Landsréttur
Úrskurður þriðjudaginn 19. maí 2026.
Mál nr. 405/2026:
Ákæruvaldið
(Rannveig Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
X
(Snorri Sturluson lögmaður)
Lykilorð
Kærumál. Gæsluvarðhald. B-liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Útdráttur
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Úrskurður Landsréttar
Landsréttardómararnir Ásgerður Ragnarsdóttir, Eiríkur Jónsson og Jón Höskuldsson kveða upp úrskurð í máli þessu.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Varnaraðili skaut málinu til Landsréttar með kæru 18. maí 2026 sem barst réttinum ásamt kærumálsgögnum sama dag. Kærður er úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 15. maí 2026 í málinu nr. R-[…]/2026 þar sem varnaraðila var gert að sæta áfram gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 5. júní 2026, klukkan 16. Kæruheimild er í l-lið 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
- Sóknaraðili krefst staðfestingar hins kærða úrskurðar.
- Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi, til vara að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími en að því frágengnu að honum verði gert að sæta farbanni.
Niðurstaða
- Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.
Úrskurðarorð:
Hinn kærði úrskurður er staðfestur.
Úrskurður Héraðsdóms Reykjaness 15. maí 2026
Mál þetta var þingfest og tekið til úrskurðar 15. maí 2026.
Sóknaraðili er Lögreglustjórinn á Suðurnesjum. Varnaraðili er X, kt. […].
Dómkröfur
Þess er krafist að X, kt. […], sæti áframhaldandi gæsluvarðhaldi með úrskurði Héraðsdóms Reykjaness, til föstudagsins 5. júní 2026, kl. 16:00.
Málsatvik
Í greinargerð sóknaraðila er atvikum lýst svo:
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur haft til rannsóknar alvarlega líkamsárás, heimilisofbeldi, þ.e. ítrekuð stórfelld brot í nánu sambandi, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, íkveikju, hótanir, auk ofbeldis og hótana gegn opinberum starfsmönnum, brota gegn lögreglulögum og fíkniefnalagabrot Þann 6. febrúar 2024 barst lögreglu tilkynning um eld að íbúð að […], íbúð […], en um íbúð á vegum A er að ræða sem B, eiginkona varnaraðila og brotaþoli, hafði til umráða. Er varnaraðili grunaður í málinu en fyrr sama dag hafði lögregla vísað honum á brott eftir að hafa unnið skemmdir á íbúðinni og innanstokksmunum. (Mál lögreglu nr. 007-2024-[…] og 007-2024-[…]).
Þann 13. apríl 2024 barst lögreglu tilkynning frá leigubílstjóra þar sem brotaþoli var stödd allslaus í leigubíl. Kvað hún varnaraðila hafa tekið af henni veski og lykla og slegið hana í andlitið. Málið er í rannsókn (Mál lögreglu nr. 007-2024-[…]).
Þann 11. desember 2025 hafði brotaþoli samband við lögreglu og óskaði eftir aðstoð þar sem hún kvað varnaraðila hafa hótað sér lífláti. Lýsti hún því einnig að hann hefði sparkað fast í mjóbak hennar. Var varnaraðili handtekinn. (Mál lögreglu nr. 008-2025-[…]) Á lögreglustöð hótaði hann að drepa lögreglumann. (Mál lögreglu nr. 008-2025-[…]).
Þann 13. desember 2025 barst lögreglu tilkynning um heimilisofbeldi að […]. Er lögregla kom á vettvang neitaði varnaraðili að opna fyrir lögreglu og fór fyrir brotaþola þegar hún gerði tilraun til að nálgast lögreglu. Þurfti lögregla að endingu að sparka niður hurðinni til að handtaka varnaraðila en á meðan á þessu stóð kveikti varnaraðili í vegabréfi sínu. (Mál lögreglu nr. 008-2025-[…]) Í skýrslutöku sem tekin var af brotaþola þann 15. desember 2025 lýsti hún langvarandi ofbeldi af hálfu varnaraðila, bæði andlegu og líkamlegu. Kvaðst hún vera hrædd við varnaraðila og óskaði eftir nálgunarbanni.
Þann 16. desember 2025 tók lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um brottvísun varnaraðila, af heimili sínu og til að sæta nálgunarbanni gagnvart brotaþola. Er gildistími ákvörðunarinnar til 13. janúar nk. Ákvörðunin var staðfest með úrskurði héraðsdóms Reykjaness þann 19. desember 2025 í máli nr. R- […]/2025. Nálgunarbann kærða var framlengt og gildir nú til mánudagsins 9. janúar 2026 kl. 16. Fyrirhugað er að framlengja nálgunarbann kærða enn frekar þann 9. janúar 2026.
Þann 4 .janúar 2026 kl. 1:22 barst tilkynning frá fjarskiptamiðstöð þar sem leigubílstjóri tilkynnti að hann hafi verið að aka pari, maðurinn hefði hent konunni út úr bifreiðinni og beitt hana ítrekuðu og alvarlegu ofbeldi. Kom lögregla á vettvang og sat brotaþoli þá í grasinu og varnaraðili stóð yfir henni. Var varnaraðili handtekinn og færður í klefa á lögreglustöðinni við […] þar sem hann var vistaður. Var brotaþoli með sjáanlega áverka víðs vegar á höfði og í andliti eftir ætluð ítrekuð spörk varnaraðila í höfuð hennar. Sótti brotaþoli aðhlynningu á heilbrigðisstofnun C.
Skýrsla hefur verið tekin af vitni, leigubílstjóranum, í málinu sem ber um að hafa orðið vitni af árás varnaraðila á brotaþola þar sem hann hafi m.a. ítrekað sparkað í brotaþola, víðsvegar um líkamann og þar á meðal í höfuð hennar, þar sem hún lá í jörðunni.
Klukkan 01:52 þann 04. janúar 2026 er lögreglumenn voru að undirbúa sig að fara aftur inn í fangaklefa til varnaraðila til þess að klára öryggisleit á honum í kjölfar handtöku, mátti heyra varnaraðila öskra "I will kill this wife. I will fire this whore".
Í skýrslutöku yfir varnaraðila neitaði hann sök varðandi atvik þann 4. janúar en kvaðst hafa dvalið hjá brotaþola í 14 daga þar á undan þó hann væri meðvitaður um að nálgunarbann væri í gildi. Kvað hann brotaþola hafa hlotið þá áverka sem hún hlaut við það að falla út úr leigubílnum á ferð.
Varnaraðili hefur sætt gæsluvarðhaldi vegna framangreindra mála frá 4. janúar 2026.
Brotaþoli kveðst vera mjög hrædd við varnaraðila og telur hún líf sitt vera í hættu því hann muni enda með því að drepa hana. Brotaþoli er af lögreglu metin í mjög viðkvæmri stöðu. […].
Að kvöldi 12. janúar 2026 var lögreglu tilkynnt um að varnaraðili hefði í sex skipti hringt í brotaþola úr fangelsinu á Hólmsheiði, þrátt fyrir gildandi nálgunarbann. Brotaþoli hafi í eitt skipti svarað og þá hafi varnaraðili talað í símann. Rannsókn máls þessa er hefur leitt í ljós að kærði hringdi alls 12 símtöl í brotaþola dagana 12. – 13. janúar 2026 (mál 008-2026-[…]).
Vísast að öðru leyti til fyrirliggjandi rannsóknargagna.
Lagarök
Í greinargerð er krafa sóknaraðila rökstudd þannig:
Rannsókn mála nr. 008-2025-[…], 008-2025-[…], 008-2026-[…] og 008-2026-[…] er nú lokið og ákæra verið gefin út á hendur varnaraðila.
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru er varðar tvö brot gegn opinberum starfsmönnum.
Þá hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefið út ákæru er varðar eitt brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni.
Allar þrjár ákærurnar voru sameinaðar fyrir dómi og fór aðalmeðferð fram í héraðsdómi Reykjaness dagana 23., 26. og 27. mars sl. . Var málið í kjölfarið tekið til dóms og hefur verið boðað til dómsuppsögu þann 15.03.2026.
Í ljósi alls framangreinds og gagna málsins telur lögregla varnaraðila vera undir rökstuddum grun um sérstaklega hættulega líkamsárás, ásamt öðrum brotum s.s. síendurteknum og alvarlegum, þ.e. stórfelldum, brotum í nánu sambandi, brota gegn nálgunarbanni, hótana o.fl. Varnaraðili er erlendur ríkisborgari. Sótti hann um alþjóðlega vernd hér á landi í febrúar 2023 en var synjað um vernd með endanlegri ákvörðun kærunefndar útlendingamála í mars 2024. Fór hann til heimalands síns um mánuði síðar og dvaldi þar um nokkurn tíma. Giftist hann brotaþola þar og sneri aftur til Íslands í september sl. þar sem hann fékk dvalarleyfi hér á landi á grundvelli hjónabands þeirra. Er því ljóst að hann hefur sterk tengsl við heimalands sitt, […], og telur varnaraðili mikla hættu á að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar gangi hann laus á meðan mál hans eru til meðferðar hjá lögreglu, ákæruvaldi og dómstólum. Af þessum sökum telur sóknaraðili að skilyrðum b. liðar 1. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála, sé fullnægt í málinu.
Sóknaraðili ítrekar og leggur áherslu á að mikilvægt er að varnaraðili sæti gæsluvarðhaldi allt þar til endanlegur dómur liggur fyrir í máli hans. Héraðsdómur og Landsréttur hafa á fyrri stigum ítrekað staðfest gæsluvarðhald varnaraðila á þessum grundvelli og vísast til fyrirliggjandi úrskurða þeirra í málinu.
Með vísan til alls framangreinds, b. liðar 1. mgr. 95. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940, einkum ákvæða 2. mgr. 218. gr., 218. gr. b., 1. mgr. 232. gr., 233. gr., auk 106. gr., 164. gr. og 169. gr. sömu laga, sem og 19. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, telur sóknaraðili brýna hagsmuni standa til þess að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi allt til föstudagsins 5. júní 2026, kl. 16:00.
Niðurstaða
Lögregla hefur haft til rannsóknar fjölda meintra brota varnaraðila á almennum hegningarlögum og sérrefsilögum. Þrjár ákærur á hendur honum voru sameinaðar fyrir dómi í máli nr. S-[…]/2026. Kveðinn var upp dómur yfir varnaraðila […] og hann dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Með vísan til þess þykir ljóst að varnaraðili er undir rökstuddum grun um að hafa gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við, sbr. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sem og að skilyrði 1. mgr. 97. gr. sömu laga séu einnig fyrir hendi.
Varnaraðili er erlendur ríkisborgari og verður að telja, í ljósi forsögu hans og veru hér á landi, að hætta sé á því að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar verði hann frjáls ferða sinna á meðan mál hans eru til meðferðar hjá lögreglu, ákæruvaldi og dómstólum, sbr. b. liður 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.
Að framangreindu virtu og með vísan til annars þess sem rakið er í beiðni sóknaraðila, þykir fullnægt skilyrðum þess að varnaraðila verði gert að sæta gæsluvarðhaldi eins og nánar greinir í úrskurðarorði. en ekki þykja rök til að því verði markaður skemmri tími eða beita vægari úrræðum.
María Thejll héraðsdómari kveður upp úrskurð þennan.
Úrskurðarorð
Varnaraðili, X, kt. […], skal sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til föstudagsins 5. júní 2026, kl. 16:00.