Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Áhættumat
Einstaklingur átti í viðskiptum við banka. Eftir að einstaklingurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rökstudds gruns um margvísleg brot, þar á meðal peningaþvætti, sagði bankinn upp viðskiptasambandinu í mars 2024. Árið 2025 fór einstaklingurinn fram á að opnað yrði aftur fyrir bankaviðskipti, en hann þyrfti á bankareikningi að halda til að geta fengið greidd laun. Bankinn hafnaði þeirri beiðni, meðal annars með vísan til óbreytts áhættumats á grundvelli laga og reglna um peningaþvætti. Höfðaði einstaklingurinn þá mál þetta gegn bankanum og krafðist þess að honum yrði gert skylt að opna aftur fyrir bankaviðskiptin. Í ljósi umfangs og alvarleika þeirra brota sem einstaklingurinn lá undir rökstuddum grun um að hafa framið taldi dómurinn að fallast mætti á þann málatilbúnað bankans að synjun hans á beiðni einstaklingsins um stofnun nýs bankareiknings teldist eiga sér næga stoð í lögum nr. 140/2018, sbr. einnig ákvæði 3. mgr. 14. gr. laga nr. 5/2023.
Stefndi Eimskip og vátryggjandi félagsins voru sýknaðir af bótakröfu starfsmanns sem varð fyrir líkamstjóni við ákeyrslu dráttarklárs á gám á athafnasvæði Eimskips. Var Eimskip ekki talið hafa brotið gegn tilkynningarskyldu til Vinnueftirlitsins skv. 79. gr. laga nr. 46/1980 og ekki fallist á að sönnunarbyrði skyldi snúið við af þeim sökum. Var slysið talið hafa orðið vegna ógætilegs aksturslags stefnanda, þ.e. þess aðgæsluleysis hans að aka allt of nálægt gámaröðinni sem hann ók meðfram þannig að breiðasti hluti dráttarklárins sem hann ók kræktist í gáminn í gámaröðinni.