Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 287/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari)

gegn

X

(Snorri Sturluson lögmaður)

Kærumál. Gæsluvarðhald. C-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Úrskurður Landsréttar

Landsréttardómararnir Ásmundur Helgason, Eyvindur G. Gunnarsson og Símon Sigvaldason kveða upp úrskurð í máli þessu.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 12. apríl 2026 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. apríl 2026 í málinu nr. R-[…]/2026 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 6. maí 2026, klukkan 16. Kæruheimild er í l-lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
  2. Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
  3. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi en til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími.

Niðurstaða

  1. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

Úrskurðarorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur 9. apríl 2026

Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 9. apríl 2026.

Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu. Varnaraðili er X, kt. […].

Dómkröfur

Þess er krafist að X, kt. […], sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, til miðvikudagsins 6. maí 2026, kl. 16:00.

Málsatvik

Í greinargerð sóknaraðila er atvikum lýst svo: Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar ætlaða tilraun til manndráps eða eftir atvikum sérstaklega hættulega líkamsárás. Þann 5. mars sl. var óskað eftir aðstoðar lögreglu þar sem aðili var með áverka á höfði í kjölfar líkamsárásar. Þegar lögregla kom á vettvang voru sjúkraflutningamenn að ræða við brotaþola, A, kt. […]. Brotaþoli var blóðugur og með nokkra skurði á höfði. Tekin var vettvangsskýrsla af brotaþola og greindi hann frá því að varnaraðili, X, kt. […] og Y, kt. […] hefðu lamið hann í höfuðið með öxi. Brotaþoli kvað þá hafa sparkað upp útidyrahurðinni og ruðst inn í íbúð hans, þar sem hann hafi verið ásamt kærustu sinni. Einnig greindi hann frá því að þeir hefðu báðir ráðist að honum og veitt honum högg í höfuðið með öxi. Kom jafnframt fram að X hefði verið með hníf meðferðis.

Í kjölfarið fór lögregla að heimili Y að […] í Reykjavík. Varnaraðili og Y voru staddir í stigagangi húsnæðisins á leið frá kjallaranum og voru þeir handteknir í þágu rannsóknar málsins. Aðspurðir kváðust þeir hafa verið að slaka á í sameigninni, en hvorugur þeirra var í skóm við afskipti lögreglu. Við leit lögreglu í byggingunni komu fram tveir aðilar úr íbúð […]. Lögreglumenn þekktu aðilana en hvorugur þeirra var skráður húsráðandi að íbúðinni og voru þeir handteknir sökum þess. Við leit í íbúðinni mátti sjá að verið var að þrífa fatnað í þvottavélinni, en klukkan var langt gengin í 03:00 að nóttu til. Lögregla lagði í kjölfarið hald á fatnaðinn. Einnig hefur lögregla lagt hald á tvo bakpoka en brotaþoli greindi frá því að varnaraðili hefði sett öxina í bakpoka þegar þeir yfirgáfu vettvanginn.

Tekin var skýrsla af varnaraðila þann 5. mars 2026 og neitaði hann að tjá sig.

Fyrir liggur sjúkraskrá brotaþola í kjölfar þess að hann var fluttur til aðhlynningar á bráðamóttöku Landspítalans. Fram kemur að hann hafi verið með fjóra skurði á höfði sem sauma þurfti. Þá kemur fram að hann hafi verið með djúpan skurð á gagnauga. Einnig kemur fram að hann hafi verið með lítið yfirborðsbrot á höfði.

Tekin var skýrsla af B þann 5. mars 2026. Hann kvaðst hafa fengið boð í partý að […], en hann hafi verið þar frá því á miðvikudaginn síðastliðinn. Hann kvaðst hafa verið í íbúðinni ásamt X og Y. Aðspurður kvaðst hann ekki muna hvernig þeir hafi verið klæddir. B greindi frá því að X og Y hefðu farið eitthvert út úr íbúðinni um nóttina en gat ekki sagt til um hvenær eða hvert þeir hefðu farið. Þá kvaðst hann ekki vita hvaða föt hefðu verið í þvottavélinni.

Tekin var skýrsla af C þann 5. mars 2026. Hún kvaðst hafa heyrt þegar útidyrahurðinni var sparkað upp og læti á leiðinni upp. Hún hafi síðan heyrt að hurðinni að íbúð þeirra hafi verið sparkað upp og í kjölfarið hafi hurðin að herbergi þeirra verið tætt með vopnum. Hún kvaðst hafa séð tvo grímuklædda aðila og var annar þeirra vopnaður öxi og hinn hnífi. Hún greindi frá því að aðilarnir hefðu ráðist á brotaþola. Hún kvaðst þekkja aðilana og lýsti þeim nánar í skýrslutökunni. Hún kvað annan aðilann hafa notað öxina og hinn hafi verið ,,slice-a“ með hnífnum. Hún hafi haldið að það væri verið að drepa brotaþola.

Auk framangreinds máls er til meðferðar fjöldi mála hjá lögreglu og dómstólum landsins þar sem varnaraðili er ýmist undir rökstuddum grun um brot sem varðar fangelsisrefsingu eða dæmdur fyrir brot gegn ákvæðum sem varðar allt að 16 ára fangelsi.

Þann 3. febrúar 2026 lauk varnaraðili afplánun 2 ára fangelsisrefsingar sem hann hlaut með dómi héraðsdóms Reykjavíkur frá […] 2023. Frá þeim tíma hefur varnaraðili í tvígang verið handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald og einangrun á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og b. liðar 1. mgr. 99. gr. sömu laga. Annars vegar með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í máli R-[…]/2026, sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar í máli nr. 131/2026 og hins vegar með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í máli. R-[…]/2026.

Um er að ræða framangreint mál lögreglu nr. 007-2026-[…] og mál lögreglu nr. 007-2026-[…]. Í hinu síðarnefnda er varnaraðili undir rökstuddum grun um sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa að kvöldi laugardagsins 7. febrúar 2026 veist með hnífi að D erlendum ferðamanni og stungið hann í bakið, með þeim afleiðingum að brotaþoli hlaut 3 cm stunguáverka á baki. Á meðal gagna málsins er myndbandsupptaka þar sem varnaraðili sést leggja til brotaþola með hnífnum og er málið í rannsókn.

Auk þessa að þá var varnaraðili dæmdur til 12 mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. og 252. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli S-[…]/2025 sem féll þann […] 2026.

Þá liggur fyrir að aðalmeðferð í máli S-[…]/2025 er fyrirhuguð dagana 9. og 10. apríl nk. Um er að ræða þrjár ákærur í samtals 10 liðum þar sem varnaraðila er gefið að sök líkamsárásir, fíkniefnalagabrot, hótanir, rán og brot gegn valdstjórninni.

Varnaraðila var gert að sæta gæsluvarðhaldi og einangrun þann 5. mars 2026 með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í máli R-[…]/2026. Varnaraðila var síðan gert að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi þann 12. mars 2026 á grundvelli a- og c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í máli R-[…]/2026, sem staðfestur var með úrskurði Landsréttar í máli 206/2026.

Lagarök

Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig: Lögreglustjóri byggir kröfu sína á c. lið 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Varnaraðili hefur verið nær óslitið í afbrotum frá árinu 2021 og hefur hann hlotið fjóra refsidóma frá árinu 2022, m.a. fyrir ítrekaðar líkamsárásir. Nú síðast hlaut varnaraðili 12 mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu með dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli S- […]/2025 sem féll þann […] 2026. Ekkert lát hefur verið á háttsemi hans þrátt fyrir að varnaraðili hafi setið í fangelsi, en fyrirhuguð er aðalmeðferð dagana 9. og 10. apríl nk. í máli S-[…]/2025 þar sem varnaraðili er ákærður fyrir líkamsárásir með því að hafa veist með ofbeldi að samfanga sínum og fangavörðum í fangelsinu að Litla-Hrauni. Þá liggur fyrir að varnaraðili lauk afplánun þann 3. febrúar 2026 og hefur hann í tvígang frá þeim tíma komist í kast við lögin og er hann nú undir rökstuddum grun um brot sem fangelsisrefsing liggur við. Miðað við brotaferil varnaraðila á undanförnum vikum og mánuðum er það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að varnaraðili muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna og er nauðsynlegt að ljúka þeim málum sem eru til meðferðar hjá dómstólum. Ljóst er að varnaraðili hefur nú þegar hlotið óskilorðsbundinn dóm, sbr. mál S-[…]/2025 og hefur varnaraðili haldið áfram brotastarfsemi á meðan áfrýjunarfrestur samkvæmt 199. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 stendur yfir, en dómurinn er ekki fullnæstuhæfur. Liggur því fyrir að varnaraðili mun ekki hefja afplánun á næstunni og má því ætla að hann muni halda áfram brotastarfsemi sinni verði hann frjáls ferða sinna enda hefur hann sýnt það í verki. Auk þess þykir ljóst að varnaraðili muni hljóta óskilorðsbundinn dóm í máli S-[…]/2025 verði hann fundinn sekur um þau brot sem honum er gefin að sök, með vísan til alvarleika þeirra og sakferils varnaraðila. Þannig telur lögreglustjóri nauðsynlegt að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi svo færi gefist að ljúka þeim málum sem til meðferðar eru hjá dómstólum, enda sé ljóst að vægari úrræði dugi ekki til að ná þeim markmiðum sem að er stefnt, en ljóst er að Landsréttur hefur nú þegar slegið því föstu að uppfyllt séu skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Með vísan til framangreinds og framlagðra gagna krefst lögreglustjóri þess að framangreind krafa verði tekin til greina eins og hún er fram sett. Um heimild til gæsluvarðhalds er vísað til c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Niðurstaða

Eins og rakið er að framan þá er varnaraðili undir rökstuddum grun um aðild að sérstaklega hættulegri líkamsárás sem er rannsökuð sem brot á 211. gr., sbr. 20. gr. eða eftir atvikum 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Sannist sök getur brot varnaraðila varðað allt að 16 ára fangelsi.

Krafa um gæsluvarðhald byggir á c-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Byggir lögregla á að fyrir liggi rökstuddur grunur um aðild varnaraðila að umræddu broti.

Varnaraðili neitar sök og mótmælir kröfunni.

Samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður sakborningur því aðeins úrskurðaður í gæsluvarðhald að fram sé kominn rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við, enda hafi hann náð 15 ára aldri. Auk þess verður að vera fyrir hendi eitthvert þeirra sérstöku skilyrða sem talin eru upp í stafliðum a til d í ákvæðinu.

Dómurinn fellst á með sóknaraðila að fyrir liggi rökstuddur grunur hvað varðar aðild varnaraðila að umræddu broti sem kunni að varða við 211. gr., sbr. 20. gr. eða eftir atvikum 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Brot á þessum ákvæðum varða fangelsisrefsingu ef sök sannast, og eru því uppfyllt almenn skilyrði samkvæmt 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

Þá verður fallist á að uppfyllt séu skilyrði c. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, enda hefur varnaraðili verið nær óslitið í afbrotum frá árinu 2021 og hlotið fjóra refsidóma frá árinu 2022, m.a. fyrir ítrekaðar líkamsárásir, síðast með dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli S-[…]/2025 sem féll þann […] 2026. Þá hófst aðalmeðferð í dag 9. apríl í máli nr. S-[…]/2025 þar sem varnaraðili er ákærður fyrir líkamsárásir gagnvart samfanga og fangavörðum í fangelsinu að Litla-Hrauni.

Frá því að varnaraðili lauk afplánun 3. febrúar 2026 hefur hann í tvígang komist í kast við lögin og er nú undir rökstuddum grun um brot sem fangelsisrefsing liggur við. Miðað við brotaferil varnaraðila og háttsemi hans á undanförnum vikum verður að telja að yfirgnæfandi líkur séu á því að varnaraðili muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna á meðan málum hans sem eru til meðferðar hjá dómstólum er ólokið. Varnaraðili hefur nú þegar hlotið óskilorðsbundinn dóm, sbr. mál S-[…]/2025 og hefur jafnframt haldið áfram brotastarfsemi á meðan áfrýjunarfrestur samkvæmt 199. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 stendur yfir. Liggur því fyrir að varnaraðili mun ekki hefja afplánun á næstunni og má því ætla að hann muni halda áfram brotastarfsemi sinni verði hann frjáls ferða sinna enda hefur hann sýnt það í verki. Auk þess þykir ljóst að varnaraðili muni hljóta óskilorðsbundinn dóm í máli S-[…]/2025 verði hann fundinn sekur um þau brot sem honum er gefin að sök, með vísan til alvarleika þeirra og sakferils varnaraðila en fyrir liggur að varnaraðili játaði sök í nokkrum ákæruatriðum við upphaf aðalmeðferðar í morgun.

Með úrskurði Landsréttar frá 17. mars sl. nr. 206/2026 var staðfestur úrskurður héraðsdóms nr. R-[…]/2026 um að skilyrði c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 væru uppfyllt. Verður ekki séð að neitt hafi komið fram sem breyti þeirri niðurstöðu.

Að öllu framangreindu virtu og með hliðsjón af rannsóknargögnum málsins er fallist á kröfu sóknaraðila um að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi eins og greinir í úrskurðarorði. Ekki er ástæða til að marka tímalengd gæsluvarðhaldsins skemmri tíma en krafist er.

Helgi Sigurðsson héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.

Úrskurðarorð

Varnaraðili, X, kt. […], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til miðvikudagsins 6. maí 2026, kl. 16:00.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 20. gr.22. gr.211. gr.2. mgr. 218. gr.252. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 95. gr.1. mgr. 99. gr.1. mgr. 192. gr.199. gr.