Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 5. febrúar 2008.
Mál nr. S-14/2008:
D Ó M U R
nr. S-14/2008:
Ákæruvaldið
(Guðjón Jóel Björnsson sýslumannsfulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var 18. janúar sl., er höfðað með ákæruskjali
ríkissaksóknara, útgefnu 7. janúar sl. á hendur X, kt. 000000-0000, […];
„fyrir
kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum, með því að hafa, 8. nóvember
2007, með ósiðlegu athæfi sært blygðunarsemi A, fæddri 1991, B, fæddri 1990 og C,
fæddri 1990, með því að senda þeim í gegnum spjallrás á netinu, þegar þær voru
staddar í […], 18 hreyfimyndir og 5 kyrrmyndir af sjálfum sér nöktum við ýmsar
kynlífsathafnir.
Telst
þetta varða við 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 15. gr. laga
nr. 40/1992, 3. mgr. 210. gr. sömu laga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr.
80/2002.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Af
hálfu fulltrúa ákæruvalds var við meðferð málsins fyrir dómi fallið frá því
(Arnar Sigfússon hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður á fertugsaldri dæmdur í 40 daga fangelsi fyrir að senda klámfengnar myndir af sjálfum sér, þannig að varði ma.a við 3. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga. Refsing skilorðsbundin. Málskostnaður.
„fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum, með því að hafa, 8. nóvember 2007, með ósiðlegu athæfi sært blygðunarsemi A, fæddri 1991, B, fæddri 1990 og C, fæddri 1990, með því að senda þeim í gegnum spjallrás á netinu, þegar þær voru staddar í […], 18 hreyfimyndir og 5 kyrrmyndir af sjálfum sér nöktum við ýmsar kynlífsathafnir.
Telst þetta varða við 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 15. gr. laga nr. 40/1992, 3. mgr. 210. gr. sömu laga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Af hálfu fulltrúa ákæruvalds var við meðferð málsins fyrir dómi fallið frá því sakaratriði að ákærði hefði sent umræddar myndir til þriggja stúlkna. Var í þess stað miðað við að þær hefðu verið tvær og að því leyti tekið tillit til frásagnar ákærða við lögreglurannsókn málsins, líkt og fyrir dómi.
Dómkröfur skipaðs verjanda ákærða, Arnars Sigfússonar hdl., eru þær að ákærði verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög heimila, en jafnframt krefst hann hæfilegra málsvarnarlauna.
- Málsmeðferð og málsatvik.
Samkvæmt rannsóknargögnum barst lögreglunni á Akureyri kæruerindi hinn 14. nóvember sl. þess efnis að ákærði í máli þessu hefði í vikunni þar á undan verið í samskiptum við þrjár námsmeyjar í […], þær A, tæplega 16 ára, og stallsystur hennar, B og C, sem þá voru tæplega 17 ára, á svonefndum veraldarvef.
Í umræddu erindi er því m.a lýst að stúlkurnar hafi í samskiptum sínum við ákærða skýrt ranglega frá því að þær væru 15 ára, en hann þrátt fyrir það sent þeim myndir af sér nöktum, og við kynferðislegar athafnir.
Við upphaf rannsóknar lagði lögreglan hald á fartölvu einnar stúlkunnar og við skoðun reyndust þar vera umræddar 5 kyrrmyndir og 18 hreyfimyndir af ákærða.
Ákærði var handtekinn þann 20. nóvember sl., en í framhaldi af því var gerð húsleit á heimili hans samkvæmt dómsúrskurði. Við athugun á haldlögðum tölvubúnaði fann lögreglan ekkert er tengdist sakarefni málsins. Var og upplýst að ein ofannefndra stúlkna hafði haft símasamband við eiginkonu ákærða og greint henni frá athæfi hans. Brást ákærði strax við að sögn og eyddi öllu myndefni er tengdist sakarefninu.
Við skýrslutöku hjá lögreglu játaði ákærði að hafa sent umræddar myndir til 15 ára stúlkna, að hann ætlaði.
Samkvæmt beiðni sýslumannsins á Akureyri, sem dagsett er 22. nóvember sl. voru teknar dómskýrslur af nefndum stúlkum, sbr. 74. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála, vegna sakarefnisins. Eru skýrslur þessar á meðal gagna málsins, líkt og vitnaskýrsla eiginkonu ákærða hjá lögreglu.
Framangreind rannsóknargögn voru send ríkissaksóknara til ákvörðunar 11. desember sl., en þá lá fyrir yfirlýsing réttargæslumanns nefndra stúlkna um að foreldrar þeirra krefðust ekki skaðabóta vegna athæfis ákærða.
- Fyrir dómi hefur ákærði skýlaust játað verknaðarlýsingu í ákæruskjali, líkt og efni þess var breytt við meðferð málsins. Er játningin í öllum aðalatriðum í samræmi við rannsóknargögn, þ. á m. skýrslu ákærða fyrir lögreglu.
Sök ákærða þykir að ofangreindu virtu nægjanlega sönnuð. Ber að heimfæra háttsemi hans til 3. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga, en þar hefur löggjafinn kveðið á um að refsivert sé að láta af hendi við unglinga, yngri en 18 ára, klámrit, klámmyndir eða aðra slíka hluti. Háttsemin þykir að áliti dómsins auk þess varða við 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80, 2002.
Þegar framangreind atvik eru virt í heild og m.a. litið til ummæla í greinargerðum með frumvörpum, annars vegar fumvarpi því er varð að lögum nr. 40, 1992 og hins vegar frumvarpi því er varð að lögum nr. 61, 2002, þykir lýst háttsemi ákærða í þessu tilviki ekki hafa verið til þess fallin að særa blygðunarkennd viðkomandi stúlkna í skilningi 209. gr. almennra hegningarlaga. Er í því viðfangi m.a. litið til þess 15 ára aldursmarks, sem löggjafinn miðar við í 202 gr. hegningarlaganna, sbr. og 1. og 2. mgr. 117. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki fyrr sætt refsingu svo kunnugt sé.
Við ákvörðun refsingar ber að líta til þess að ákærði játaði brot sín undanbragðalaust og hefur sýnt iðran í verki, en fyrir liggur að hann hefur síðustu vikurnar, með stuðningi eiginkonu, leitað sér meðferðar hjá sérfræðingi vegna sýnisástríðu sinnar (exhibitionismus). Þykir refsing ákærða að þessu virtu hæfilega ákveðin fangelsi í 40 daga. Rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Eins og hér að framan var rakið var ekki krafist skaðabóta í máli þessu. Þá var því lýst yfir af hálfu ákæruvalds að ekki hefði fallið til kostnaður af þess hálfu við rekstur málsins.
Dæma ber ákærða til að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl., sem ákveðast með virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir. Eru málsvarnarlaunin tiltekin í einu lagi á rannsóknar- og dómsstigi, en lögmaðurinn hefur þegar fengið greiddar 39.840 krónur vegna starfa síns.
Dóm þennan kveður upp Ólafur Ólafsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti 40 daga fangelsi, en fullnustu refsingar skal frestað og hún falla niður að liðnum 2 árum haldi hann almennt skilorð almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Arnars Sigfússonar hdl. 100.000 krónur.