Ákæruvaldið (
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)
gegn
Rosio Bertu Calvi Lozano (
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.
Stefndu dæmd til að greiða bætur til stefnenda fyrir missi framfæranda og miskabætur vegna læknamistaka.
Íslenska ríkið sýknað af skaðabótakröfu sjúklings. Ósannað var að um saknæm mistök læknis hefði verið að ræða, heldur sjaldgæfan fylgikvilla aðgerðar.
A höfðaði mál á hendur tryggingafélagi og krafðist viðurkenningar á rétti á fébótagreiðslu á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna sjúkdómsmeðferðar sem B lýtalæknir framkvæmdi á árinu 2007 og fólst í ísetningu PIP brjóstapúða. Tryggingafélagið var sýknað þar sem ekki þótti sýnt fram á að B hefði gert mistök í skilningi laganna og þá var ósannað að tjón A mætti rekja til galla í brjóstapúðunum.
Dómurinn, sem m.a. var skipaður sérfróðum meðdómanda, taldi stefnanda ekki eiga rétt á bótum á grundvelli laga um sjúklingatryggingu vegna greiningar og meðferðar á hjartadeild Landspítala. Sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar.
Íslenska ríkið sýknað af kröfu um viðurkenningu á bótaskyldu vegna læknisaðgerðar.
Viðurkenndur réttur stefnanda til skaðabóta vegna læknamistaka.
yrði leyst úr þeirri málsástæðu stefnda að krafa stefnanda væri fyrnd. Var málið flutt um þennan þátt máls og dómtekið 21. sama mánaðar. Dómi héraðsdóms gegn
stefnda vegna ætlaðra mistaka heilbrigðisstarfsmanna við fæðingu hennar hefði ekki verið fallin niður fyrir fyrningu þegar mál þetta var höfðað. Málinu
Ekki var fallist á að saknæm mistök hefðu verið gerð við fæðingu K þannig að R bæri skaðabótaábyrgð á líkamstjóni K sem varð við fæðinguna.
Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda skaðabætur vegna læknismeðferðar á sjúkrahúsi.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu bóta. Krafan var á því reist að stefnandi hafi orðið fyrir varanlegu heilsutjóni vegna þess að grundvallaratriðum í mæðraskoðun hafi ekki verið sinnt vegna meðgöngu og fæðingar hans.
Kröfu stefnanda um frekari skaðabætur úr ríkissjóði vegna læknamistaka hafnað að öðru leyti en því að fallist var á kröfu um greiðslu dáttarvaxta.
Í málinu krafði stefnandi stefndu um bætur vegna tjóns sem hann varð fyrir á heilsu sinni í kjölfar aðgerðar vegna meintra læknamistaka. Voru stefndu sýknaðir af kröfum stefnanda.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um viðurkenningu á því að bótaskyld mistök hefðu átt sér stað við brjósklosaðgerð sem stefnandi gekkst undir.
Stefnandi gekkst undir skurðaðgerð á Landspítalanum sem tókst ekki sem skyldi þar sem líðan hennar, sem var mjög slæm fyrir, versnaði til frambúðar. Hún krafðist skaðabóta þar sem aðgerðarlæknir hefði ekki upplýst hana um að svo kynni að fara. Sýkna þar sem talið var að veittar upplýsingar hefðu verið fullnægjandi.
Stefndu voru sýknaðir af skaðabótakröfu stefnda. Ekki var talið að veikindi stefnanda yrðu rakin til umferðaróhapps sem stefnandi varð fyrir.
Viðurkennd var skaðabótaskylda íslenska ríkisins vegna mistaka sem urðu við greiningu og meðferð á kransæðastíflu stefnanda.
Stefndi dæmdur til að greiða stefnda bætur.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu íslenska ríkisins vegna þess að hún hafði smitast af lifrarbólgu C við blóðgjöf á árinu 1990. Bótaskylda íslenska ríkisins var talin vera fyrir hendi.
Stefán Gunnlaugur Stefánsson, Sandra Rós Pétursdóttir, v/ ólögráða dóttur, Katrínar og Hvannar Stefánsdóttur (
Magnús B. Brynjólfsson hdl)
gegn
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (
Árni Pálsson hrl)
Sjúkrahús sýknað af kröfu stefnanda sem taldi sig hafa hlotið skaða við mistök lækna við mæðraeftirlit, við fæðingu eða eftirmeðferð.
Íslenska ríkinu og lækni, sem rak læknastofu, var gert að greiða manni fullar bætur in solidum vegna mistaka sem talin voru hafa leitt til þess að taka varð af vinstri fót hans fyrir ofan hné.
Stefnanda voru dæmdar 23.279.474 kr. bætur vegna mistaka við læknisaðgerð.
Sjúkrahús sýknað af skaðabótakröfu konu sem taldi sig hafa hlotið skaða við mistök lækna er gerðu á henni brjósklosaðgerð.