Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

104 dómar fundust

Lykilorð: Gæsluvarðhaldsvist

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. desember 2025

S-2201/2025

Málið nr. S-2201/2025 Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari) gegn X (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða var sakfelld fyrir manndráp og stórfellt ofbeldi í nánu sambandi gagnvart áttræðum föður sínum, sem og sakfelld fyrir meiri háttar líkamsárás og stórfellt ofbeldi í nánu sambandi gagnvart sjötugri móður sinni og dæmd í 16 ára fangelsi. Frá þeirri refsingu dregst óslitið gæsluvarðhald ákærðu frá 11. apríl 2025. Ákærða var jafnframt dæmd til að greiða hálfbróður sínum 2.000.000 króna miskabætur. Vísað var frá dómi kröfu bróðurins um að ákærða skuli svipt erfðarétti eftir föður þeirra. Þar sem ákærða var sýknuð af hluta sakargifta var sakarkostnaði skipt, þó þannig að ákærða var dæmd til að greiða allan útlagðan kostnað ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. mars 2025

S-427/2025

Málið nr. S-427/2025 Ákæruvaldið (Valborg Steingrímsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Bruna Muniz Da Silva (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) og og Anne Thayssa Domingues Santana O Menezes (Eva Dóra Kolbrúnardóttir lögmaður)

Ákærðu voru sakfelldar fyrir að hafa í sameiningu flutt til landsins u.þ.b. 3.600 grömm af sterku kókaíni og hvor fyrir sig dæmd í fangelsi þrjú ár og sex mánuði. Þótt litið væri til greiðrar játningar ákærðu beggja og þess að þær teldust svokölluð burðardýr horfði á móti til refsiþyngingar hve mikið magn kókaíns þær fluttu til landsins, þess að þær sammæltust um að fremja hið alvarlega brot og áttu jafnan hlut að brotinu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. september 2024

S-1935/2024

Ákæruvaldið (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Aleksas Kartanas (Leó Daðason lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Karlmaður var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir hegningarlaga- og sérrefsilagabrot. Var fullnustu 45 daga af þeirri refsingu frestað skilorðsbundið þannig að sá hluti refsingar falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Til drádráttar dæmdri refsingu kom gæsluvarðhald ákærða frá 17. júní til og með 3. september 2024.

Landsréttur birt 25. nóvember 2022

412/2021

Íslenska ríkið (Ólafur Helgi Árnason lögmaður) gegn A (Páll Kristjánsson lögmaður)

A höfðaði mál til heimtu bóta vegna gæsluvarðhalds sem hann var látinn sæta. Ágreiningur málsins laut að því hvort A hefði verið látinn sæta ólögmætri einangrunarvist og önnur réttindi hans, sem gæsluvarðhaldsfanga, verið skert með því að hann var ekki færður beint í fangelsið á Hólmsheiði eftir úrskurð um að hann sætti gæsluvarðhaldi heldur þess í stað verið vistaður í fangaklefa á lögreglustöð í tæpa 21 klukkustund. Í dómi Landsréttar kom fram að játa yrði lögreglu ákveðið svigrúm til að vista gæsluvarðhaldsfanga í skamman tíma í fangageymslum sínum. Taldi Landsréttur að ekki yrði annað séð en að tilefni þeirrar ákvörðunar að vista A í fangageymslu lögreglunnar hefði verið lögmætt. Þá varð ekki ráðið af gögnum málsins að aðstæður í fangaklefa lögreglustöðvarinnar hefðu verið með þeim hætti að óheimilt hefði verið að vista A þar. Þótt A hefði, eðli máls samkvæmt, verið einn í læstum klefa meðan á vistun hans stóð yrði vistuninni, í ljósi þess stutta tíma sem hún stóð yfir, ekki jafnað til einangrunarvistar í skilningi 2. mgr. 98. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, auk þess sem um þriðjungur vistunartíma A hefði verið yfir nótt þegar fangar í fangelsinu á Hólmsheiði væru einnig læstir inni einir í klefum sínum hefði ákvörðun ekki verið tekin um annað, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga. A hefði ekki borið nein atriði varðandi framkvæmd gæsluvarðhaldsins undir dómara, svo sem honum hefði verið heimilt samkvæmt 5. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, og þá væru engar upplýsingar í málinu um að A hefði óskað eftir og verið synjað um að neyta þeirra réttinda sem honum væru tryggð í a- til f-liðum 1. mgr. sömu lagagreinar. Samkvæmt framansögðu var Í sýknað af kröfum A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. júlí 2021

S-3639/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Gheorghe Nicolae Zamacau (Einar Oddur Sigurðsson lögmaður)

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og sérrefsilagabrot. Gert að sæta fangelsi í fimm mánuði. Til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem ákærði sætti vegna málsins. Þá var ákærða gert að greiða bótakröfur og munir gerðir upptækir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. júní 2021

S-8558/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Leon Augustus Baptiste (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og sérrefsilagabrot. Gert að sæta fangelsi í 90 daga. Til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhaldsvist sem ákærði sætti vegna málsins. Ákærði var sviptur ökurétti í 5 ár. Fíkniefni og vopn gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. maí 2021

E-104/2020

A (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Stefnandi var úrskurðaður í gæsluvarðhald án einangrunar. Eftir að úrskurðurinn var kveðinn upp var hann áfram vistaður í fangageymslu í tæpan sólarhring, en síðan fluttur í fangelsið á Hólmsheiði. Fallist var á bætur vegna ólögmætra takmarkana á rétti hans sem gæsluvarðhaldsfanga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. september 2019

S-449/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi (Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, brot gegn nálgunarbanni og umferðarlagabrot. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti í 20 mánuði. Til frádráttar dæmdri fangelsisvist kom gæsluvarðhaldsvist ákærða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. maí 2019

E-2558/2018

A (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Miskabætur vegna gæsluvarðhalds.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. febrúar 2019

E-1270/2017

A (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Stefnandi var handtekinn 6. júlí 2014 og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna frá 6. júlí 2014 til 18. júlí 2014. Við handtökuna átti stefnandi eftir að afplána 600 daga af eldri fangelsisdómi. Var honum í kjölfarið gert að afplána eftirstöðvar þeirrar refsingar. Lauk afplánun stefnanda 9. mars 2016. Ákæra á hendur honum var aftur á móti ekki gefin út fyrr en 6. maí 2016. Fór svo að stefnandi var sýknaður af þeirri ákæru. Stefnandi taldi sig hafa verið sviptan frelsi að ósekju í 12 daga meðan á handtöku og síðar gæsluvarðhaldi stóð og síðan í 600 daga til viðbótar þegar hann afplánaði eftirstöðvar fyrrgreinds fangelsisdóms. Þetta hefði haft í för með sér tjón sem hann gerði kröfu um að fá bætt úr hendi stefnda íslenska ríkisins með miskabótum annars vegar og skaðabótum vegna meints tekjutaps hins vegar. Fallist var á það með stefnda að málatilbúnaður stefnanda um meint tekjutap hans væri ótrúverðugur og stangaðist auk þess verulega á við upplýsingar sem hann hefði sjálfur lagt fram í málinu um heilsufar sitt og atvinnusögu, en stefnandi hefði ekki útskýrt það misræmi með nokkrum hætti. Teldist því ósannað að stefnandi hefði orðið fyrir því tekjutapi sem byggði hluta af dómkröfum sínum á. Þegar af þeirri ástæðu var stefndi sýknaður af umræddum kröfum stefnanda. Hvað varðaði það álitaefni hvort stefnandi ætti rétt til miskabóta vegna þeirrar frelsissviptingar sem hann sætti taldi dómurinn að stefnandi ætti rétt til slíkra bóta, en að hann hefði sýnt af sér eigin sök sem réttlætti að miskabætur til hans yrðu lækkaðar. Aftur á móti yrði ekki fram hjá því litið að verulegar og óútskýrðar tafir urðu á útgáfu ákæru í málinu eftir að rannsókn lögreglu lauk, en í þeim efnum yrði ekki sakast við stefnanda. Á grundvelli 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar voru stefnanda því dæmdar miskabætur úr hendi stefnanda vegna frelsissviptingar í 103 daga, en að öðru leyti var talið stefnandi þyrfti að bera tjón sitt sjálfur. Þóttu miskabætur hæfilega ákveðnar 3.605.000 krónur með nánar tilgreindum vöxtum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2018

E-133/2018

Í (Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Stefnandi, sem sat í gæsluvarðhaldi og einangrun í tólf daga krafðist miskabóta. Að mati dómsins var hún leidd fyrir dómara innan tímamarka 94. gr. laga nr. 88/2008. Hún var talin hafa stuðlað að því að hún var sett í gæsluvarðhald. Hún var ekki talin hafa setið lengur í gæsluvarðhaldi en ástæða var til. Meðferð hennar á lögreglustöð, þar sem hún var vistuð í þrjá sólarhringa, var ekki talin ómannúðleg eða vanvirðandi í skilningi 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. september 2018

S-135/2018

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn Vali Lýðssyni (Ólafur Björnsson lögmaður)

Ákærði dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir stórhættulega og vísvitandi líkamsárás sem leiddi til dauða bróður hans. Honum var einnig gert að greiða fjórum börnum hins látna miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. september 2018

E-2873/2017

A (Ólafur V. Thordersen lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)

Sýkna af miskabótakröfu vegna þvingunarráðstafana í þágu rannsóknar sakamáls. Málskostnaður felldur niður.

Landsréttur birt 16. júlí 2018

582/2018

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir settur saksóknari) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi kröfu X um að hann fengi leyfi fyrir heimsóknum fóstursonar síns meðan á gæsluvarðhaldsvist hans stæði, en fangelsismálayfirvöld höfðu synjað beiðni hans þess efnis. Í úrskurði Landsréttar kom meðal annars fram að í 5. mgr. 99. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, væri gæsluvarðhaldsfanga veitt heimild til að bera atriði sem varðaði gæsluvarðhaldsvist undir dómara samkvæmt 102. gr. sömu laga. Heimsóknarbann fangelsismálayfirvalda varðaði gæsluvarðhaldsvist X og væri honum því heimilt að bera þá ákvörðun undir dómstóla samkvæmt þeim fyrirmælum laga nr. 88/2008, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar Íslands 3. júlí 2001 í málinu nr. 246/2001. Hinn kærði úrskurður var því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. janúar 2018

S-608/2017

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bjarka Frey Kristinssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og auðgunarbrot. Ákærði játaði brot sín.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. júní 2017

S-350/2017

Ákæruvaldið (Katrín Ó. Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Erlingi Einarssyni (Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir rán, frelsissviptingu, brot gegn valdstjórninni, fíkniefnalagabrot, hótanir, umferðarlagabrot og gripdeild. Ákærði játaði brot sín og var til þess litið við ákvörðun refsingar en til þyngingar horfði að sum brot hans voru ítrekuð. Til frádráttar refsivistinni kom gæsluvarhald sem hann hefur sætt frá því í apríl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. mars 2017

E-1106/2017

E, sem sýknaður hafði verið af öllum kröfum ákæruvaldsins með endanlegum dómi, voru dæmdar bætur fyrir miska og líkamstjón vegna handtöku, húsleitar og gæsluvarðhalds í rúma fimm mánuði sem hann hafði sætt undir rannsókn málsins og rekstri þess fyrir héraðsdómi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. ágúst 2016

S-191/2016

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Þór Magnússyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir líkamsárás, þjófnað, rán og nytjastuld og gert að sæta 18 mánaða fangelsi. Voru 15 mánuðir af refsingunni bundnir skilorði til þriggja ára. Með brotunum rauf ákærði skilorð samkvæmt dómi frá 2016, eitt eitt brotanna var hegningarauki við dóm frá 2015.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. júní 2016

S-218/2016

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Cipriano Isaias Reyes Rodriguez (Bjarni Hauksson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir innflutning á 371,4 g af kókaíni sem falið var í gólfkylfum sem ákærði flutti til landsins þegar hann kom hingað með flugi frá Mexíkó.

Héraðsdómur Reykjaness birt 4. maí 2016

S-21/2016

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason aðstoðarsaksóknari) gegn Axel Karli Gíslasyni (Jóhannes Ásgeirsson hrl), Ásgeiri Heiðari Stefánssyni (Þorgils Þorgilsson hdl) og Mikael Má Pálssyni (Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu sakfelldir fyrir rán o.fl. brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.

Hleð fleiri dómum…