Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

195 dómar fundust

Lykilorð: Lögræði

Landsréttur birt 10. maí 2024

384/2024

A (Helgi Jóhannesson lögmaður) gegn félagsþjónustu Kópavogs (Auður Kolbrá Birgisdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Lögræðismál

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem A var svipt sjálfræði í átján mánuði frá uppkvaðningu úrskurðar. Í úrskurði Landsréttar kom fram að staðfest væri sú niðurstaða héraðsdóms að uppfyllt væru skilyrði a-liðar 1. mgr. 4. gr. lögræðislaga nr. 71/1997 til að A yrði svipt tímabundið sjálfræði. Hins vegar væri í úrskurði héraðsdóms rakið efni vottorðs B geðlæknis vegna A, en B og C sérnámslæknir hefðu gefið skýrslu fyrir dóminum. Teldu B og C að A þyrfti á langtímameðferð að halda og sjálfræðissvipting nauðsynleg í því sambandi. B teldi meðferð A þurfa að vara í minnst tólf mánuði til að bera árangur. Með hliðsjón af því var sjálfræðissvipting A ákveðin tólf mánuðir.

Landsréttur birt 23. nóvember 2022

688/2022

A (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður) gegn velferðarsviði Reykjavíkurborgar (Dagmar Arnardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Lögræðismál

Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að uppfyllt væru skilyrði a- og b-liðar lögræðislaga nr. 71/1997 til að A yrði sviptur sjálfræði tímabundið. Að virtum gögnum málsins og með vísan til 1. mgr. 12. gr. laganna þótti rétt að sjálfræðissvipting A stæði í eitt ár.

Landsréttur birt 27. maí 2022

280/2022

A (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður) gegn B (sjálfur)
Lykilorð: Kærumál. Lögræði.
Málaflokkur: Lögræðismál

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem A var sviptur lögræði tímabundið í tvö ár að kröfu B. Í úrskurði Landsréttar var fallist á með héraðsdómi að uppfyllt væru skilyrði a- og b-liða 4. gr. lögræðislaga til þess að svipta A lögræði. Hins vegar taldi Landsréttur með vísan til meðalhófsreglu 1. mgr. 12. gr. lögræðislaga og að því virtu sem fram kæmi í vottorði læknis og skýrslu hans fyrir héraðsdómi, um að A væri á hægum batavegi, rétt að svipta A lögræði í eitt ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Landsréttur birt 29. mars 2022

143/2022

A (Jónína Guðmundsdóttir lögmaður) gegn B (Sigurður Sigurjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Lögræðismál

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem A var svipt sjálfræði í 12 mánuði að kröfu B. Í úrskurði Landsréttar kom fram að A hefði ekki mætt fyrir dóm þegar málið var tekið fyrir í héraði, en bókað hefði verið að skipaður verjandi hefði hitt A og hefði hún mótmælt kröfu B. Af vottorði læknis mátti ráða að A væri í ástandi til þess að vera kvödd fyrir dóm til þess að kynna henni kröfuna og gefa henni kost á að tjá sig um hana. Þá var ekki um það bókað í þingbók að héraðsdómari hefði haldið á fund A til að kynna sér ástand hennar af eigin raun. Við meðferð málsins hefði skýrsla verið tekin af A í gegnum síma. Í ljósi framangreinds var meðferð málsins talin í slíkri andstöðu við reglur 11. gr. lögræðislaga nr. 71/1997 að ekki yrði hjá því komist að ómerkja hinn kærða úrskurð og leggja fyrir héraðsdóm að taka málið til löglegrar meðferðar og úrskurðar á ný.

Landsréttur birt 5. febrúar 2021

746/2020

A, B og C (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn D (Gizur Bergsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Lögræðismál

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A, B og C um að D yrði svipt sjálfræði. Landsréttur staðfesti þá niðurstöðu héraðsdóms að A, B og C hefðu ekki sýnt fram á að uppfyllt væru skilyrði a-liðar 4. gr. lögræðislaga nr. 71/1997 um að brýn þörf væri á sviptingu sjálfræðis D. Var hinn kærði úrskurður staðfestur.

Hleð fleiri dómum…