Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 21. apríl 2026.
Mál nr. S-42/2026:
Ákæruvaldið
(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Lin Wenliang
(enginn)
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir skjalafals.
Dómur
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 15. apríl 2026, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 5. janúar 2026 á hendur ákærða, Lin Wenliang, fæddum […] er 1982 ríkisborgara […], með ókunnan dvalarstað, fyrir skjalafals og misnotkun skjals með því að hafa sunnudaginn 24. ágúst 2025, í brottfararsal í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, framvísað í blekkingarskyni, sem sínu vegabréfi, við lögreglu og landamæravörð vegabréfi frá […] nr. […] á nafni A, fd. […], með gildistíma frá 17.03.2025 til 17.03.2035, með grunnfölsuðum komustimpli dags. 13.07.2025 merktum flugvellinum í Varsjá í Póllandi. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 155. og 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærði mætti ekki við þingfestingu máls þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru og fyrirkalls í Lögbirtingablaði 12. mars 2026 og boðaði ekki forföll. Verður málið því dæmt sem útivistarmál á grundvelli heimildarákvæðis a. liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkalli til ákærða að þannig gæti farið um meðferð málsins léti hann undir höfuð leggjast að mæta fyrir dóm.
Samkvæmt síðast greindu og með hliðsjón af framburði ákærða hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum máls telst háttsemi ákærða samkvæmt ákæru sönnuð í skilningi 108. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 og þykir hún réttilega heimfærð til refsiákvæða samkvæmt 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Að því gættu og með hliðsjón af ríkjandi dómaframkvæmd þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 25. ágúst 2025 til 8. september sama ár, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.
Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Lin Wenliang, sæti fangelsi í 45 daga. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærða frá 25. ágúst til 8. september 2025, að fullri dagatölu.