Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-3133/2024:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Önnu Kiluk

(Elisabeth Matthíasdóttir lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Gæsluvarðhaldsvist. Upptaka.

Ákærða dæmd í fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 15. janúar 2025, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru útgefinni 5. desember 2024, á hendur Önnu Kiluk, kt. 000000-0000, […], […]; „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa, föstudaginn 25. október 2024, staðið að innflutningi á samtals 989 töflum af oxycontin 80 mg (virkt efni: oxycodonum) og 1 töflu af contalgin 200 mg (virkt efni: morphinum), ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærða til Íslands sem farþegi með flugi […], frá Varsjá, Póllandi, til Keflavíkurflugvallar, falin í brjóstahaldara sem ákærða klæddist.

Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á ofangreindum 989 töflum af oxycontin 80 mg og 1 töflu af contalgin 200 mg, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærða mætti við þingfestingu málsins 15. janúar sl., játaði brot sitt án undandráttar og samþykkti upptökukröfu. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærða krefst þess í málinu að henni verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að gæsluvarðhald sem hún sætti frá 25. október 2024 til 1. nóvember 2024 komi til frádráttar dæmdri refsingu. Þá krefst verjandi hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Með skýlausri játningu ákærðu, sem fær stoð í framlögðum gögnum, þykir sannað að ákærða hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærða er fædd í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði ákærðu hefur hún ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi. Verður litið til þess við ákvörðun refsingar og skýlausrar játningar ákærðu fyrir dómi. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að ákærða flutti umtalsvert magn af hættulegu fíkniefni til landsins ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Að öllu framangreindu virtu, atviku máls og 1., 4., 5., og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærða sætti frá 25. október 2024 til 1. nóvember 2024 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga.

Þá sæti ákærða upptöku fíkniefna sem haldlögð voru af lögreglu við rannsókn málsins líkt og nánar greinir í dómsorði.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærðu til að greiða allan sakarkostnað, alls 770.580 krónur. Um er að ræða kostnað vegna matsgerðar rannsóknarstofu Háskóla Íslands, þóknun skipaðs verjanda ákærðu Elisabeth Matthíasdóttur lögmanns á rannsóknarstigi og fyrir dómi sem þykir hæfilega ákveðin með hliðsjón af tímaskýrslu, reglum dómstólasýslunnar nr. 1/2025, eðli og umfangi málsins 669.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og aksturskostnað lögmannsins 38.634 krónur.

Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærða, Anna Kiluk, sæti fangelsi í fimmtán mánuði. Til frádráttar þeirri refsingu komi gæsluvarðhald sem ákærða sætti frá 25. október 2024 til 1. nóvember 2024 að fullri dagatölu.

Ákærða sæti upptöku á 989 töflum af oxycontin 80 mg og 1 töflu af contalgin 200 mg.

Ákærða greiði 770.580 í sakarkostnað, þar með talda 669.600 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Elisabeth Matthíasdóttur lögmanns að meðtöldum virðisaukaskatti og 38.634 krónur í aksturskostnað lögmannsins.

Erna Björt Árnadóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.76. gr.173. gr. a
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 6. mgr. 5. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.