Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristófer Sigtryggi Einarssyni (
Sigmundur Guðmundsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að dreifa og hafa í vörslum sínum barnaklám.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Herði Rúnari Úlfarssyni (
Brynjólfur Eyvindsson lögmaður)
Sakfellt fyrir kynferðisbrot.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, án vitundar A, tekið upp myndband af A og sér þar sem þeir stunduðu kynmök, sent A mynd sem sýndi þá nakta í kynmökum og sent D umrædd gögn í pósti ásamt öðrum gögnum sem var ætlað að sýna fram á að X og A hefðu átt í kynferðissambandi. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 209. og 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa sent tveimur nafngreindum mönnum myndir af A og sér að stunda kynmök. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hóta A að birta fyrrgreindar myndir á netinu og senda A tölvuskeyti með hótunum um ofbeldi gegn honum og hans nánustu. Var X talinn hafa ítrekað móðgað og smánað A með þeirri háttsemi sem hann var sakfelldur fyrir svo að í því hafi falist stórfelldar ærumeiðingar í skilningi 233. gr. b almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til ákvæða 1., 5., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var X gert að greiða A miskabætur.
Ákæruvaldið (
Elimar Hauksson fulltrúi)
gegn
Gunnari Jakobssyni (
Snorri Sturluson hdl)
Ákærði var fundinn sekur um hegningarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði, en með vísan til þess að verulegur dráttur varð á málinu og að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið.
Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn
Sigurði Dalmann Áslaugarsyni
Ákærði sakfelldur fyrir blygðunarsemisbrot, hótanir, dreifingu kláms og stórfelldar ærumeiðingar gagnvart brotaþola. Refsing fangelsi 2 ár.
X var sakfelldur fyrir vörslur barnakláms
Ákært fyrir vörslu barnakláms. Sýkna.
Karlmaður sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni og vörslur barnakláms.
X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa látið A, sem þá var 14 ára gömul, hafa við sig munnmök og hafa síðan við hana endaþarmsmök uns X varð sáðlát. Var brot hans talið varða við 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. X og A höfðu átt í MSN-tölvusamskiptum fyrir atvikið og var talið að endurrit þeirra samskipta sýndu að X hefði haft einbeittan ásetning til að eiga kynferðisleg samskipti við A þótt honum væri ljóst að hún væri einungis 14 ára gömul. Sum ummæli A í þessum samskiptum voru auk þess með þeim hætti að X hlyti einnig að hafa vera ljóst að andlegu atgervi hennar kynni að vera áfátt, en samkvæmt læknisvottorðum býr hún við væga þroskahömlun. X var 22 ára þegar atvikið varð. Talið var að með háttsemi sinni hefði hann brotið gróflega gegn A og ætti sér engar málsbætur. Þá var hann einnig talinn hafa gerst sekur um að hafa haft barnaklám í vörslum sínum og var brotið talið varða við 210. gr. almennra hegningarlaga. Að öllu virtu þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í 20 mánuði. Þá var hann dæmdur til að greiða A 600.000 krónur í miskabætur og sæta upptöku á hörðum diski með barnaklámefni.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X
Dæmd sekt fyrir vörslur barnakláms
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Steini Helgasyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Maður sakfelldur fyrir vörslu og dreifingu barnakláms. Brot hans taldist stórfellt og var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 12 mánuði. Þar af voru 9 mánuðir fangelsisrefsingarinnar bundnir skilorði til þriggja ára.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Svanberg Rúnari Lárussyni (
Björn Jóhannesson hrl)
Ungur karlmaður sakfelldur fyrir vörslur 1 ljósmyndar og 89 hreyfimynda sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Refsing ákveðin 45 daga skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Unnsteini Óskari Guðmundssyni (
Tryggvi Guðmundsson hdl)
Karlmaður sakfelldur fyrir að hafa aflað sér 26 hreyfimynda sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Refsing ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga og með því rofið skilorð dóms frá 3. september 2004. Refsing í heild 13 mánuðir, þar af 10 mánuðir skilorðsbundnir með vísun í 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga og einnig 1. og 2. tl. greinarinnar um sérstakt skilorð.
Ákæruvaldið (
Guðjón Jóel Björnsson sýslumannsfulltrúi)
gegn
X (
Arnar Sigfússon hdl)
Karlmaður á fertugsaldri dæmdur í 40 daga fangelsi fyrir að senda klámfengnar myndir af sjálfum sér, þannig að varði ma.a við 3. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga. Refsing skilorðsbundin. Málskostnaður.
Karlmaður á fertugsaldri dæmdur til greiðslu 150.000 króna sektar fyrir brot gegn 3. mgr. 210. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum ungum stúlkum. Tældi hann tvær þeirra til kynferðismaka, en greiddi tveim öðrum fyrir kynferðisleg samskipti. Þá var ákærði sakfelldur fyrir vörslur á barnaklámi. Refsing ákveðin fangelsi í 3 ár. Ákærði, sem er starfandi lögmaður, var jafnframt sviptur málflutningsréttindum sínum.
Barnaklám finnst í vörslu refsifanga. Ákærði er sakaðuar um að hafa búið til þessa skrár ásamt fleiri skrám. Hann er sýknaður að hluta og málskostnaður að hluta lagður á ríkissjóð.
Karlmaður sakfelldur fyrir vörslur barnakláms. Brotið ekki talið stórfellt og honum gert að greiða sekt í ríkissjóð.
Ákæruvaldið (
Björn Þorvaldsson settur saksóknari)
gegn
X (
Bjarni Lárusson hdl)
Maður dæmdur fyrir vörslu barnakláms.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Guðmundi Guðmundssyni (
Hilmar Baldursson hdl)
Ákærði var dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir að hafa í vörslum sínum 50 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þar á meðal voru grófar myndir.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Kristjáni Arasyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Sakfelldur fyrir að hafa barnaklám í vörslum sínum.
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir fulltrúi)
gegn
Ólafi Hrafni Magnússyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Ákærði dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, kynferðisbrot og vörslu barnakláms.
Ó var ákærður fyrir brot gegn 3. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa tælt þrjár ungar stúlkur til samræðis og annarra kynferðismaka með þeim hætti sem nánar var lýst í ákæru. Talið var sannað að Ó hefði tælt stúlkurnar til þeirra athafna sem í ákæru greindi og var ekki vefengt að samræði og munnmök ættu undir brotalýsingu ákvæðisins. Hins vegar var ekki talið að önnur háttsemi sem Ó var gefin að sök yrði heimfærð undir ákvæðið. Ó var jafnframt ákærður fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa haft í vörslum sínum ljósmyndir sem hann hafði tekið af stúlkunum nöktum og ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Sök var talin fyrnd vegna mynda sem eytt hafði verið 18. febrúar 2002, en Ó var sakfelldur fyrir aðrar sakargiftir í þessum þætti málsins. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í eitt ár.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Sigurði John Lúðvíkssyni (
Jón Magnússon hrl)
S var ákærður fyrir að hafa haft klámmyndir til sölu og fjölfaldað klámmyndir til sölu í verslun sinni. Þá var hann ákærður fyrir að hafa tvívegis flutt inn frá Bandaríkjunum sams konar efni til útbreiðslu. Var S sakfelldur fyrir brotin, en þau voru talin varða við 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. sömu greinar. Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af því að háttsemin var liður í atvinnurekstri S og að hann hélt rekstrinum áfram. Var S dæmdur til greiðslu sektar og upptöku myndbanda, geisladiska og stafrænna myndadiska.