Ákæruvaldið (
Klara Dögg Steingrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Grétari Sigfinni Sigurðarsyni (
Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)
Stórfellt skattalagabrot einstaklings með því að skila efnislega röngum skattframtölum.
Fíkniefnainnflutningur
Vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Guðmundi Inga Guðmundssyni
Sakfellt fyrir auðgunar- og fíkniefnabrot.
Sakfellt fyrir tilraun til móttöku fíkniefna sem send voru til landsins með póstsendingu frá Þýskalandi. Einnig sakfellt fyrir vörslur fíkniefna og fíknilyfja.
Ákæruvaldið (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir en sérstaklega var litið til skýlausrar játningar, ungs aldurs og hreins sakaferils við mat á ákvörðun um viðurlög.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rannveigu H. Guðbrandsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Sakfellt fyrir fíkniefna- og lyfjaakstur og vörslur fíkniefna og svipaðra lyfja en ákærða sýknuð af ákæru um brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Björgvin Hermannssyni (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Sakfellt og ákvörðuð refsing vegna fjölda brota, þar á meðal brot gegn valdstjórninni, fíkniefnabrot, fíkniefna- og sviptingarakstur, nytjastuld, eignaspjöll og fleira.
Líkamsárás sem leiddi til tannáverka.
Sakfellt vegna fjölda brota, þar á meðal þjófnað, nytjastuld, skjalafals, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Sakfellt fyrir hótanir, brot í nánu sambandi og stórfelldar ærumeiðingar.
Sakfellt vegna líkamsárásar, frelsissviptingar og ólögmætrar nauðungar.
Eignaspjöll, rán og umferðarlagabrot. Refsing ákveðin sem hegningarauki við eldri skilorðsdóm sem var dæmdur upp og fésekt dæmd vegna umferðarlagabrota, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar. Einnig voru dæmdar miska- og skaðabætur.
Málið nr. S-1413/2022 Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Hannes J. Hafstein lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir minni háttar líkamsárás 17. mars 2021. Var tekið tilllit til greiðrar játningar ákærða fyrir dómi og þess hve langt var um liðið frá því brotið var framið. Þess utan var hér um hegningarauka að ræða við tveggja ára fangelsisdóm og var ákærða því ekki gerð frekari refsing.
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Vesturflugi ehf, Friðgeiri Guðjónssyni, Gabríel Alexander Fest og Sigtryggi Leví Kristóferssyni (
Ásgeir Þór Árnason lögmaður)
R ehf., nú V ehf.og F var gefið að sök brot gegn lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd og auglýsingu nr. 161/2019 um staðfestingu á stjórnunar- og verndaráætlun friðlandsins á Hornströndum með því að hafa staðið fyrir, skipulagt og selt útsýnisflug með tveimur þyrlum um friðlandið og lendingu þar og G og S fyrir að hafa flogið þyrlunum og lent þeim í friðlandinu án leyfis Umhverfisstofnunar. Ákærðu viðurkenndu þá háttsemi sem í ákæru greindi en kröfðust sýknu meðal annars á grunni þess að hvergi í lögum nr. 60/2013 kæmi fram að bannað væri að lenda þyrlum í friðlandi nema með leyfi Umhverfisstofnunar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að efnislegu inntaki refsiverðrar háttsemi sem ákærðu væru bornir sökum um væri nægilega lýst í settum lögum nr. 60/2013 í samræmi við áskilnað 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar. Þannig væri ákvæði 9. gr. auglýsingar nr. 161/2019 sett með viðhlítandi stoð í lögum og tæki í eðlilegu samhengi upp þráðinn þar sem fyrirmæli í settum lögum þraut. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu og ákvörðun refsingar, með þeirri breytingu að refsing sú sem ákveðin var á grundvelli 4. mgr. 90. gr. laga nr. 60/2013 var lögð á V ehf.
Ákæruvaldið (
Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Sakfellt og sýknað af ákæru um sendingu kynferðislegs myndefnis. Einnig sýknað af ákæru vegna meints brots í nánu sambandi, meintrar nauðgunar og meintra brota gegn nálgunarbanni. Miskabætur dæmdur en einkaréttarkröfum að öðru leyti vísað frá dómi.
Sakfellt og sýknað af ákæru vegna ráns.
Ákæruvaldið (
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)
gegn
Rosio Bertu Calvi Lozano (
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.
málinu nr. S-478/2011 Ákæruvaldið (
Ásmunda Björg Baldursdóttir ftr)
gegn
Eyjólfi Pétri Pálmasyni (
Björn Þorri Viktorsson hrl)
Framkvæmdastjóri og prókúruhafi einkahlutafélags dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára og 38 milljón króna sekt fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga, 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda.
málinu nr. S-497/2010 Ákæruvaldið (
Eyjólfur Ármannsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Einari Magna Jónssyni (
Inga Jónsdóttir hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskattskýrslum og skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda, sem og virðisaukaskatti og staðgreiðslu. Ekki talin skilyrði til að fara niður úr lögbundnu lágmarki fésektar.
Sýknað af broti gegn 45. gr. a umferðarlaga, þar sem saknæmisskilyrði skorti.
Lucia Celeste Molina Sierra Birnir Orri Pétursson (
Dögg Pálsdóttir hrl)
gegn
Páli Magnússyni, Helga Seljan Jóhannssyni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, Sigmari Guðmundssyni og Þórhalli Gunnarssyni (
Hlynur Halldórsson hdl)
Stefndu voru sýknuð af refsi-og bótakröfum stefnenda út af umfjöllun í Kastljósi og fréttum RUV vegna umsóknar stefnanda um íslenskan ríkisborgararétt.
Þ var ákærður fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur hafði verið í nafni P ehf. og staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins. Hélt Þ því fram að hann bæri ekki ábyrgð á þessum greiðslum þar sem hann hefði ekki verið framkvæmdastjóri félagsins. Með vísan til ýmissa gagna sem lágu fyrir í málinu sem Þ hafði undirritað í nafni félagsins og skuldbundið það auk framburða vitna þótti sannað að Þ hefði verið framkvæmdastjóri félagsins ásamt meðákærðu í héraði. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu Þ og honum gert að sæta fangelsi í 4 mánuði og til greiðslu 5.100.000 króna í sekt.
J var ákærður fyrir tollalagabrot með því að hafa sem skipstjóri flutningaskipsins H borið ábyrgð á ólögmætum innflutningi á áfengi með skipinu, sem eigandi hafði ekki fundist að. Ekkert var fram komið um að J hefði verið kunnugt um áfengið, er skipið kom til landsins, og var eingöngu á því byggt af hálfu ákæruvaldsins, að J bæri hlutlæga refsiábyrgð samkvæmt 3. mgr. 123. gr. tollalaga nr. 55/1987, sbr. 124. gr. sömu laga. Að virtum fyrri málslið 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og fyrri málslið 1. mgr. 7. gr. samnings um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sbr. lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu, var talið, að undantekningar frá þeirri meginreglu refsiréttar, að refsiábyrgð yrði aðeins byggð á sök brotamanns, yrðu að vera skýrt orðaðar í lögum. Talið var, að ekki kæmi skýrlega fram í 3. mgr. 123. gr. laga nr. 55/1987, að stjórnandi fars bæri hlutlæga refsiábyrgð og í 124. gr. laganna kæmi heldur ekki fram að refsiábyrgð gæti byggst á hlutlægum grunni. Af athugasemdum við frumvarp til tollalaga og forsögu framangreindra ákvæða þótti ekki verða ráðið með ótvíræðum hætti, að stjórnandi fars bæri hlutlæga ábyrgð ef eigandinn fyndist ekki eða refsiábyrgð hans væri reist á öðrum grundvelli en annarra. Var 3. mgr. 123. gr. laga nr. 55/1987 ekki talin fela í sér nægilega skýra refsiheimild til þess að sakfella J fyrir tollalagabrot, sem ekkert lá fyrir um að hann hefði átt hlut að, og var hann því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.