Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1146/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi)

gegn

Kleant Hysi

(Jóna Vestfjörð Hannesdóttir lögmaður)

Gáleysisbrot. Játningarmál. Peningaþvætti. Skilorð.

Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir peningaþvætti og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að sæta upptöku fjármuna.

Dómur

I

Ákæra

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 27. apríl 2026, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 11. febrúar 2026, á hendur Kleant Hysi, kt. […], […], Reykjavík, „Fyrir peningaþvætti, með því að hafa, um nokkurt skeið fram til 31. júlí 2025 tekið við samtals 9.950 evrum,- í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum […], [en] reiðuféð [var] falið í skóm í póstsendingu sem ákærði póstlagði til Albaníu hjá Póstinum, […] þann 31. júlí 2025. Með háttsemi sinni móttók ákærði ávinning af refsiverðum brotum […]. Telst þetta varða við [4]. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    M: 007-2025-[…]

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að [ákærða] Kleant Hysi verði gert að sæta upptöku með dómi [á 9.950 evrum sem voru haldlagðar og] varðveittar eru hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, auk vaxta og verðbóta af greindri fjárhæð frá 31. júlí 2025 til greiðsludags, sbr. heimild í 69. gr. og 69. gr. [d] almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

II

Málsmeðferð og dómkröfur

  1. Málið var þingfest 22. apríl 2026 og sótti ákærði ekki þing, en mætt var Jóna Vestfjörð Hannesdóttir lögmaður sem skipuð var verjandi ákærða að ósk hans samkvæmt umboði sem lagt var fram í þinghaldinu. Málið var næst tekið fyrir 27. apríl 2026 og þá sótti ákærði þing í gegnum fjarfundarbúnað. Var bókað í þinghaldinu að ákæruvaldið gerði þær breytingar á verknaðarlýsingu ákæru að ekki er lengur ákært fyrir ásetningsbrot heldur gáleysisbrot og heimfærslu til refsiákvæða breytt í samræmi við það. Játaði ákærði sök samkvæmt ákæru svo breyttri.
  2. Í ljósi játningar ákærða voru skilyrði til að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru, eftir framangreindar breytingar á henni. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að hún verði skilorðsbundin. Þá er krafist hæfilegrar málsvarnarþóknunar til handa verjanda ákærða í samræmi við tímaskýrslu.
  3. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín fyrir dómi samkvæmt framangreindu. Með játningu ákærða, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök með þeim breytingum sem að framan greinir og eru brotin rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni svo breyttri.

III

Ákvörðun refsingar

  1. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt sakavottorði, dags. 10. febrúar 2026, hefur ákærði ekki áður gerst sekur um brot sem áhrif hefur á ákvörðun refsingar nú. Ákærða til málsbóta er litið til skýlausrar játningar hans fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki horft fram hjá því að peningaþvættið varðar umtalsverða fjárhæð. Að þessu virtu, og með vísan til 6. og 7. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og nánar greinir í dómsorði.
  2. Samkvæmt greindri niðurstöðu og með vísan til lagaákvæða í ákæru er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins, eins og nánar greinir í dómsorði.

IV

Sakarkostnaður

  1. Vegna úrslita málsins, og með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður ákærða gert að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jónu Vestfjörð Hannesdóttur lögmanns, sem með hliðsjón af tímaskýrslu og viðmiðunarreglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir hæfilega ákveðin 530.100 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki hlaust annar sakarkostnaður af rekstri málsins.
  2. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi.
  3. Guðrún Sesselja Arnardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Kleant Hysi, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði sæti upptöku á 9.950 evrum sem haldlagðar voru 31. júlí 2025.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Jónu Vestfjörð Hannesdóttur lögmanns, 530.100 krónur.

Guðrún Sesselja Arnardóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.69. gr.1. mgr. 70. gr.264. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.233. gr.1. mgr. 235. gr.