Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-711/2026:

Héraðssaksóknari

(Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)

gegn

Petreu Helgu Kristjánsdóttur

(Enginn)

Brot gegn valdstjórninni. Dráttur á máli. Útivistardómur.

Sakborningur, sem ekki mætti fyrir dóm, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár, ekki síst þar sem meðferð málsins hafði dregist.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 9. apríl sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á hendur Petreu Helgu Kristjánsdóttur, kt. […], […] „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að morgni sunnudagsins 5. júní 2022, á þáverandi heimili sínu að […], Reykjavík, veist með ofbeldi að lögreglumanni nr. […], sem var við skyldustörf, með því að slá peysu í andlit hans og sparka einu sinni með hæl sínum í sköflung hans með þeim afleiðingum að gleraugu lögreglumannsins urðu fyrir tjóni og hann hlaut eymsl á sköflungi.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að [ákærða] verði [dæmd] til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

    Niðurstaða varðandi sekt ákærðu o.fl.

  2. Málið er tekið til dóms á grundvelli a-liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, þar sem ákærða mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir að henni hafi verið birt ákæra og fyrirkall, án þess að hafa lögmæt forföll, sbr. 1. mgr. 155. gr. sömu laga. Var málið tekið til dóms eftir að sækjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Er dómur nú lagður á málið á grundvelli fyrirliggjandi gagna og án frekari sönnunarfærslu.
  3. Með vísan til rannsóknargagna málsins, þar á meðal myndbandsupptakna úr búkmyndavélum lögreglu, telst sannað að ákærða hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök. Þá kom jafnframt fram í fyrirkalli, sem eins og áður segir birt var löglega fyrir ákærðu, að hún mætti búast við því að fjarvist hennar yrði metin til jafns við það að hún viðurkenndi að hafa framið það brot sem hún er ákærð fyrir og að dómur yrði lagður á málið að henni fjarstaddri. Að þessu virtu verður ákærða sakfelld fyrir það brot sem henni er gefið að sök og er brot hennar rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

    Niðurstaða varðandi refsingu ákærðu og önnur atriði

  4. Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 2. febrúar 2026, hefur ákærða ekki verið fundin sek um refsiverðan verknað sem þýðingu hefur við ákvörðun refsingar nú.
  5. Við ákvörðun refsingar er til þess að líta að langt er um liðið síðan atvik málsins áttu sér stað. Af gögnum málsins verður ráðið að rannsókn þess hafi lokið og málið verið sent héraðssaksóknara til meðferðar um mitt ár 2022. Hefur sá dráttur, sem ákærðu verður ekki kennt um, ekki verið útskýrður með neinum hætti.
  6. Með hliðsjón af framangreindu, ekki síst þeim drætti sem orðið hefur á málinu, sem og að virtu sakarefni málsins, þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar ákærðu skilorðsbundið í tvö ár haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 á þeim tíma. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.
  7. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari.
  8. Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákvörðun um refsingu ákærðu, Petreu Helgu Kristjánsdóttur, er frestað skilorðsbundið í tvö ár haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 106. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 155. gr.1. mgr. 161. gr.