Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

46 dómar fundust

Lykilorð: Lögmenn

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. maí 2026 kl. 12:55

E-5486/2025

Kristvina Meekosha Magnúsdóttir og Guðmundur Pétur Meekosha (Kristján Þorbergsson lögmaður) gegn Landslögum slf., Ívari Pálssyni og Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Stefnendur beindu skaðabótakröfu að lögmanni, lögmannsstofu og tryggingafélagi þeirra á grundvelli starfsábyrgðartryggingar. Var krafan reist á því að lögmanninum og fulltrúa hans hefðu orðið á bótaskyld mistök við hagsmunagæslu stefnenda í öðru dómsmáli, þar sem þau höfðu verið dæmd til greiðslu bóta vegna galla á fasteign. Þegar af þeirri ástæðu að ekki var talið að skilyrðum sakarreglunnar um saknæma og ólögmæta háttsemi af hálfu lögmannanna væri fullnægt voru stefndu sýknaðir af öllum kröfum stefnenda.

Landsréttur birt 5. febrúar 2026

618/2024

Jakob Adolf Traustason (sjálfur) gegn Sigurði G. Guðjónssyni og SGG lögstofu ehf (Almar Þór Möller lögmaður)

Með dómi Hæstaréttar í janúar 2020 var fallist á með J að hann hefði eignast skaðabótakröfu á hendur hálfsystkinum sínum vegna ráðstöfunar á nánar tilgreindri landspildu. Systkinin voru aftur á móti sýknuð af kröfunni á grundvelli fyrningar. Mál þetta höfðaði J á hendur S og SGG lögstofu ehf. til heimtu skaðabóta fyrir það tjón sem hann varð fyrir vegna fyrningar kröfunnar. J byggði meðal annars á því að S hefði látið hjá líða að gagnstefna í máli sem hálfsystur hans höfðuðu gegn honum í janúar 2010, auk þess sem hann hélt því fram að S hefði fallið frá frávísunarkröfu í málinu án hans vitneskju og samþykkis. Í dómi Landsréttar kom fram að samkvæmt lögum um meðferð einkamála bæri að höfða gagnsök innan mánaðar frá þingfestingu aðalsakar. Þar sem S hefði fyrst komið að málinu að liðnum þeim fresti yrði hann þegar af þeirri ástæðu ekki talinn hafa sýnt af sér saknæmt athafnaleysi með því að höfða ekki gagnsök í því fyrir hönd J. Landsréttur taldi jafnframt að J hefði ekki sýnt fram á orsakatengsl milli þess að fallið var frá frávísunarkröfunni og þess tjóns sem hann varð fyrir þegar skaðabótakrafan fyrndist. Þá tók Landsréttur fram að J hefði haft fjögur ár til að rjúfa fyrningu kröfunnar en á því tímabili hefði S gætt hagsmuna J í rúma fimm mánuði eða allt þar til hann afturkallaði umboðs sitt til S. Frá því tímamarki hefði J enn haft tæp þrjú ár til að rjúfa fyrningu kröfunnar. Var það niðurstaða Landsréttar að J hefði ekki fært á það sönnur að S hefði á því tímabili sem hann gætti hagsmuna J sýnt af sér saknæma háttsemi sem leitt hefði til þessi að J höfðaði ekki mál um kröfuna fyrr en að liðnum fyrningarfresti hennar þannig að jafnframt mætti telja uppfyllt skilyrði skaðabótaréttar um orsakatengsl og sennilega afleiðingu. Staðfesti Landsréttur því niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sýknu S og SGG lögstofu ehf. af kröfum J.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2025

E-6101/2024

Ómar R. Valdimarsson (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar lögmanna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. maí 2025

E-690/2024

Höskuldur Þór Þórhallsson (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn Magnúsi H. Breiðfjörð Traustasyni (Flosi Hrafn Sigurðsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar úrskurðarnefndar lögmanna, þar sem stefnandi var látinn sæta áminningu. Var ekki fallist á með stefnanda að nefndinni hefði verið rétt að vísa málinu frá í heild sinni. Þó fallist hafi verið á með stefnanda að rétt hefði verið að veita honum andmælarétt varðandi atriði sem nefndin byggði á og varðaði meðferð málsins fyrir nefndinni, var ekki fallist á með stefnanda að það varðaði ógildindu úrskurðarins. Loks var það mat dómsins að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að nefndin hafi komist að efnislega rangri niðurstöðu.

Landsréttur birt 25. október 2024

559/2024

Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf (Gestur Gunnarsson lögmaður) gegn Eiðistorgi 1-9, húsfélagi (enginn)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var beiðni M ehf. um dómkvaðningu matsmanna. Í úrskurði Landsréttar voru tvær matsspurningar í matsbeiðni M ehf. ekki taldar nægilega skýrar og afmarkaðar til að svör við þeim hefðu þýðingu við efnislega úrlausn málsins og dómkvaðningu matsmanns hafnað varðandi þessar spurningar. Aðrar matsspurningar í matsbeiðni M ehf. voru hins vegar taldar fullnægja því skilyrði að hafa næg tengsl við sakarefni málsins og því fallist á kröfu M ehf. um að fá dómkvaddan matsmann til að svara þeim spurningum. Var því fallist á að umbeðin dómkvaðning færi fram er varðar tilgreindar spurningar í matsbeiðni M ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. október 2024

E-6428/2023

Kristinn Már Þorkelsson (Svavar Daðason lögmaður) gegn Snorra Steini Vidal (Gunnar Gíslason lögmaður)

Lögmaður dæmdur til að greiða manni miskabætur vegna þeirrar háttsemi fulltrúa lögmannsins að hljóðrita símtal við hann án þess að tilkynna honum um það í upphafi símtalsins að það yrði hljóðritað. Lögmaðurinn var sýknaður af kröfu mannsins um skaðabætur vegna tjóns, sem hann kvaðst hafa orðið fyrir, vegna kostnaðar við lögmannsaðstoð við rekstur mála fyrir Fjarskiptastofu og úrskurðarnefnd lögmanna.

Landsréttur birt 9. apríl 2024

191/2024

Héraðssaksóknari (Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari) gegn X hf. (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður) og Y (Óttar Pálsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu X og Y að H yrði gert skylt að aflétta haldi og eyða öllum afritum af nánar tilgreindum gögnum í átta töluliðum sem hald var lagt á samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 28. mars 2022. Með úrskurði Landsréttar var fallist á að skjöl í töluliðum 6 og 8 og að hluta til í töluliðum 2 og 3 hefðu falið í sér samskipti sem leggja yrði til grundvallar að féllu undir þagnarskyldu lögmanns samkvæmt 1. mgr. 22. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn, sbr. 2. mgr. 119. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Að öðru leyti var kröfu X og Y hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2022

E-2271/2022

A (Skúli Sveinsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Arna Pálsdóttir lögmaður)

Hafnað var kröfu stefnanda um að stefndi greiddi honum frekari kostnað vegna vinnu lögmanns við uppgjör skaðabóta. Talið var að sú þóknun sem stefndi hafði þegar greitt vegna starfa lögmannsins hafi verið hæfileg miðað við eðli og umfang málsins sem og þá hagsmuni sem voru í húfi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. september 2022

E-5643/2021

Íslenska lögfræðistofan Kringlan slf (Orri Heimisson lögmaður) gegn Passport Miðlun ehf (Einar Þór Gunnlaugsson fyrirsvarsmaður, sjálfur ólöglærður)
Lykilorð: Lögmenn. Skuldamál. Sönnun.

Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda skuld vegna lögmannsþjónustu, enda væri kröfunni réttilega beint að stefnda og hún studd samtímagögnum. Vinna að baki kröfunni var talin hluti aðalverks sem var þjónusta í þágu stefnda og var talið ósannað að stefndi hefði skorað á stefnda að bæta úr þjónustu sinni fyrr en eftir útgáfu reikninga.

Landsréttur birt 29. júní 2021

421/2021

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Arndís Anna K. Gunnarsdóttir lögmaður)

X kærði úrskurð héraðsdóms um að hann skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli laga nr. 80/2016 um útlendinga. Þar sem X hafði þegar verið fylgt úr landi var ljóst að það ástand sem leiddi af hinum kærða úrskurði væri þegar um garð gengið og var málinu vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 29. júní 2021

420/2021

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Arndís Anna K. Gunnarsdóttir lögmaður)

X kærði úrskurð héraðsdóms um að hann skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli laga nr. 80/2016 um útlendinga. Þar sem X hafði þegar verið fylgt úr landi var ljóst að það ástand sem leiddi af hinum kærða úrskurði væri þegar um garð gengið og var málinu vísað frá Landsrétti.

Landsréttur birt 29. júní 2021

419/2021

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Arndís Anna K. Gunnarsdóttir lögmaður)

X kærði úrskurð héraðsdóms um að hann skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli laga nr. 80/2016 um útlendinga. Þar sem X hafði þegar verið fylgt úr landi var ljóst að það ástand sem leiddi af hinum kærða úrskurði væri þegar um garð gengið og var málinu vísað frá Landsrétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. febrúar 2021

E-7428/2019

A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn B og C (til réttargæslu)

Því var hafnað að stefndi hefði sýnt af sér saknæmt gáleysi með því að hafa ekki séð til þess að búið væri að færa skjöl til þinglýsingar og skrá kaupmála í kaupmálabók áður en eignmaður stefnanda féll frá.

Landsréttur birt 11. desember 2020

826/2019

Hafsteinn Þorgeirsson og Grétar Þorgeirsson (Björn Þorri Viktorsson lögmaður) gegn Arthuri Galvez og Gunnari Erni Örlygssyni og AG-seafood ehf. (Kristinn Hallgrímsson lögmaður, Dóra Sif Tynes lögmaður, 4. prófmál) og Lúðvík Bergvinssyni og Elínu Hrefnu Ólafsdóttur og Sigurvini Ólafssyni og Bonafide-lögmönnum/ráðgjöf sf. (Stefán A. Svensson lögmaður)

HÞ og GÞ voru eigendur F ehf. sem sameinaðist AG ehf. árið 2014. Kröfðust þeir ógildingar á samrunanum og að stefndu yrði gert að greiða þeim skaðabætur. Skaðabótakrafan á hendur AG ehf., AG og GÖ, byggðist á þeim grunni að þeir hefðu misnotað yfirburðastöðu sína og fengið HÞ og GÞ til að ganga til samrunans á fölskum forsendum. Hvað varðaði lögmennina L, E og S og félag þeirra B sf. var byggt á því að lögmennirnir hefðu vanrækt að gæta hagsmuna HÞ og GÞ með fullnægjandi hætti í samrunaferlinu og í kjölfar þess. Með dómi Landsréttar var kröfu HÞ og GÞ um ógildingu samrunans ásamt þremur samningum sem tengdust honum vísað frá héraðsdómi án kröfu vegna vanreifunar og skorts á lögvörðum hagsmunum. Þá voru stefndu sýknuð af kröfu HÞ og GÞ um greiðslu skaðabóta þar sem ekki var talið að þeir hefðu fært fram sönnur á að þau hefðu á einhvern hátt nýtt sér fákunnáttu þeirra eða beitt þá blekkingum eða svikum. Var ekki fallist á að þau hefðu með saknæmum og ólögmætum hætti valdið HÞ og GÞ tjóni. HÞ og GÞ höfðu einnig uppi þrjár varakröfur sem vörðuðu ógildingu að hluta og efndir söluréttarsamnings en stefndu voru jafnframt sýknuð af þeim.

Landsréttur birt 31. ágúst 2020

388/2020

MVN ehf (Grímur Sigurðsson lögmaður) gegn þrotabúi Neptune ehf (Árni Pálsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu M ehf. um að héraðsdómarinn A viki sæti í máli M ehf. gegn þrotabúi N ehf. Krafan byggðist á því að dómarinn væri vanhæfur vegna samstarfs hennar og lögmanns varnaraðila frá september 2007 til loka árs 2013. Landsréttur taldi óhlutdrægni dómara ekki með réttu dregna í efa þótt dómarinn hefði lengi þekkt umræddan lögmann og þau ættu sér sögu um samstarf á sviði lögmennsku sem hefði runnið sitt skeið á enda fyrir um það bil sex og hálfu ári síðan. Ekki yrðu gerðar jafn strangar kröfur að þessu leyti varðandi lögmann og þegar í hlut ætti málsaðili. Þá gæti það ekki breytt niðurstöðunni þótt skaðabótakröfum kynni síðar að verða beint að skiptastjóranum vegna starfa hans, þær væru ekki til úrlausnar í þessu máli. Þegar til þessa væri litið yrði ekki á það fallist með M ehf. að atvik eða aðstæður væru með þeim hætti að gefi réttmætt tilefni til að draga óhlutdrægni héraðsdómarans í efa. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. júlí 2020

E-388/2019

Steinbergur Finnbogason (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn Íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Stefnanda voru dæmdar miskabætur á grundvelli 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku, húsleitar, haldlagningar muna, frelsissviptingar í gæsluvarðhaldi og á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993 vegna óútskýrðs dráttar á niðurfellingu sakamáls á hendur honum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. nóvember 2019

E-4048/2018

Hafsteinn Þorgeirsson, Gretar Þorgeirsson Björn Þorri Viktorsson gegn Arthuri Galvez, Gunnari Erni Örlygssyni, AG-seafood ehf., Lúðvíki Bergvinssyni, Elínu Hrefnu Ólafsdóttur, Sigurvini Ólafssyni, Bonafide-lögmönnum/ráðgjöf sf, Verði tryggingum hf. og Vátryggingafélagi Íslands hf, Kristinn Hallgrímsson, Stefán A. Svensson, Magnús Hrafn Magnússon, Ólafur og Eiríksson

Hafnað var kröfum stefnenda á hendur viðsemjendum og lögmönnum um ógildingu og fjárgreiðslur.

Landsréttur birt 5. apríl 2019

511/2018

Jón Steinar Gunnlaugsson (Björgvin Þorsteinsson lögmaður) gegn Lögmannafélagi Íslands (Óttar Pálsson lögmaður)

J höfðaði mál á hendur L og krafðist þess að ógiltur yrði með dómi úrskurður úrskurðarnefndar lögmanna þar sem J hafði verið gert að sæta áminningu vegna framgöngu sinnar í samskiptum við þáverandi dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur. Í kjölfar umræddra samskipta hafði dómstjórinn leitað til L og L síðan lagt fram kvörtun fyrir úrskurðarnefndina á hendur J. Landsréttur taldi aftur á móti að L hefði skort lagaheimild til þess að leggja fram kvörtunina. Skírskotun til málsmeðferðarreglna nefndarinnar og siðareglna nægði ekki til að bæta úr skorti á slíkri skýrri heimild til handa L. Var úrskurðurinn því felldur úr gildi.

Landsréttur birt 19. desember 2018

507/2018

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður) gegn Lögskilum ehf (Hilmar Magnússon lögmaður)

L ehf. krafði LH um greiðslu sex reikninga vegna starfa lögmanna L ehf. sem verjenda við skýrslutökur hjá LH. Aðila greindi á um hvort greiða skyldi lögmönnunum fyrir akstur innan höfuðborgarsvæðisins og hvort L ehf. skyldi að ósk LH gefa tvo af reikningunum út að nýju með annarri kennitölu greiðanda. Jafnframt hvort miða skyldi þóknun vegna starfa verjendanna við reglugerð nr. 715/2009 og viðmiðunarreglur dómstólaráðs eða gjaldskrá lögmannsstofunnar. Í dómi Landsréttar kom fram að L ehf. hefði ekki sýnt fram á að ekki hefði verið tryggð sanngjörn og eðlileg þóknun fyrir verjendastörfin þótt ekki hefði verið greitt sérstaklega fyrir akstur innan höfuðborgarsvæðisins. Auk þess hefði L ehf. verið rétt að verða við þeirri ósk að gefa tvo af reikningunum út að nýju. Þá þótti ekkert fram komið um að ákvarðað tímagjald LH, um þóknun verjendanna á grundvelli reglugerðar nr. 715/2009 og viðmiðunarreglna dómstólaráðs, hefði verið óhæfilega lágt eða að ákvarðanir þar um hafi falið í sér ólögmæta skerðingu á aflahæfi verjendanna og þar með brotið gegn 72. gr. stjórnarskrárinnar. Á hinn bóginn hefði kröfum L ehf. á grundvelli þriggja af reikningunum ekki verið mótmælt að öðru leyti en að því er varðaði akstur. Hefði LH því borið að greiða þann hluta reikningsfjárhæðanna sem var óumdeildur, enda hefði viðtöku á greiðslu ekki verið hafnað að því leyti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. október 2018

E-404/2018

Ólafur Elfar Sigurðsson og Snædís Valsdóttir (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn IREF ehf. (Hjalti Steinþórsson lögmaður) og Árna Péturssyni og Guðveigu Einarsdóttur (Birna Ketilsdóttir lögmaður)

Ágreiningur í fjöleignarhúsi um hvort rými væri séreign eða sameign.

Landsréttur birt 20. júní 2018

494/2018

Skattrannsóknarstjóri ríkisins (Theodóra Emilsdóttir forstöðumaður lögfræðisviðs) gegn X (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X um að S yrði gert að aflétta haldi á tilteknum munum og gögnum í eigu X. Héraðsdómur hafði með fyrri úrskurði heimilað húsleit og haldlagningu og kom sú úrlausn ekki til endurskoðunar Landsréttar. Rétturinn taldi X á hinn bóginn heimilt sem eiganda hinna haldlögðu muna að bera undir dómstóla hvort haldinu yrði aflétt. Eins og dómkröfum X var háttað var þó ekki unnt að taka afstöðu til þeirra og var þeim hafnað. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. maí 2018

E-3301/2017

Jón Steinar Gunnlaugsson (Björgvin Þorsteinsson lögmaður) gegn Lögmannafélagi Íslands (Óttar Pálsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar úrskurðarnefndar Lögmannafélagsins en ekki var fallist á neina af þeim málsástæðum sem stefnandi hafði uppi til stuðnings dómkröfum sínum um ógildingu og var því fallist á kröfu stefnda um sýknu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. maí 2018

E-2466/2017

Guðfinna Aðalheiður Karlsdóttir (Eyvindur Sveinn Sólnes lögmaður) gegn Arnþrúði Karlsdóttur (Pétur Gunnlaugsson lögmaður)

Skuldamál. Megin ágreiningur í máli laut að því hvort um var að ræða gjafir til styrktar rekstri útvarpsstöðvar eða peningalán.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. maí 2018

E-2451/2017

A (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður) gegn B (Arnar Þór Stefánsson lögmaður), C (Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður), D (Ragnar Halldór Hall lögmaður), E (Óttar Pálsson lögmaður) og F.

Skaðabótamáli vísað frá héraðsdómi. Vanreifun. Kröfu um álag á málskostnað hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. maí 2016

E-1434/2016

Sigurður Steinar Jónsson (Steinn S. Finnbogason hdl) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon hrl)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu skaðabóta á grundvelli starfsábyrgðartryggingar lögmanns. Dómurinn taldi ósannað að lögmaðurinn hafi með saknæmum hætti valdiðs stefnanda tjóni og jafnframt að stefnandi hefði ekki fært sönnur á að hann hafi orðið fyrir því tjóni sem hluti bótakröfu hans var reist á.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. mars 2017

E-2053/2016

A (Magnús Davíð Norðdahl hdl) gegn B og Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Guðjón Ármannsson hrl)

Lögmaður og löggiltur fasteignasali var krafinn skaðabóta vegna greiðslu samkvæmt samkomulagi um uppgjör vegna fasteingaviðskipta sem stefnandi taldi sakmæmt að inna þannig af hendi í ljósi breyttra forsenda í tengslum við mistök við veðflutning fasteignaláns. Var talið að lögmaðurinn hafi þó við svo búið ekki getað haft forsendur til annars en að ætla að honum hafi verið stætt á að framkvæma samkomulagið samkvæmt efni þess og var hann því sýknaður af skaðabótakröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 10. nóvember 2016

Ö-13/2016

Sameinað Sílikon hf (Skarphéðinn Pétursson hrl) gegn Íslenskum aðalverktökum hf (Benedikt Egill Árnason hdl)

Deilu um hæfi gerðarmanns var skotið til dóms samkvæmt heimild í lögum um samningsbundna gerðardóma. Var staðfestur úrskurður formanns gerðardómsins um að gerðarmanni bæri að víkja sæti í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2015

E-293/2014

Arion, banki hf, Íslandsbanki hf og Glitnir hf (Þórir Júlíusson hdl) gegn Gísla Gíslasyni (Björgvin Þorsteinsson hrl)

Stefndi var sýknaður af skaðabótakröfu stefnenda sem var á því reist að stefndi hefði liðsinnt eiganda fasteignar við að blekkja stefnendur til að aflétta veðum af eigninni gegn lægri greiðslu en fékkst fyrir hana.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. desember 2012

X-388/2011

Peter Holm (Eggert Páll Ólason hdl) gegn Kaupþingi hf (Feldís Lilja Óskarsdóttir hdl)

Talið var ósannað að mótmæli P við afstöðu slitastjórnar K hafi komið fram innan þeirra tímarka sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 120. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.

Héraðsdómur Reykjaness birt 1. október 2010

E-2721/2009

Rafval sf (Unnsteinn Örn Elvarsson hdl) gegn Jóni Auðuni Jónssyni, til réttargæslu og Sjóvá-Almennum tryggingum hf
Lykilorð: Lögmenn. Skaðabætur.

Lögmaður sýknaður af bótakröfu sameignarfélags þar sem talið var ósannað að hann hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi í tengslum við gerð kaupsamnings milli félagsins og viðsemjanda þess.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2009

E-2569/2009

Sveinn Halldórsson (Guðmundur Kristjánsson hrl) gegn Jóni Auðuni Jónssyni, Sjóvá-Almennum tryggingum hf., til og réttargæslu

Lögmaður sýknaður af bótakröfu vegna mistaka við mætingu við gjaldþrotaskipti stefnanda og vegna þess að dráttur hafði orðið á að leitað yrði nauðasamninga fyrir stefnanda. Tjón stefnanda talið ósannað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2009

E-3667/2007

Már Jónsson (Jóhann Haukur Hafstein hdl) gegn Hilmari Baldurssyni og Vátryggingafélagi Íslands hf (Hákon Árnason hrl)
Lykilorð: Lögmenn. Skaðabætur.

Lögmaður sýknaður af skaðabótakröfu manns sem taldi lögmanninn ekki hafa haldið kröfu til haga, sem hann taldi sig eiga á hendur tryggingafélagi vegna þess að versnun hefði orðið á heilsufari hans frá því að bætur höfðu verið uppgerðar vegna vinnuslyss sem stefnandi hafði orðið fyrir. Ekki talið að skilyrði endurupptöku hefði verið fyrir hendi samkvæmt skaðabótalögum og því ekkert tjón sannað sem stefnandi hefði orðið fyrir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. september 2007

S-190/2007

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Róberti Árna Hreiðarssyni (Einar Gautur Steingrímsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum ungum stúlkum. Tældi hann tvær þeirra til kynferðismaka, en greiddi tveim öðrum fyrir kynferðisleg samskipti. Þá var ákærði sakfelldur fyrir vörslur á barnaklámi. Refsing ákveðin fangelsi í 3 ár. Ákærði, sem er starfandi lögmaður, var jafnframt sviptur málflutningsréttindum sínum.