Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
8 dómar fundust
Lykilorð: Sjúklingur
Flokkur:
Fallist var á kröfu um viðurkenningu á bótaskyldu íslenska ríkisins á tjóni sem ekkja og þrír ólögráða synir hennar urðu fyrir vegna plastbarkaaðgerðar sem gerð var á eiginmanni hennar og föður drengjanna og leiddi til andláts hans.
Ákæruvaldið (
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari)
gegn
Rosio Bertu Calvi Lozano (
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.
Viðurkennd bótaskylda vegna vanbúnaðar í sturtuaðstöðu sjúkrahúss.
A höfðaði mál á hendur tryggingafélagi og krafðist viðurkenningar á rétti á fébótagreiðslu á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna sjúkdómsmeðferðar sem B lýtalæknir framkvæmdi á árinu 2007 og fólst í ísetningu PIP brjóstapúða. Tryggingafélagið var sýknað þar sem ekki þótti sýnt fram á að B hefði gert mistök í skilningi laganna og þá var ósannað að tjón A mætti rekja til galla í brjóstapúðunum.
Fallist á kröfu stefnanda um að fella úr gildi ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja stefnanda um aðild að rammasamningi sérgreinalækna.
Dómurinn, sem m.a. var skipaður sérfróðum meðdómanda, taldi stefnanda ekki eiga rétt á bótum á grundvelli laga um sjúklingatryggingu vegna greiningar og meðferðar á hjartadeild Landspítala. Sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar.
Fallist var á greiðslu lögmannskostnaðar vegna kröfu stefnanda um bætur á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
Stefnandi krafðist aðallega greiðslu skaðabóta en til vara viðurkenningar á rétti til greiðslu skaðabóta vegna rýrnunar á verðmæti eignarhluta í peningamarkaðssjóðnum Peningabréf Landsbankans ISK. Sýknað af aðalkröfu en fallist að hluta á varakröfu.