Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

39 dómar fundust

Lykilorð: Þóknun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2024

E-7749/2023

A (Svavar Daðason lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Elín Hrefna Ólafsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist miskabóta úr hendi stefndu vegna þeirrar ráðstöfunar barnaverndar stefndu að vista börn stefnanda utan heimilis hennar. Ekki var fallist á kröfu stefnanda um miskabætur þar sem ráðstöfunin var ekki talin hafa falið í sér ólögmæta meingerð í skilningi b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Stefnandi naut gjafsóknar í málinu. Við ákvörðun þóknunar lögmanns hennar var talið að tímagjaldið sem lögmaðurinn miðaði við gengi gegn dómvenju um hvað hæfilegt teldist í gjafsóknarmálum og var honum því ákvörðuð umtalsvert lægri þóknun en krafist var.

Landsréttur birt 20. október 2023

288/2022

Ísfélag hf (Finnur Magnússon lögmaður) gegn Þorgeiri Pálssyni (Helga Björg Jónsdóttir lögmaður)

Þ höfðaði mál á hendur Í hf. og krafði það um greiðslu á 5.952.000 krónum. Ágreiningur aðila laut að því hvort Þ ætti rétt á þóknun úr hendi Í hf. vegna milligöngu Þ í tengslum við möguleg kaup Í hf. á aflaheimildum í hestamakríl af namibísku félagi árið 2017. Af hálfu Þ var byggt á því að samningur hefði komist á milli aðila um milligönguna og því ætti hann rétt á þóknun vegna þeirra ráðgjafarstarfa. Í hf. mótmælti því að kröfuréttarsamband hefði stofnast milli aðila þannig að skapast hefði réttur Þ til þóknunar sem hann krafðist. Með dómi héraðsdóms var fallist á að Þ ætti rétt til þóknunar að fjárhæð 2.400.0000 krónur auk virðisaukaskatts. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um að stofnast hefði til kröfuréttarsambands milli aðila og að krafa Þ á hendur Í hf. væri ófyrnd. Um fjárhæð kröfu Þ vísaði Landsréttur til þess að óumdeilt væri að Þ hélt ekki tímaskýrslur vegna vinnu sinnar fyrir Í hf. Þá hefði Þ ekki lagt fram nein gögn sem vörpuðu ljósi á það hversu miklum tíma hann varði í raun í verkefnið. Í þessu ljósi og með vísan til niðurstöðu matsgerðar dómkvadds matsmanns hefði Þ ekki fært fyrir því fullnægjandi rök að hann hefði varið meira en 20% af vinnutíma sínum í verkefnið eða að miða ætti við hærra viðmið en 800.000 krónur á mánuði, en það viðmið miðaði samkvæmt matsgerðinni við eðli verkefnisins. Var því fallist á að Í hf. yrði gert að greiða gagnáfrýjanda 2.400.000 krónur auk virðisaukaskatts en fyrir lá að um virðisaukaskattskylda þjónustu var að ræða. Fékk sú niðurstaða jafnframt samsvörun í þeim hugmyndum sem aðilar nefndu í samskiptum sínum í september 2017. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms.

Landsréttur birt 6. október 2023

275/2022

GBV 17 ehf og M9 ehf (Lúðvík Bergvinsson lögmaður) gegn Fasteignasölunni Tröð ehf (Björn Jóhannesson lögmaður)

F ehf. og Á ehf., félag í sameiginlegri eigu G ehf. og M ehf., gerðu samning um að F ehf. myndi annast söluþjónustu í tengslum við sölu á lóð Á ehf. að Óseyrarbraut 25 í Hafnarfirði, en samkvæmt samningnum átti F ehf. rétt á 1,5%-2% þóknun sem tæki mið af verðmæti fasteignarinnar. Snemma í viðræðum við kaupanda var ákveðið að selja þess í stað allt hlutafé í Á ehf. Í söluferlinu kom upp ágreiningur milli F ehf. annars vegar og G ehf. og M ehf. hins vegar um þóknun, en F ehf. taldi að aðilar hefðu samið um að til viðbótar við söluþóknun samkvæmt fyrrgreindum samningi hefði komist á samkomulag um að F ehf. fengi í sinn hlut viðbótarþóknun vegna virðisaukaskattsinneignar Á ehf. sem næmi helmingi mögulegrar endurgreiðslu virðisaukaskatts. Var ekki fallist á það af hálfu G ehf. og M ehf. sem höfnuðu frekara vinnuframlagi F ehf. og fólu öðrum aðila að ljúka sölunni með undirritun kaupsamnings við E ehf. um alla hluti í Á ehf. Höfðaði F ehf. því mál á hendur G ehf. og M ehf. og krafðist bæði þóknunar á grundvelli söluþjónustusamningsins og viðbótarþóknunar vegna virðisaukaskattsinneignar. G ehf. og M ehf. kröfðust sýknu á grundvelli aðildarskorts þar sem enginn samningur hefði legið fyrir um söluþjónustu milli F ehf. annars vegar og G ehf. og M ehf. hins vegar, heldur eingöngu við Á ehf og að stjórnarformann Á ehf., sem var jafnframt fyrirsvarsmaður G ehf., hefði skort umboð til að skuldbinda M ehf. Þá höfnuðu G ehf. og M ehf. því að tekist hefði samkomulag um þóknun vegna mögulegrar endurgreiðslu á virðisaukaskatti. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að F ehf. hefði unnið tilboð sem voru undirrituð af fyrirsvarsmönnum G ehf. og M ehf. og annast milligöngu um að koma á kaupsamningi um alla hluti í Á ehf. Jafnframt hefði aldrei verið dregið í efa að stjórnarformaður Á ehf. hefði heimild til að koma fram fyrir hönd bæði G ehf. og M ehf. gagnvart F ehf. Hefðu G ehf. og M ehf. þannig í verki falið F ehf. að annast sölu á öllum hlutum í Á ehf. og skuldbundið sig til að greiða F ehf. þóknun fyrir þá þjónustu hans sem að óbreyttu tæki mið af því sem þegar hefði verið samið um. Á hinn bóginn var það niðurstaða Landsréttar að ekki hefði legið fyrir viðhlítandi sönnun þess að G ehf. og M ehf. hefðu undirgengist skyldu til að greiða F ehf. hina umkröfðu viðbótarþóknun. Var G ehf. og M ehf. því einungis gert að greiða F ehf. þóknun samkvæmt söluþjónustusamningi.

Hæstiréttur birt 31. ágúst 2022

41/2022

A og B (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður) gegn C (Gizur Bergsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem leyst var úr ágreiningi A og B annars vegar og C hins vegar um þóknun C sem skiptastjóra í dánarbúi D. Í dómi Hæstaréttar var fallist á niðurstöðu hins kærða úrskurðar að miða bæri þóknun C við 25.900 krónur fyrir hverja unna vinnustund. Þá var talið að A og B hefðu glatað rétti til að andmæla þóknun C frá upphafi skipta þar til loka október 2018 en þau voru talin geta haft uppi andmæli við þóknun hans frá þeim tíma. Um ágreining um fjölda vinnustunda C við skiptin komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að tímaskráning hans hefði verið úr hófi fram. Var þóknun hans því lækkuð vegna tímabilsins og var hún í heild sinni hæfilega metin að álitum. Þá var C gert að greiða A og B málskostnað í héraði og kærumálskostnað fyrir Landsrétti en kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti var ekki dæmdur.

Landsréttur birt 24. maí 2022

201/2022

A (Gizur Bergsteinsson lögmaður) gegn B og C (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Kærður var úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem fallist var á kröfu B og C um að lækka þóknun A, skiptastjóra í dánarbúi D, úr 13.869.090 krónum með virðisaukaskatti í 9.963.989 krónur með virðisaukaskatti. Fyrir Landsrétti krafðist A þess að staðfest yrði þóknun hans sem skiptastjóri í fyrrnefndu dánarbúi. B og C kærðu úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti og kröfðust þess aðallega að þóknun A yrði lækkuð í 5.146.589 krónur með virðisaukaskatti. Í úrskurði Landsréttar var fallist á þá niðurstöðu héraðsdóms að taka bæri mið af því tímagjaldi sem A kynnti í upphafi við ákvörðun þóknunar hans. Aftur á móti féllst Landsréttur ekki á það með héraðsdómi að B og C hefðu sökum tómlætis glatað rétti sínum til að véfengja tímaskráningar og var því litið svo á að allt skiptatímabilið væri undir í málinu. Taldi Landsréttur að þegar fyrirliggjandi gögn og verkefni dánarbúsins væru virt heildstætt hefði B og C tekist að sýna fram á að fjöldi vinnustunda í yfirliti A hefði verið umtalsvert meiri en þau máttu vænta. Var því fallist á að lækka þóknun A, og var hún ákveðin að álitum 10.000.000 krónur með virðisaukaskatti.

Landsréttur birt 17. febrúar 2022

72/2022

A (Björgvin Halldór Björnsson lögmaður) gegn velferðarsviði Reykjanesbæjar (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður)
Málaflokkur: Lögræðismál

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu A um að felld yrði úr gildi ákvörðun yfirlæknis um að hann skyldi sæta þvingaðri lyfjagjöf á grundvelli 2. mgr. 28. gr. lögræðislaga nr. 71/1997.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. nóvember 2020

E-5990/2020

P (Skúli Sveinsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)
Lykilorð: Lögmaður. Þóknun.

Stefnandi, sem talar hvorki íslensku né ensku, hafði lent í árekstri og bifreið hans skemmst. Tryggingafélagið, sem bar ábyrgð á tjóni hans, taldi ekki borga sig að gera við bílinn og bauðst til að greiða stefnanda andvirði bifreiðarinnar. Stefnandi samþykkti fjárhæðina og tryggingarfélagið greiddi honum hana örskömmu síðar. Tryggingafélagið féllst hins vegar ekki á að greiða stefnanda kostnað vegna aðstoðar lögmanns sem hann naut í samskiptum við tryggingafélagið. Stefnandi höfðaði því mál til þess að fá lögmannskostnaðinn greiddan. Dómurinn taldi dómkröfu stefnanda þannig orðaða að hann hefði ekki lögvarða hagsmuni af því að fá henni svarað. Því var kröfu hans vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. október 2019

E-7/2019

Leigulistinn ehf (Árni Freyr Árnason hdl) gegn Regus Group Services Ltd Sigvaldi Fannar Jónsson

Vísað var frá dómi kröfu stefnanda um þóknun fyrir ráðgjafaþjónustu sem byggði á samningi sem aðilar hans höfðu samið um að félli undir ensk lög og lögsögu enskra dómstóla. Stefndi var sýknaður af kröfu um þóknun fyrir leigumiðlun stefnanda, sem ekki leiddi til þess að leigusamningur kæmist á, svo sem talið var áskilið í samkomulagi aðila um þóknun.

Hæstiréttur birt 12. júní 2019

20/2019

Þrotabú Saga Capital hf (Þorsteinn Einarsson lögmaður) gegn F fasteignafélagi ehf (Guðmundur Ingvi Sigurðsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem ógilt var ákvörðun kröfuhafafundar, sem haldinn var við slitameðferð á SC hf. í apríl 2016, um greiðslu þóknunar til slitastjórnar félagsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að samkvæmt 128. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. væri unnt við gjaldþrotaskipti að andmæla á skiptafundi réttmæti þóknunar, sem skiptastjóri teldi sig eiga tilkall til vegna starfa sinna, og leita eftir atvikum dómsúrlausnar eftir 171. gr. sömu laga um ágreining um það efni. Á hinn bóginn leiddu ákvæði laga nr. 21/1991 og 161/2002 um fjármálafyrirtæki ekki til þess, þótt slitameðferð á félagi sem starfrækt hefur fjármálafyrirtæki væri undanfari gjaldþrotaskipta á því, að skiptastjóri eða skiptafundur í þrotabúinu yrði fremur en endranær bær um að taka ákvörðun um réttmæti þóknunar, sem fyrrum fyrirsvarsmaður félagsins, eftir atvikum slitastjórnarmaður, hefði látið greiða sér fyrir störf sín í þágu þess áður en til gjaldþrotaskiptanna hefði komið. Talið var að úr réttmæti slíkrar aðgerðar yrði fráleitt leyst í dómsmáli, sem rekið væri eftir ákvæðum 5. þáttar laga nr. 21/1991, heldur yrði þrotabú félagsins, vildi það ekki una við slíka ráðstöfun, að leita riftunar á henni eftir reglum XX. kafla laganna og endurheimtu á greiðslunni. Engin stoð væri fyrir því í fyrrgreindum lögum að reka mál í þeim búningi sem varnaraðili kaus að klæða ágreining um umrædda þóknun. Þegar af þeirri ástæðu var málinu vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 29. mars 2019

425/2018

Atvinnueign ehf (Skarphéðinn Pétursson lögmaður) gegn Reitum – skrifstofum ehf, til vara, Guðmundi Ásgeiri Björnssyni og Þorvaldi Árnasyni (Halldór Þorsteinn Birgisson lögmaður)
Lykilorð: Fasteignasala. Þóknun. Umboð.

Fasteignasalan A ehf. og Á ehf. gerðu með sér samning um einkasölu A ehf. á fasteigninni Álftamýri 1-5 í febrúar 2015 en fasteignin var eina eign Á ehf. Í ársbyrjun 2016 keypti R IX ehf. alla hluti í Á ehf. fyrir 680.000.000 króna án milligöngu fasteignasölunnar og greindi A ehf. og R IX ehf. í kjölfarið á um rétt A ehf. til sölulauna vegna sölunnar. Í maí 2017 tók RS ehf. svo við réttindum og skyldum R IX ehf. vegna fasteignarinnar. Landsréttur hafnaði kröfu A ehf. um ómerkingu héraðsdóms á grundvelli þess málatilbúnaðar að hinn áfrýjaði dómur kvæði á um réttindi til handa aðila sem ekki hefði verið til að lögum þegar dómurinn hefði verið kveðinn upp. Þótt R IX ehf. hefði vanrækt að upplýsa dómara málsins og gagnaðila um að nýr aðili hefði tekið yfir þá hagsmuni sem deilt væri um í málinu og formleg aðilaskipti hefðu af þeim sökum ekki orðið í málinu í héraði varnarmegin, gæti það eins og ástatt væri ekki varðað ómerkingu héraðsdóms, sbr. 1. mgr. 23. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Að því er varðaði ágreining málsaðila um söluþóknun var með vísan til samskipta aðila ráðið að söluumboð A ehf. hefði hvort tveggja náð til þess að selja fasteignina Álftamýri 1-5 og félagið Á ehf., þrátt fyrir að í umboðinu væri aðeins rætt um sölu á fasteigninni. Taldi Landsréttur að það stæði RS ehf. nær að sanna að áhugi félagsins á að eignast fasteignina hefði vaknað, óháð kynningu starfsmanns A ehf. á fasteigninni og að hann hefði ekki átt þátt í að viðskiptin komust á. RS ehf. hefði ekki lánast sönnun um það. Á hinn bóginn var ekki talið að A ehf. ætti kröfu til óskertrar 1,5% þóknunar af söluverði fasteignarinnar úr hendi RS ehf., eins og kveðið hafði verið á um í söluumboðinu, heldur taldi rétturinn í ljósi atvika, þar á meðal þeirrar vinnu sem A ehf. hefði innt af hendi í söluferlinu, A ehf. eiga kröfu til um helmings þeirrar þóknunar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. janúar 2018

S-608/2017

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bjarka Frey Kristinssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og auðgunarbrot. Ákærði játaði brot sín.

Hæstiréttur birt 3. apríl 2017

179/2017

Eygló Sif Steindórsdóttir (Grímur Sigurðarson hrl) gegn Landsbankanum hf (enginn)

E krafðist þess að málflutningsþóknun lögmanns hennar vegna reksturs máls E og L hf. í héraði yrði hækkuð, en málinu hafði lokið með dómsátt og ákvörðun um málskostnað verið lögð í úrskurð héraðsdóms, sbr. 2. mgr. 108. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Með vísan til yfirlits yfir unna tíma lögmanns E var fallist á að hækka þóknunina úr 730.000 krónum í 900.000 krónur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. nóvember 2016

S-350/2016

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Gunnari Bjarna Kristjánssyni (Kristrún Elsa Harðardóttir hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. október 2016

S-239/2016

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ragnari Guðmundi Ragnarssyni (Eva Dóra Kolbrúnardóttir hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnaði og umferðarlagabrot samkvæmt tveimur ákærum. Þar af framdi hann sum þeirra brota fyrir uppsögu dóms sem hann hlaut 18. mars á þessu ári vegna þjófnaða og hylmingar og var að því leyti gerður hegningarauki, en með dómnum 18. mars síðastliðinn var hann dæmdur í nítíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Með öðrum þeim brotum sem hann var núna sakfelldur fyrir, rauf hann skilyrði fyrir frestun á fullnustu refsingar dómsins frá 18. mars síðastliðnum og var refsing í því máli því tekin upp og dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var nú gerð. Ákærði var dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til þriggja ára, greiða 450.000 króna sekt til ríkissjóðs og sæta sviptingu ökuréttar í þrjú ár frá birtingu dómsins að telja.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. september 2016

S-278/2016

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson saksóknarfulltrúi) gegn Rúnari Þorsteinssyni (Stefán Karl Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. júní 2016

S-148/2016

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Vigni Þór Liljusyni (Steinbergur Finnbogason hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 75 daga, en 30 dögum þeirrar refsingar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá skyldi hann sæta sviptingu ökuréttar ævilangt frá birtingu dómsins að telja og upptöku á fíkniefnum og sterum.

Hæstiréttur birt 24. ágúst 2015

434/2015

Kærumál Kæra Matsgerð Þóknun (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn M (Helgi Jóhannesson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Kæra. Matsgerð. Þóknun.

Kærður var úrskurður héraðsdóms um þóknun til handa M vegna vinnu hans við matsgerð. Kæra M til Hæstaréttar var talin fullnægja skilyrðum 3. málsliðar 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 og var hinn kærði úrskurður staðfestur.

Hæstiréttur birt 24. apríl 2013

225/2013

Runólfur Oddsson (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Hjalta Sigmundssyni og Hálfdani Þóri Markússyni (enginn)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

R kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var að kveða upp úrskurð um hæfilega þóknun til matsmanna vegna yfirmatsgerðar sem R hafði óskað eftir í tengslum við mál sem hann hafði höfðað gegn V hf. Í málinu lá fyrir að R hafði ekki lagt fram tryggingu fyrir greiðslu á þóknun matsmanna sem héraðsdómari hafði tekið ákvörðun um á grundvelli síðari málsliðar 2. mgr. 63. gr., sbr. 64. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í dómi Hæstaréttar kom fram að héraðsdómari hefði að kröfu R átt að leiða ágreining um trygginguna til lykta með úrskurði skv. 1. mgr. og 2. mgr. 112. gr., sbr. c. lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991. Þar sem það var ekki gert var talið að ákvörðunin væri ekki skuldbindandi fyrir R. Hins vegar þótti ljóst að matsmönnum yrði ekki gert skylt að afhenda R yfirmatsgerðina eða leggja hana fyrir dóm, nema R greiddi þeim það endurgjald sem þeir hefðu áskilið sér eða setti viðhlítandi tryggingu fyrir því. Að öðrum kosti bæri þeim engin skylda til að láta matsgerðina af hendi. Mótmæli R við því endurgjaldi sem matsmenn færu fram á og krafa hans um að héraðsdómari úrskurðaði um hæfilega þóknun á grundvelli 1. mgr. 66. gr. sömu laga væri öðrum þræði á því reist að þeir færu fram á greiðslu fyrir meira vinnuframlag en matsbeiðandi hefði gefið tilefni til. Var fallist á það með héraðsdómara að ekki væri unnt að taka kröfuna um þóknun matsmanna til efnislegrar úrlausnar, nema matsgerðin yrði lögð fyrir dóm, en það væri undir R komið sem matsbeiðanda hvort svo yrði gert. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. apríl 2013

E-1861/2012

Sportköfunarskóli Íslands slf (Bjarni Þór Óskarsson hrl) gegn Straumhvarfi hf (Árni Helgason hdl)
Lykilorð: Kaupverð. Samningur. Þóknun.

Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda fjárhæð reiknings vegna viðgerða á köfunarbúningum. Ekki hafði verið samið fyrirfram um endurgjald fyrir þjónustuna. Ekki var fallist á með stefnda að reikningsfjárhæðin væri hærri en næmi gangverði fyrir sambærilega þjónustu eða telja mætti hana ósanngjarna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2012

E-2601/2011

Arkiteó ehf (Hulda Rós Rúriksdóttir hrl) gegn J.E. Skjanna, byggingaverktökum ehf (Guðrún Bergsteinsdóttir hdl)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um þóknun vegna vinnu að hönnunartillögu. Ekki var talið sannað, gegn andmælum stefnda, að samið hafi verið um að stefndi skyldi greiða fyrir tillöguna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 24. júní 2009

S-294/2009

Ákæruvaldið (Linda Ósk Wiium ftr) gegn Rodolfo Sepulveda Solar (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákært fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Eingöngu var um niðurbrotsefni í þvagi að ræða. Ákærði hafði fyrir útgáfu ákæru reynt að ljúka málinu hjá lögreglustjóra með sátt en gerði þá kröfu að fallið yrði frá kröfu um sviptingu ökuréttar þar sem hann uppfyllti skilyrði til þess. Var því hafnað og ákæra gefin út. Ákærði gerði sömu kröfur fyrir dómi og var sú krafa tekin til greina. Var þóknun verjanda lögð á ríkissjóð.

Hæstiréttur birt 18. júní 2009

669/2008

Fasteigna- og fyrirtækjasalan ehf (Valgeir Kristinsson hrl) gegn Dímoni Línu ehf (Anton Björn Markússon hrl)
Lykilorð: Fasteignasala. Þóknun.

Fasteignasalan F ehf. og D ehf. gerðu með sér samning sem fól í sér að fasteign í eigu D ehf. var sett í einkasölu hjá F ehf. D ehf. seldi eignina án milligöngu F ehf. F ehf. taldi brotið gegn samningi um einkasölu og krafðist 2% af söluverði eignarinnar, auk alls útlagðs kostnaðar. Talið var að með einkasölusamningnum hefði D ehf. skuldbundið sig til að bjóða ekki eignina til sölu hjá öðrum fasteignasala. Ákvæðið yrði ekki skýrt svo að það ætti við ef D ehf. seldi eignina án milligöngu löggilts fasteignasala. Var því hafnað að D ehf. hefði brotið gegn samningnum. Þar sem krafa um útlagðan kostnað byggðist eingöngu á sömu heimild og krafa um bætur var þeirri kröfu einnig hafnað. Var D ehf. því sýknað af kröfu F ehf.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. desember 2008

E-1305/2008

Kontakt ehf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Jóhanni Magnússyni (Guðmundur Siemsen hdl)
Lykilorð: Þóknun. Skuldamál.

Deilt var um hvort samningur um þóknun vegna milligöngu stefnanda um kaup stefnda á fyrirtæki hefði komist á. Talið var sannað að slíkur samningur hefði komist á og voru kröfur stefnanda teknar til greina.

Hæstiréttur birt 16. ágúst 2006

371/2006

Birgir Jónsson og Magnús Axelsson (Sigmundur Hannesson hrl) gegn Ómari Antonssyni (Karl Axelsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Matsmenn. Þóknun.

Aðila greindi á um þóknun handa B og M vegna starfa þeirra sem matsmanna, sem Ó fékk þá dómkvadda til. Samkvæmt 2. mgr. 63. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála var talið að greiða ætti matsmanni hæfileg laun fyrir störf hans, en ekki áskilið endurgjald sem kynni að miðast við rekstur hans. Af þeim sökum var því hafnað að hæfileg þóknun handa B og M ætti að fela í sér annað en laun fyrir vinnu við matið. Af sömu ástæðu var ekki talið hægt að leggja til grundvallar endurgjald sem sérfræðingar áskilja sér, enda væri tekið tillit til rekstrarkostnaðar við ákvörðun þess. Talið var að hæfilegt tímagjald fyrir vinnu B og M væri 6.000 krónur og var þóknun þeirra ákveðin með tilliti til þess.