Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

265 dómar fundust

Lykilorð: Fjárdráttur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2026

S-5205/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn Emil Kára Ólafssyni (Ólafur Garðarsson lögmaður) og Gísla Gíslasyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður bótakrefjanda) (Gunnlaugur Garðarsson lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu sakfelldir fyrir fjárdrátt í rekstri hlutafélags og dæmdir í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. desember 2024

S-5875/2024

Héraðssaksóknari (Kristín Ingileifsdóttir saksóknari) gegn Hrafnhildi Bridde (Elva Ósk Wiium lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Löggiltur fasteignasali sakfelldur fyrir fjárdrátt vegna ráðstöfunar á vörslufé sem honum hafði verið trúað fyrir.

Landsréttur birt 14. júní 2024

892/2023

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Pétri Péturssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

P var ákærður fyrir fjárdrátt með því að hafa sem einn af eigendum félagsins A ehf. og prókúruhafi dregið sér 640.000 krónur með því að taka fjárhæðina út í reiðufé af bankareikningi félagsins og nýta í eigin þágu. Í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna, kom fram að P byggði á því að hann hefði lagt 610.000 krónur inn á bankareikning F ehf. til að greiða skuld A ehf. við það félag og notað 30.000 krónur til að greiða ferðakostnað sinn. Héraðsdómur mat framburð P ótrúverðugan og var ekki á honum byggt við úrlausn málsins. Var P sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og gert að sæta fangelsi í 60 daga sem bundið var skilorði til tveggja ára.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. júní 2024

S-249/2024

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Leifi Stefánssyni (Ólafur Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var fundinn sekur um fjárdrátt og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Vísað var frá dómi ákærulið er varðaði peningaþvætti.

Landsréttur birt 17. maí 2024

547/2023

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Láru Björk Sigrúnardóttur (Þórður Heimir Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

L var ákærð fyrir að hafa sem þáverandi fyrirsvarsmaður félagsins A ehf. dregið sér 945.000 krónur með því að millifæra fjárhæðina með einni færslu af bankareikningi félagsins inn á persónulegan bankareikning sinn. L var sakfelld í héraði fyrir brot gegn 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og gert að sæta fangelsi í tvo mánuði sem bundið var skilorði til tveggja ára. L byggði á því að henni hefði skort ásetning til auðgunar og að tilgangur millifærslunnar hefði verið í því skyni að greiða verktökum og starfsmönnum G ehf. vegna vinnu þeirra í tilefni af vatnstjóni í búð og á fasteign félagsins. Landsréttur taldi skýringar L ótrúverðugar og ekki fá stoð í framburði vitna sem gáfu skýrslu fyrir réttinum að undanskildu einu. Var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sakfellingu L fyrir umrædda háttsemi. Þá var L gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga en að virtum sakarferli hennar og atvika að öðru leyti var L ekki gerð sérstök refsing. Með vísan til 1. mgr. 238. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála var ákveðið að L yrði gert að greiða helming áfrýjunarkostnaðar málsins en að öðru leyti yrði áfrýjunarkostnaður greiddur úr ríkissjóði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2023

S-5487/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Guðlaugi Hannessyni
Lykilorð: Fjárdráttur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fjárdrátt og gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. október 2023

S-5560/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Silja Rán Arnarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Pétri Péturssyni (Þórir Örn Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir fjárdrátt og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. október 2023

S-3844/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Áróru Rut Owen (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir fjárdrátt en ákvörðun refsingar hennar frestað skilorðsbndið í tvö ár.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 13. febrúar 2023

S-163/2022

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Etibar Gasanov Elíssyni (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður)
Lykilorð: Fjárdráttur. Húsfélag.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sem hafði verið gjaldkeri húsfélags, var sakfelldur fyrir fjárdrátt af reikningi félagsins og dæmdur skilorðsbundið til 30 daga fangelsis.

Landsréttur birt 10. febrúar 2023

13/2022

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Sigurmundi Gísla Einarssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S var ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot og peningaþvætti, framin í rekstri tilgreinds einkahlutafélags, en ákærði var í senn stjórnarformaður og framkvæmdastjóri félagsins. Þá var S ákærður fyrir fjárdráttarbrot og peningaþvætti. Með hinum áfrýjaða dómi var S sakfelldur samkvæmt báðum ákærum en fyrir Landsrétti féll ákæruvaldið frá þeim ákæruliðum sem lutu að peningaþvætti. S játaði þá háttsemi sem honum var gefin að sök og talin var varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en neitaði sök gagnvart ákæru um fjárdrátt. Í dómi Landsréttar var til þess vísað að breytt tilhögun á refsimeðferð skattalagabrota samkvæmt lögum nr. 29/2021 hefði ekki þýðingu við mat á refsinæmi þeirra brota sem ákært var fyrir í málinu. Að því gættu, en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu S fyrir meiri háttar skattalagabrot og fjárdrátt og heimfærslu þeirra brota til refsiákvæða staðfest. Þá var ákvæði hins áfrýjaða dóms um refsingu S staðfest, þótt ákæruvaldið hefði fallið frá ákæruliðum sem lutu að peningaþvætti. Fangelsisrefsing vegna brota hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 2. janúar 2023

S-127/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) og og Z (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu voru sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins, en þeim hafði verið gefin að sök fjárdráttur og peningaþvætti, með því að hafa dregið sér og nýtt í eigin þágu fé af bankareikningi eldri manns. Voru ákærðu ein til frásagnar um atvik máls að mestu leyti enda hinn eldri maður látinn er rannsókn málsins hófst hjá lögreglu, fyrir tilstuðlan erfingja hans. Þótti gegn neitun ákærðu ekki fram komin lögfull sönnun þess að þau hafi gerst sek um þau brot sem þeim voru gefin að sök í ákæru og þau því sýknuð.

Landsréttur birt 3. júní 2022

533/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var ákærður fyrir fjárdrátt, en til vara umboðssvik, með því að hafa á tilgreindu tímabili dregið sér samtals 1.727.599 krónur af bankareikningum félaganna M ehf. og B ehf. en X var einn af eigendum félaganna og prókúruhafi þeirra. Með hinum áfrýjaða dómi var X sýknaður af fyrri lið ákærunnar og sakfelldur samkvæmt seinni ákærulið þar sem honum var gefið að sök að hafa í 18 skipti dregið sér fé af bankareikningi M ehf. á nánar tilgreindu tímabili. Til úrlausnar fyrir Landsrétti var að endurskoða niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu samkvæmt seinni lið ákærunnar. Í dómi Landsréttar kom fram að í sakamálaréttarfari gildi sú meginregla að sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik, sem telja megi honum í óhag, hvíli á ákæruvaldinu. Í samræmi við það væri markmið rannsóknar sakamáls að afla allra nauðsynlegra gagna til þess að ákæranda sé fært að ákveða að henni lokinni hvort sækja skuli mann til sakar. Þá þurfi ákæruvaldið sanna sekt ákærða svo hún verði ekki vefengd með skynsamlegum rökum. Af því leiði að vafa um sönnun sektar verði að skýra ákærða í hag. Fram kom að X hefði leitt ákveðnar líkur að því að hann hafi sem tengdur aðili átt fjárkröfu á hendur M ehf. meðal annars vegna sölu á fiskiskipinu O. Ekkert hefði verið upplýst um að aðrir tengdir aðilar hafi átt fjárkröfur á félagið. Fyrir lægi að lögregla hefði ekki aflað gagna úr bókhaldi M ehf. í því skyni að staðreyna hvort ákærði hafi átt kröfu sem hann hafði endurgreitt með þeim greiðslum sem hann greiddi út af bankareikningi M ehf. Þá virtist ekki hafa verið reynt að rannsaka hvort þær greiðslur sem X innti af hendi til þriðja aðila hefðu getað tengst rekstrinum en sumar þeirra gætu verið vegna eðlilegra aðfanga fyrir félagið. Rannsókn lögreglu á málinu væri því verulega ábótavant og ekki talið að ákæruvaldinu hefði tekist að sanna að X hefði gerst sekur um að hafa dregið sér fé af reikningum M ehf. Var X því sýknaður af sakargiftum.

Héraðsdómur Vesturlands birt 27. maí 2022

S-49/2022

Héraðssaksóknari (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn Maríu Magnúsdóttur
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfelld fyrir fjárdrátt og brot í opinberu starfi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Hæstiréttur birt 13. apríl 2022

33/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Þresti Emilssyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður) (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Þ var ákærður fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að sú háttsemi sem Þ væri gefin að sök í III. kafla ákæru um peningaþvætti fæli í sér sjálfstætt brot samkvæmt 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga sem ekki hefði getað komið til fyrr en eftir fullframningu auðgunarbrotanna og þá með tilgreindri háttsemi sem bar að lýsa í ákæru, sbr. c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008. Í ákæru hefði aðeins verið lýst nýtingu þeirra verðmæta sem auðgunarbrotin samkvæmt I. og II. kafla ákæru lutu að sem lið í lýsingu þeirra brota en ekki nánar nýtingu ávinningsins sem verknaðarþáttar í peningaþvættisbrotum. Þannig hefði meðal annars ekki verið lýst sérstaklega hvar, hvenær eða með hvaða hætti slík brot voru framin. Vísaði Hæstiréttur til þess að játning Þ breytti engu um þær kröfur sem gera yrði til skýrleika ákæru, enda gæti hann ekki með góðu móti ráðið af henni einni hvaða háttsemi honum var gefin að sök umfram þau auðgunarbrot sem tilgreind voru í I. og II. kafla ákæru og fólu í sér öflun fjárvinnings á kostnað ADHD samtakanna. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að ágallar á III. kafla ákæru væru svo verulegir að óhjákvæmilegt væri að vísa þeim kafla frá héraðsdómi, sbr. c–lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008. Að öðru leyti var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um annað en upphafsdag dráttarvaxta einkaréttarkröfu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2021

E-7774/2020

A (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður) gegn B (Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður)

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda bætur vegna vörusölu úr verslun stefnanda en stefndi hafði tekið andvirði sölunnar undir síg án heimildar og vitneskju stefnanda. Stefndi var einnig dæmdur til að endurgreiða skuld á viðskiptareikningi hjá stefnanda vegna vöruúttekta og fyrirfram greiddra launa.

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. september 2021

S-319/2021

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Henry Varadaraj (Aníta Óðinsdóttir lögmaður)
Lykilorð: Fjárdráttur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var fundinn sekur um fjárdrátt og honum gert að sæta fangelis í 45 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. september 2021

S-318/2021

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Árna Hirti Þorsteinssyni (sjálfur)
Lykilorð: Fjárdráttur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var fundinn sekur um fjárdrátt og gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 6. ágúst 2021

S-202/2020

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson lögreglustjóri) gegn X (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var í tveimur ákæruliðum gefinn að sök fjárdráttur, en til vara umboðssvik, fyrir að hafa með nánar tilgreindum hætti dregið sér fjármuni einkahlutafélaganna B og A. Að því er fyrri ákærulið málsins varðaði þóttu rök ekki standa til þess að líta svo á að X hafi ætlað að auðgast með ólögmætum hætti á kostnað B ehf. með millifærslu af bankareikningi félagsins inn á sinn eigin og var hann því sýknaður af sakargiftum að því leyti, hvort heldur sem var að hafa brotið gegn 247. eða 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að því er síðari ákæruliðinn varðaði var X á hinn bóginn fundinn sekur um brot gegn 247. gr. þeirra laga með því að hafa í 18 skipti á nánar tilgreinda vegu dregið sér fé af bankareikningi A ehf. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvo mánuði, en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Landsréttur birt 4. júní 2021

331/2020

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Þresti Emilssyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður) (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Þ var sakfelldur í héraði fyrir fjárdrátt og umboðssvik í starfi sínu sem framkvæmdastjóri ADHD samtakanna. Í ákæru var Þ einnig gefið að sök peningaþvætti samkvæmt 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga en í hinum áfrýjaða dómi var talið að 1. mgr. 247. gr. og 249. gr. tæmdu sök gagnvart þeim ákvæðum. Fyrir Landsrétti leitaðist Á eftir endurskoðun á þeirri niðurstöðu héraðsdóms. Í dómi Landsréttar var tekið fram að þegar brot gagnvart 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga félli saman við frumbrot og ekkert lægi fyrir um viðbótarathafnir af hálfu ákærða yrði að telja að frumbrotið tæmdi sök gagnvart broti gegn 264. gr. Þar sem svo væri raunin í þessu máli yrði að telja að 1. mgr. 247. gr. og 249. gr. laganna tæmdu sök gagnvart 1. mgr., sbr. 2. mgr. 264. gr. Var refsing Þ ákveðin fangelsi í 10 mánuði en fullnustu sjö mánaða refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þ var jafnframt gert að greiða ADHD samtökunum 9.212.736 krónur ásamt tilgreindum dráttarvöxtum og málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2021

S-7725/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hafdísi Friðriksdóttur
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir fjárdrátt og þjófnað.

Landsréttur birt 20. nóvember 2020

533/2019

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Axel Axelssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

A var sakfelldur fyrir brot gegn 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í starfi sínu sem eigandi, stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi K ehf. og H ehf. dregið sér samtals 36.533.931 krónu af fjármunum félaganna með því að millifæra fé af tilgreindum bankareikningum þeirra inn á persónulega bankareikninga sína. Þá var A sakfelldur fyrir að hafa í starfi sínu sem löggiltur fasteignasali hjá K ehf. dregið sér 36.133.190 krónur sem hann hafi veitt viðtöku frá kaupanda fasteignar sem varið skyldi til greiðslu á veðskuld seljanda hennar en ráðstafað henni í andstöðu við þá skyldu sína. Loks var A sakfelldur fyrir meiri háttar bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald og varðveita bókhaldsgögn vegna reksturs K ehf. á tilgreindum rekstrarárum. Við ákvörðun refsingar var einkum litið til þess að A hafði framið hluta fjárdráttarbrotanna í starfi sem löggiltur fasteignasali. Þá var horft til þess að fjárdrátturinn nam umtalsverðum fjárhæðum. Að því virtu og að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing A ákveðin fangelsi í tvö ár. Jafnframt var A gert að greiða B skaðabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. október 2020

S-5874/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Daníel Atla Cassata (Garðar Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir fjárdrátt, fjársvik og peningaþvætti og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði. Ákærða jafnframt gert að greiða bótakrefjanda skaðabætur og sæta upptöku á fjármunum og fartölvu sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. október 2020

S-723/2019

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir lögreglustjóri) gegn X (Aníta Óðinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var fundin sek um fjárdrátt og peningaþvætti, meðal annars með því að hafa í eigin þágu nýtt fé af reikningum starfsmannafélags sem hún hafði til umráða. Var henni gert að sæta fangelsi í 45 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Suðurlands birt 19. ágúst 2019

S-402/2019

Ákæruvaldið (Kristín Ingileifsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Guðjóni Þór Emilssyni (Sigurður Sigurjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuðir skilorðsbundnir, fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2020

S-3297/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jaime Armando Caicedo Vivas
Lykilorð: Fjárdráttur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir fjárdrátt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. apríl 2020

S-651/2020

Ákæruvaldið (Sigríður Svava Sigurgeirsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Þresti Emilssyni (sjálfur)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða var gert að sæta 10 mánaða fangelsi vegna fjárdráttar og umboðssvika í starfi fyrir félagasamtök. Vegna skýlausrar játningar og hreins sakaferils ákærða þótti unnt að skilorðsbinda sjö mánuði af fangelsisrefsingunni. Ákærða var einnig gert að greiða umræddum félagasamtökum skaðabætur og málskostnað.

Landsréttur birt 20. desember 2019

18/2019

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Sigurði Frey Árnasyni (Sigmundur Hannesson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

S var ákærður fyrir annars vegar fjárdrátt með því að hafa í fjögur tilgreind skipti dregið sér og selt án heimildar krókaaflahlutdeild í þorski sem var í eigu A ehf. og sem skráð var á skip í eigu B ehf., og í kjölfarið látið flytja krókaaflahlutdeildina af skipum B ehf. yfir á skip í eigu kaupenda. Þá var S gefið að sök í sama lið að hafa ráðstafað kaupverði krókaaflahlutdeildarinnar að hluta í þágu rekstrar SÁ ehf. og að hluta inn á persónulegan bankareikning sinn og bankareikning þáverandi eiginkonu sinnar, en engir fjármunir hefðu skilað sér til A ehf. eða B ehf. Hins vegar var S gefinn að sök fjárdráttur en til vara umboðssvik með því að hafa í þremur tilvikum án heimildar leigt tilgreint magn af krókaaflamarki í eigu A ehf., sem skráð var á skip í eigu B ehf., dregið sér endurgjald leigunnar og nýtt í eigin þágu og í þágu SÁ ehf., en engir fjármunir hefðu skilað sér til A ehf. eða B ehf. Landsréttur taldi ósannað að S hefði, í starfi sínu hjá SÁ ehf., selt eða leigt þær fiskveiðiheimildir sem í ákæru greindi án heimildar. Á hinn bóginn taldi rétturinn sannað að S hefði tekið á móti þeim greiðslum sem komu fyrir fiskveiðiheimildirnar. Var S sakfelldur fyrir fjárdrátt samkvæmt 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa dregið sér þá fjármuni sem tilgreindir voru í báðum ákæruliðum með því að skila þeim ekki til A ehf. eða B ehf. heldur nýta þá í eigin þágu og í þágu SÁ ehf. Við ákvörðun refsingar S var litið til þess að brot hans stóðu yfir í átta mánuði og voru einkar ófyrirleitin, auk þess sem ásetningur S við brotin hafi verið einbeittur og brot hans stórfelld, sbr. 2. og 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Á hinn bóginn var litið til dráttar sem varð á málinu fyrir útgáfu ákæru. Var refsing S ákveðin fangelsi í 18 mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 27. nóvember 2019

S-299/2019

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Óskari Jónassyni (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt og peningaþvætti.

Landsréttur birt 11. október 2019

725/2018

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Guðmundi Jónssyni (Óskar Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem G var fundinn sekur um fjárdrátt í opinberu starfi og peningaþvætti, með því að hafa sem skiptastjóri dánarbús dregið sér tugi milljóna króna sem hann nýtti í eigin þágu. Var ákærða gert að sæta fangelsi í tvö ár og jafnframt að greiða dánarbúinu skaðabætur.

Héraðsdómur Vesturlands birt 13. september 2019

S-132/2019

Héraðssaksóknari Sigríður Árnadóttir (Sigríður Árnadóttir héraðssaksóknari) gegn Sólberg Ásgeirsson
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Maður sakfelldur fyrir fjárdrátt og peningaþvætti.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 9. júlí 2019

S-96/2019

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra Eyþór Þorbergsson (Eyþór Þorbergsson lögreglustjórinn á norðurlandi eystra) gegn Hallgrími Friðriki Sigurðarsyni og Ómari Val Steindórsson
Lykilorð: Fjárdráttur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu sakfelldir fyrir fjárdrátt. H dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga en Ó í 45 daga, í báðum tilvikum skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 27. júní 2019

S-10/2019

Héraðssaksóknari Bryndís Ósk Jónsdóttir (Bryndís Ósk Jónsdóttir héraðssaksóknari) gegn Aðalheiði Rúnarsdóttur Kristján Óskar Ásvaldsson
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir fjárdrátt.

Landsréttur birt 14. júní 2019

433/2018

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Ásgeiri Norðmann Gunnarssyni (Arnar Þór Stefánsson lögmaður), Elínborgu H. Sigurðardóttur (Óskar Sigurðsson lögmaður), Gunnari Jóhanni Ásgeirssyni (Helgi Jóhannesson lögmaður, Dagmar Arnardóttir lögmaður, 4. prófmál) og Smára Gunnarssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Á, E, G og S voru sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í sameiningu dregið E ehf. alls 20 vinnuvélar og ökutæki frá S ehf. án þess að nokkurt endurgjald hefði komið fyrir. Landsréttur taldi sannað að Á hefði átti frumkvæðið að viðskiptum S ehf. og E ehf. og að það hafi verið að undirlagi hans að E, G og S hefðu undirritað tilkynningar um eigendaskipti að umræddum vinnuvélum og ökutækjum. Við ákvörðun refsingar var litið til tafa sem höfðu orðið á meðferð málsins og var refsing Á ákveðin átta mánuðir skilorðsbundnir í eitt ár, refsing S sex mánuðir skilorðsbundnir í eitt ár en ákvörðun refsingar E og G frestað skilorðsbundið í eitt ár.

Hleð fleiri dómum…