skemmtistaðnum […] í […] og hellt, utandyra, bjór yfir lögreglubifreiðina […].
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa að morgni sunnudagsins 24. ágúst 2025 reynt í auðgunarskyni og án heimildar að komast inn í bifreiðarnar […] og […] í bifreiðageymslu við […], en lögregla kom að honum þar sem hann stóð á milli bifreiðanna.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 18. september 2025 í verslun […] að […] stolið pakkningu af parmaskinku að verðmæti kr. 1.100,- Ákæra dags. 18. nóvember 2025: Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 3. febrúar 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru að verðmæti kr. 2.439,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 22. apríl 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru að verðmæti kr. 2.479,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 5. maí 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru að verðmæti kr. 1.685,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 6. maí 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru að verðmæti kr. 1.616,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 14. maí 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru að verðmæti kr. 1.014,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir fjársvik, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. júlí 2025 fengið D, kt. […], til að aka sér á leigubifreiðinni […] frá […] að […] án þess að greiða áfallið ökugjald að fjárhæð kr. 33.500,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir eignaspjöll, með því að hafa laugardaginn 30. ágúst 2025 við bifreiðastæði að […] valdið skemmdum á bifreiðinni […], eign E hf., kt. […], með því að sparka í hurðir bifreiðarinnar með þeim afleiðingum að dældir og rispur komu á hana.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir fjársvik, með því að hafa mánudaginn 15. september 2025 fengið F, kt. […], til að aka sér á leigubifreiðinni […] frá […] að […] án þess að greiða áfallið ökugjald að fjárhæð kr. 3.000,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 16. september 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru að verðmæti kr. 1.297,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 18. september 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru að verðmæti kr. 799.
Ákæra dags. 3. febrúar 2026:
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 26. maí 2025 í […] í […] stolið 5 bjórdósum af gerðinni Viking lite, samtals að verðmæti kr. 2.295,-
Mál nr. 007-2022-[…] Varnaraðili ákærður fyrir rán og nytjastuld, með því að hafa fimmtudaginn 20. október 2022, í félagi við einn þekktan aðila og einn óþekktan, brotist inn á heimili brotaþola, að […] með því að sparka upp hurð að íbúðinni, beitt hann ofbeldi og hótunum, en varnaraðili lamdi brotaþola allt að fimm sinnum í andlitið með krepptum hnefa með þeim afleiðingum að hann hlaut sár á hægri kinn, sprungu í vör, heilahristing og flísaðist úr tönn, hótaði honum og fjölskyldu hans lífláti og að kveikja í hundi hans, þá henti varnaraðili síma brotaþola, […], í gólfið með þeim afleiðingum að hann brotnaði, og í félagi tóku þeir […] tölvu, kveikjuláslykla af bifreið brotaþola með skráningarnúmerið […], […] úlpu, 14 karata gullhálsmen, 450– 750 gr. gullkeðju, 75 gr. gullarmband, tvö pör af eyrnalokkum með hálfs karats demöntum, 550 gr. stálkeðju, […] belti, Apple Watch […], sólgleraugu, þrjú Airpods Pro, […] skrúfubox, borbitabox, […] verkfærabox með borvél, reiðufé, […] úr, […] rakspíra, […] rakspíra, […] rakspíra og tvo […] rakspíra, skemmdu úti- og innihurð, en verðmæti framangreindra muna er allt að kr. 5.480.655, og báru þeir þýfið út og inn í bifreið brotaþola og óku á brott.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 30. september 2025 í […] í […] stolið 5 bjórdósum af gerðinni Viking lite, samtals að verðmæti kr. 2.295,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 6. október 2025 í […] í […] stolið bjórdós af gerðinni Viking lite að verðmæti kr. 459,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 16. október 2025 í […] í […] stolið áfengisflösku að verðmæti kr. 3.498,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 16. október 2025 í […] í […] stolið áfengisflösku af gerðinni Hot n‘sweet að verðmæti kr. 1.399,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 19. október 2025 í verslun […] í […] stolið sælgæti samtals að verðmæti kr. 995,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 16. október 2025 í […] í […] stolið áfengisflösku að verðmæti kr. 2.148,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 24. október 2025 í […] að […] stolið 2 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 3.548,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 24. október 2025 í […] að […] stolið 2 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 3.548,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 25. október 2025 í […] að […] stolið 2 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 3.548,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 25. október 2025 í […] að […] stolið 2 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 3.548,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 29. október 2025 í […] að […] stolið 2 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 3.548,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 29. október 2025 í […] að […] stolið flösku af gerðinni Hot n‘sweet að verðmæti kr. 1.399,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar, með því að hafa miðvikudaginn 29. október 2025 í […] að […] stungið flösku inn á sig, en eftir að öryggisvörður hafði afskipti af honum hafi kærði framvísað flöskunni en verðmæti flöskunnar var kr. 1.399,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 30. október 2025 í […] í […] stolið 2 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 3.548,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 31. október 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru samtals að verðmæti kr. 1.467,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 31. október 2025 í verslun […] í […] stolið matvöru samtals að verðmæti kr. 1.467,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 1. nóvember 2025 í […] að […] stolið 4 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 11.684,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 1. nóvember 2025 í […] í […] stolið 2 áfengisflöskum, Opal mix pela og Koskenkova pela, samtals að verðmæti kr. 5.448,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 1. nóvember 2025 í […] að […] stolið 3 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 4.586,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir brot á lögreglulögum, með því að hafa laugardaginn 1. nóvember 2025 utandyra við bifreiðastæði við […] að […], við afskipti lögreglu eigi sinnt fyrirmælum lögreglu, en ákærði hafði verið að reyna að komast inn í bifreiðar á stæðinu og í framhaldinu rifið sig lausan við handtökuna og reynt að hlaupa í burtu í átt að […] en lögreglumaður G togaði í hendi ákærða til að stöðva för hans, með þeim afleiðingum að þeir féllu báðir niður bratta á bifreiðastæði og lenti lögreglumaðurinn á hægra framhorni bifreiðarinnar […], með þeim afleiðingum að bifreiðin skemmdist.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 3. nóvember 2025 í […] að […] stolið pela af gerðinni Koskenkorva vodka að verðmæti kr. 2.149,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 5. nóvember 2025 í […] að […] stolið 4 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 4.586,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 5. nóvember 2025 í […] að […] stolið 2 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 4.698,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 5. nóvember 2025 í […] að […] stolið pela af vodka og bjórdós samtals að verðmæti kr. 2.518,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 6. nóvember 2025 í […] að […] stolið flösku af gerðinni Hot n‘sweet að verðmæti kr. 1.399,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 6. nóvember 2025 í […] að […] stolið flösku af Hot n‘sweet að verðmæti kr. 1.399,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa laugardaginn 7. nóvember 2025 í […] að […] stolið 3 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 3.317,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa föstudaginn 8. nóvember 2025 í […] að […] stolið flösku af gerðinni Hot n‘sweet að verðmæti kr. 1.399,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 10. nóvember 2025 í […] að […] stolið 3 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 4.067,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 10. nóvember 2025 í […] að […] stolið 4 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 4.586,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 10. nóvember 2025 í […] að […] stolið 3 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 4.067,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 11. nóvember 2025 í […] að […] stolið 4 áfengisflöskum samtals að verðmæti kr. 4.586,-
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili ákærður fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 11. nóvember 2025 í […] að […] stolið pela af vodka af gerðinni Koskenkorva að verðmæti kr. 2.668,- Hjá lögreglu eru nú þegar til meðferðar 18 mál frá tímabilinu 29. janúar 2025 til dagsins í dag, þar sem varnaraðili er undir rökstuddum grun um brot gegn almennum hegningarlögum. Þau mál sem til meðferðar eru hjá lögreglu er eftirfarandi:
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um brot gegn valdstjórninni með því að hafa þann 29. janúar 2025, við […], lokað útidyrahurð á fót lögreglumanns sem var við skyldustörf. Brotið telst varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2025-[…] Varnaraðili undir rökstuddum grun um eignaspjöll með því að hafa miðvikudaginn 29. október 2025 brotið póstkassa á heimili fyrrum sambýliskonu sinnar. Brotið telst varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Varnaraðili hefur játað sök.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili undir rökstuddum grun um húsbrot og hótanir, með því að hafa laugardaginn 14. febrúar 2026, brotist inn á heimili móður sinnar að […] og hótað henni lífláti. Brotið telst varða við 1. mgr. 231. gr. og 1. mgr. 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Varnaraðili hefur neitað sök.
Mál nr. 007-2026-[…] Við fluttning á varnaraðila á lögeglustöðina við […] hótaði hann lögreglumanni H ítrekað lífláti og að hann myndi nauðga barni hans. Varnaraðili sagðist einnig hafa óþarflega mikil löngun til þess að sparka í andlitið á honum. Brotið telst varða við 1. mgr. 106 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 19. febrúar 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að verðmæti 3.307 krónur. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 21. febrúar 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að verðmæti 2.538 krónur. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 25. febrúar 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að verðmæti 2.538 krónur. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um líkamsárás, með því að hafa veist með ofbeldi að I, og rifið hann niður í jörðina með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka á hönd. Töluverðar líkur eru taldar á því að hönd brotaþola hafi brotnað, en á ljósmyndum sést hvernig höndin afmyndaðist við árásina. Brotið telst varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en ef ekki er um brot að ræða varðar brotið við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 11. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að verðmæti 2.538 krónur. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 14. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að verðmæti 4.598 krónur. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 18. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að óþekktu verðmæti. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 18. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að óþekktu verðmæti. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 18. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að óþekktu verðmæti. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 19. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að verðmæti 5.136 krónur. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 19. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að óþekktu verðmæti. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 20. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að óþekktu verðmæti. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um þjófnað með því að hafa þann 23. mars 2026, farið inn í […] að […] og stolið áfengi að óþekktu verðmæti. Lögreglumenn hafa endurþekkt varnaraðila á myndum úr öryggismyndavélum. Brotið telst varða við 1. mgr. 244 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Mál nr. 007-2026-[…] Varnaraðili er undir rökstuddum grun um sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa þann 30. mars 2026, að […], veist með ofbeldi að J, og kastað henni til og tekið hana hálstaki. Brotið telst varða við 2. mgr. 218 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Varnaraðili hefur neitað sök.“
Lagarök
Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig: „Lögreglustjóri byggir kröfu sína á c. lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Varnaraðili hefur verið nær óslitið í afbrotum frá 29. janúar 2025 til 30. mars 2026 þegar hann var handtekinn í þágu rannsóknar máls nr. 007-2026-[…]. Varnaraðili er að mati lögreglustjóra undir rökstuddum grun um brot gegn 106. gr., 217. gr., 2. mgr. 218. gr., 244. gr., 248. gr., 257 gr., 252. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en um er að ræða háttsemi sem fangelsisrefsing liggur við.
Miðað við brotaferil varnaraðila á undanförnum vikum og mánuðum er það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að varnaraðili muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna og er nauðsynlegt að ljúka þeim málum sem eru til meðferðar hjá ákæruvaldi og lögreglu sem fyrst. Er það jafnframt mat lögreglustjóra að varnaraðili muni hljóta óskilorðsbundna fangelsisrefsingu fái hann dóm fyrir þau mál sem hann á eftir ólokið en um það vísast til fjölda þeirra brota sem hann er undir rökstuddum grun um að hafa framið, alvarleika þeirra, sem og sakaferils hans. Það er jafnframt mat lögreglustjóra, með vísan til þeirra brota sem getið er um í kröfu þessari, að varnaraðili hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum höfðu verið sett með hinum skilorðsbundna dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli S-[…]/2023, en þann […] 2023 hlaut varnaraðili tveggja ára fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára.
Með vísan til framangreinds, framlagðra gagna og c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga 88/2008 um meðferð sakamála er þess krafist að krafan nái fram að ganga.“
Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 er það skilyrði þess að sakborningur verði úrskurðaður í gæsluvarðhald að fram sé kominn rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Því til viðbótar þarf minnst eitt þeirra skilyrða sem tilgreind eru í stafliðum málsgreinarinnar að vera uppfyllt. Líkt og að framan greinir er krafa sóknaraðila reist á c-lið 1. mgr. 95. gr. Samkvæmt c-lið er heimilt að gera sakborningi að sæta gæsluvarðhaldi ef ætla má að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið eða rökstuddur grunur leikur á að hann hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafa verið sett í skilorðsbundnum dómi.
Samkvæmt því sem fram er komið í málinu hefur lögregla til rannsóknar meintan brotaferil varnaraðila í um það bil heilt ár, allt til 30. mars 2026, þegar varnaraðili var handtekinn í þágu rannsóknar máls nr. 007- 2026-[…].
Háttsemi varnaraðila kann að varða við ákvæði 106. gr., 217. gr., 2. mgr. 218. gr., 244. gr., 248. gr., 257 gr., 252. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og ákvæði í umferðarlögum nr. 77/2019 og lögreglulögum nr. 90/1996.
Samkvæmt framansögðu og fyrirliggjandi rannsóknargögnum málsins er sýnt, í ljósi fjölda meintra brota, alvarleika þeirra og sakarferils varnaraðila, að varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við.
Fallist er á með sóknaraðila að í ljósi meints brotaferils varnaraðila á undanförnum vikum og mánuðum megi ætla að varnaraðili muni halda áfram brotum meðan málum hans er ólokið, fari hann frjáls ferða sinna.
Jafnframt er fallist á með sóknaraðila, með vísan til meintra brota varnaraðila, að varnaraðili hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum voru sett í dómi Héraðsdóms Reykjaness […] 2023 í máli S- […]/2023, þar sem hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára.
Að framangreindu virtu og með vísan rannsóknargagna málsins þykir fullnægt skilyrðum c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, til þess að taka kröfu sóknaraðila til greina eins og nánar greinir í úrskurðarorði. Eins og atvikum málsins er háttað standa ekki rök til þess að marka gæsluvarðhaldinu skemmri tíma.
Jónas Þór Guðmundsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð
Varnaraðili, X, kt. […], skal sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til þriðjudagsins 28. apríl 2026, kl. 16:00.