Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-41/2026:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Chen Jianping

(enginn)

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 15. apríl 2026, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 5. janúar 2026 á hendur ákærða, Chen Jianping, fæddum […] 1991 ríkisborgara […], með ókunnan dvalarstað, fyrir skjalafals með því að hafa mánudaginn 25. ágúst 2025 framvísað í blekkingarskyni sem sínu vegabréfi við starfsmann Icelandair við þjónustuborð D-svæðis flugstöðvar Leifs Eiríkssonar breytifölsuðu vegabréfi frá Japan nr. […] á nafni A, fd. […], með gildistíma 07.02.2023- 07.02.2033. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði mætti ekki við þingfestingu máls þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru og fyrirkalls í Lögbirtingablaði 12. mars og boðaði ekki forföll. Verður málið því dæmt sem útivistarmál á grundvelli heimildarákvæðis a. liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkalli til ákærða að þannig gæti farið um meðferð málsins léti hann undir höfuð leggjast að mæta fyrir dóm.

Samkvæmt síðast greindu og með hliðsjón af framburði ákærða hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum máls telst háttsemi ákærða samkvæmt ákæru sönnuð í skilningi 108. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 og þykir hún réttilega heimfærð til refsiákvæða samkvæmt 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Að því gættu og með hliðsjón af ríkjandi dómaframkvæmd þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Til frádráttar þeirri refsingu komi að fullri dagatölu gæsluvarðhald ákærða frá 26. ágúst 2025 til 9. september sama ár, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, Chen Jianping, sæti fangelsi í 30 daga. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald ákærða frá 26. ágúst til 9. september 2025, að fullri dagatölu.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 76. gr.1. mgr. 155. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 108. gr.1. mgr. 109. gr.1. mgr. 161. gr.