Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

216 dómar fundust

Lykilorð: Verjandi

Landsréttur birt 18. maí 2022

302/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)

Með úrskurði Landsréttar var því hafnað að lagaskilyrði væru til þess að skipaður verjandi X fengi aðgang að gögnum sem fylgdu kröfu LS um húsleitarheimild.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. janúar 2022

S-3060/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sonja H. Berndsen aðstoðarsaksóknari) gegn Kristófer Breka Berglindarsyni (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði, tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot.

Landsréttur birt 19. október 2021

608/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Húnbogi J. Andersen lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Verjandi.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þess efnis að hafna kröfu X um afturköllun skipunar B lögmanns sem verjanda X og að í hans stað yrði A lögmaður skipaður verjandi hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2021

S-1826/2021

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn A (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt og sýknað að hluta fyrir kynferðisbrot. Kynferðisleg áreitni.

Landsréttur birt 12. mars 2021

155/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (María Káradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn A (Arnar Þór Stefánsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Verjandi.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi skipun A sem verjanda X við rannsókn L í tilteknu máli.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. júlí 2020

E-388/2019

Steinbergur Finnbogason (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn Íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Stefnanda voru dæmdar miskabætur á grundvelli 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku, húsleitar, haldlagningar muna, frelsissviptingar í gæsluvarðhaldi og á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993 vegna óútskýrðs dráttar á niðurfellingu sakamáls á hendur honum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. júní 2020

S-120/2020

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Eggerti Kára Kristjánssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um þjófnað og fíkniefnalagabrot og honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði. Með vísan til sakaferils ákærða þóttu ekki tilefni til að skilorðsbinda refsingu hans. Þá voru gerð upptæk fíkniefna og ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Landsréttur birt 30. júlí 2019

570/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn A (sjálfur)
Lykilorð: Kærumál. Verjandi.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi skipun A sem verjanda X við rannsókn L í tilteknu máli.

Landsréttur birt 25. janúar 2019

44/2019

Ríkissaksóknari gegn X (Arnar Þór Stefánsson lögmaður)
Lykilorð: Kærumál. Verjandi. Vitni.

Staðfest var ákvæði héraðsdóms um að X væri skylt að koma fyrir dóm til að gefa skýrslu sem vitni um atriði sem greindi í beiðni R og vörðuðu meint brot gegn 136. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. október 2018

S-178/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Ólafi Hauki Atlasyni (Sigurður Sigurjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um margítrekaðan ölvunarakstur sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hans.

Landsréttur birt 24. maí 2018

386/2018

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (enginn) gegn Bjarna Haukssyni (sjálfur)

B, sem kvaðst hafa verið skipaður verjandi X við fyrirtöku gæsluvarðhaldskröfu í héraðsdómi en ekki við meðferð máls fyrir dómi eftir útgáfu ákæru, kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var bréflegri kröfu hans um að dómurinn ákvarðaði honum þóknun vegna verjandastarfa í þágu X á rannsóknarstigi. B kvaðst ekki hafa verið upplýstur um að ákæra hefði verið gefin út á hendur X og að máli hans hefði lokið með dómi. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að 1. og 2. mgr. 38. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála gerðu ráð fyrir því að dómari ákvæði þóknun verjanda í tengslum við meðferð sakamáls sem hann hefði til meðferðar. Þar sem málinu hefði lokið með dómi 23. febrúar 2017 hefði dómara málsins ekki verið rétt að taka það fyrir að nýju vegna kröfu um þóknun sem ekki hafi legið fyrir við meðferð þess. Engu að síður ætti B rétt á að þóknun hans vegna verjandastarfa yrði greidd úr ríkissjóði og það þótt erfiðleikum gæti verið háð að fella þóknunina undir sakarkostnað. Hann ætti þess kost að beina erindi sínu um ákvörðun þóknunar til ákæranda og ágreiningi þar um í framhaldinu til héraðsdóms á grundvelli 2. mgr. 102. gr. laga nr. 88/2008. Því var talið að héraðsdómara hefði réttilega hafnað kröfu varnaraðila eins og hún var lögð fyrir dómstóla og var niðurstaða hins kærða úrskurðar staðfest.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. desember 2017

S-358/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jósef Zarioh (Guðmundur Njáll Guðmundsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Með broti sínu rauf hann skilorð eldri dóms og var skilorðsbundinn hluti refsingar þess dóms tekinn upp og honum dæmd refsing í einu lagi, sem þótti hæfilega ákveðin fangelsi í ellefu mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá skyldi hann sæta upptöku á kannabislaufum, hassi og amfetamíni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. desember 2017

S-10/2017

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bjarka Fannari Smárasyni (Jón Bjarni Kristjánsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu tveggja mánaða skilorðsbundins hluta fangelsisrefsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hún hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. desember 2017

S-389/2017

Ákæruvaldið (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hrefnu Rán Hannesdóttur (Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmd í fjögurra mánaða fangelsi og svipt ökurétti ævilangt, fyrir fjögur þjófnaðarbrot og akstur bifreiðar svipt ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. desember 2017

S-196/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Ólafi Hauki Atlasyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um hraðaakstur sem og margítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í eitt ár, auk þess sem ítrekuð var ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. nóvember 2017

S-366/2017

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ragnari Má Ómarssyni (Páll Bergþórsson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Refsing hans var ákveðin fangelsi í þrjá mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár, en auk þess skyldi hann sæta upptöku á kannabisplöntum og ecstasy.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. nóvember 2017

S-217/2017

Ákæruvaldið (Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri) gegn Óskari Bjarna Birgissyni (Aníta Óðinsdóttir hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var fundinn sekur um húsbrot, eignaspjöll og þjófnað í félagi við aðra. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingar hans var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var honum gert að greiða skaðabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. nóvember 2017

S-157/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Jóhanni Grétari Eiríkssyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um hegningar- og umferðarlagabrot og hafa með því raskað umferðaröryggi á alfaraleið og stofnað á ófyrirleitinn hátt lífi og heilsu vegfarenda í augljósan háska. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Þá var ákærði sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. nóvember 2017

S-340/2017

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jón Egilsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hann dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. nóvember 2017

S-338/2017

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Patreki Páli Auðunssyni (Jón Egilsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu sektar að viðlagðri vararefsingu, til tímabundinnar sviptingar ökuréttar, og til að sæta upptöku ávana- og fíkniefna og vopna. Með dómnum var hann sakfelldur fyrir brot gegn lögum um meðferð ávana- og fíkniefna, umferðarlögum, vopnalögum og lögreglulögum, og var honum gerður hegningarauki við dóm frá 8. júní á þessu ári.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. október 2017

S-248/2017

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Brynjari Unnsteinssyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Vegna brota í tveimur fyrstu ákæruliðum af fimm var honum gerður hegningarauki við dóm frá því 20. janúar á þessu ári, þar sem hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af þrjátíu daga skilorðsbundið til þriggja ára. Vegna brots í þriðja ákæruliðnum af fimm var honum gerður hegningarauki við lögreglustjórasátt frá 25. febrúar á þessu ári, en með brotum í síðustu tveimur ákæruliðum af fimm rauf hann skilyrði fyrir frestun á skilorðsbundna hluta refsingar dómsins frá 20. janúar síðastliðnum. Sá hluti refsingar þess dóms var tekinn upp og ákærða nú dæmd refsing í einu lagi og þótti sú refsing hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánaði. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. október 2017

S-272/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Friðjóni Veigari Gunnarssyni (Guðni Jósep Einarsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá var hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. október 2017

S-282/2017

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Gylfa Þór Héðinssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, en 45 dögum þeirrar refsingar skyldi frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Sakfellingin tók til aksturs bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómnum var honum gerður hegningarauki við dóm frá 8. júní á þessu ári, þar sem hann var dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af 45 daga skilorðsbundið til tveggja ára og var skilorðsbundni hluti þeirrar refsingar tekinn upp og dæmdur með þeirri refsingu sem ákærða var dæmd í málinu. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. október 2017

S-277/2017

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Marcin Grzegorzewicz (Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í sex mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, í síðara tilvikinu einnig án lögboðinna vátryggingar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. september 2017

S-292/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ragnari Haraldssyni (Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann var nú dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, til greiðslu 100.000 króna sektar að viðlagðri vararefsingu og þá skyldi hann sæta upptöku kannabisplantna, kannabislaufa, kannabisstöngla og niðurskorinna kannabisplöntuhluta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. september 2017

S-271/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Arnóri Guðmundssyni (Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreiðum í þrígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þar af í einu tilvikinu einnig of hratt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 21. september 2017

S-212/2017

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Karli Bjarna Guðmundssyni (Jóhann Fannar Guðjónsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreiðum í fimm tilvikum undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í einu tilviki of hratt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. september 2017

S-131/2017

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Finni Má Árnasyni (Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. september 2017

S-245/2017

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Pavels Sadenko (Steinbergur Finnbogason hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í sex mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir brot gegn umferðarlögum. Hann játaði brot sín. Með dómnum var honum gerður hegningarauki við átján mánaða fangelsisdóm frá því fyrr á þessu ári fyrir sams konar brot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

Hleð fleiri dómum…