Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

113 dómar fundust

Lykilorð: Útivistardómur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. apríl 2026 kl. 16:15

S-711/2026

Héraðssaksóknari (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Petreu Helgu Kristjánsdóttur (Enginn)

Sakborningur, sem ekki mætti fyrir dóm, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár, ekki síst þar sem meðferð málsins hafði dregist.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. apríl 2026 kl. 11:24

S-1148/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Marko Brlek
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 60 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. mars 2026 kl. 13:09

S-4830/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Þór Svansson saksóknarfulltrúi) gegn Aðalsteini Javí Lárusi Skúlasyni (Enginn)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Maður, sem ekki kom fyrir dóm, sakfelldur fyrir fjársvik og dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar, en um hegningarauka var að ræða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 18. desember 2025

S-605/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn Guðjóni Agustin Cortés (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrot og peningaþvætt og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefna og fjármunir.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. desember 2025

S-565/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Uxa Jóhannssyni (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um vörslur og ræktun fíkniefna og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða gert að sæta upptöku fíkniefna og búnaðar og hann dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 28. nóvember 2025

S-541/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Tinna Sif Guðmundsdóttir fulltrúi) gegn Kristjáni Vali Kristinssyni (enginn)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var fundinn sekur um þjófnað og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Suðurlands birt 19. nóvember 2025

S-550/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jóni Hauki Baldvinssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, jafnframt sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2024

S-920/2024

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Leonard Koromani Mario Koromani og Vezire Spaho
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna varslna á fíkniefnum ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. apríl 2024

S-282/2024

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Páli Þór Rúnarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gerð sekt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann var einnig sviptur ökurétti tímabundið og þurfti hann að þola upptöku fíkniefna. Útivistarmál.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. mars 2024

S-14/2024

Málið nr. S-14/2024 Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Endorence Thomas Mouses (enginn)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var með útivistardómi sakfelldur fyrir peningaþvætti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. janúar 2024

S-6209/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi) gegn Wojciech Kaczorowski
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir ofbeldisbrot, hótanir og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2024

S-5583/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Frigg Ragnarsdóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og þjófnað og dæmd í 90 daga fangelsi og var ævilög svipting ökuréttar áréttuð og fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. desember 2023

S-6615/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Inga Guðmundssyni
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur í 90 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 25. október 2023

S-2067/2023

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Abdulrazzaq Saadi Younus Sefo
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing og sekt fyrir skjalafals og umferðarlagabrot. Einnig var hann sviptur réttinum til þess að fá ökuskírteini í 4 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2023

S-4877/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhannesi Svanssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og þjófnað og dæmdur í 6 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. september 2023

S-371/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gísla Björgvinssyni (Enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og ölvunarakstur á hinni stolnu bifreið, sem hann ók á grindverk og brunahana og eyðilagði bifreiðina. Hlaut ákærði 45 daga skilorðsbundinn fangelsisdóm, auk þess sem honum var gert að greiða 290 þúsund króna sekt og sæta sviptingu ökuréttinda í fimm ár. Þá var ákærði dæmdur til greiðslu skaðabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. maí 2023

S-657/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Tryggva Ólafssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir umferðarlagabrot. Skilorðsrof. Útivistardómur

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2023

S-319/2023

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Slawomir Jan Kaczykowski
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttindum og undir áhrifum áfengis. Honum var gert að sæta fangelsi í 90 daga og að greiða sakarkostnað. Hegningarauki. Ökuréttarsvipting var áréttuð.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2023

S-295/2023

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Þorvaldssyni, kt. […], […], fyrir I
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sekfelldur fyrir að hafa í tvígang ekið sviptur ökurétti, og í annað skiptið einnig undir áhrifum áfengis. Honum var gert að sæta fangelsi í 30 daga og að greiða 240.000 króna sekt. Einnig var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2023

S-228/2023

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Albert Gibowicz
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur bifhjóls án skráninganúmers, akstur sviptur ökurétti, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að hafa neitað að fylgja fyrirmælum lögreglu. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga og greiða 350.000 króna sekt í ríkissjóð. Ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð og ákærða var gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. febrúar 2023

E-4025/2022

Global byggingafélag og co ehf (Jón Þór Ólason lögmaður) gegn þb. Lofts 11 ehf (enginn)

Deilt var um greiðslu vegna verks sem stefnandi vann fyrir stefnda. Bú stefnda var tekið til gjaldþrotaskipta meðan málið var til meðferðar. Síðar féll niður þingsókn af hálfu stefnda og var málið því dómtekið án þess að til aðalmeðferðar þess kæmi. Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda þá fjárhæð sem dómkrafa stefnanda laut að.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. nóvember 2022

S-3521/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Aroni Pálmasyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot en ekki gerð frekari refsing þar sem um hegningarauka var að ræða, sviptur ökurétti.

Hleð fleiri dómum…