Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

25 dómar fundust

Lykilorð: Klám

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 23. janúar 2023

S-44/2022

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Kristófer Sigtryggi Einarssyni (Sigmundur Guðmundsson lögmaður)
Lykilorð: Klám. Vörslur.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir að dreifa og hafa í vörslum sínum barnaklám.

Landsréttur birt 22. júní 2018

79/2018

Ákæruvaldið gegn X (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, án vitundar A, tekið upp myndband af A og sér þar sem þeir stunduðu kynmök, sent A mynd sem sýndi þá nakta í kynmökum og sent D umrædd gögn í pósti ásamt öðrum gögnum sem var ætlað að sýna fram á að X og A hefðu átt í kynferðissambandi. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 209. og 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa sent tveimur nafngreindum mönnum myndir af A og sér að stunda kynmök. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hóta A að birta fyrrgreindar myndir á netinu og senda A tölvuskeyti með hótunum um ofbeldi gegn honum og hans nánustu. Var X talinn hafa ítrekað móðgað og smánað A með þeirri háttsemi sem hann var sakfelldur fyrir svo að í því hafi falist stórfelldar ærumeiðingar í skilningi 233. gr. b almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til ákvæða 1., 5., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var X gert að greiða A miskabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. mars 2017

S-357/2016

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Gunnari Jakobssyni (Snorri Sturluson hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um hegningarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði, en með vísan til þess að verulegur dráttur varð á málinu og að teknu tilliti til skýlausrar játningar ákærða var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. mars 2017

S-921/2016

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Sigurði Dalmann Áslaugarsyni
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir blygðunarsemisbrot, hótanir, dreifingu kláms og stórfelldar ærumeiðingar gagnvart brotaþola. Refsing fangelsi 2 ár.

Hæstiréttur birt 17. desember 2009

54/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl) (Þórdís Bjarnadóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa látið A, sem þá var 14 ára gömul, hafa við sig munnmök og hafa síðan við hana endaþarmsmök uns X varð sáðlát. Var brot hans talið varða við 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. X og A höfðu átt í MSN-tölvusamskiptum fyrir atvikið og var talið að endurrit þeirra samskipta sýndu að X hefði haft einbeittan ásetning til að eiga kynferðisleg samskipti við A þótt honum væri ljóst að hún væri einungis 14 ára gömul. Sum ummæli A í þessum samskiptum voru auk þess með þeim hætti að X hlyti einnig að hafa vera ljóst að andlegu atgervi hennar kynni að vera áfátt, en samkvæmt læknisvottorðum býr hún við væga þroskahömlun. X var 22 ára þegar atvikið varð. Talið var að með háttsemi sinni hefði hann brotið gróflega gegn A og ætti sér engar málsbætur. Þá var hann einnig talinn hafa gerst sekur um að hafa haft barnaklám í vörslum sínum og var brotið talið varða við 210. gr. almennra hegningarlaga. Að öllu virtu þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í 20 mánuði. Þá var hann dæmdur til að greiða A 600.000 krónur í miskabætur og sæta upptöku á hörðum diski með barnaklámefni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. apríl 2009

S-235/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Steini Helgasyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Maður sakfelldur fyrir vörslu og dreifingu barnakláms. Brot hans taldist stórfellt og var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 12 mánuði. Þar af voru 9 mánuðir fangelsisrefsingarinnar bundnir skilorði til þriggja ára.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 27. ágúst 2008

S-39/2008

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson settur saksóknari) gegn Svanberg Rúnari Lárussyni (Björn Jóhannesson hrl)
Málaflokkur: Barnaréttur

Ungur karlmaður sakfelldur fyrir vörslur 1 ljósmyndar og 89 hreyfimynda sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Refsing ákveðin 45 daga skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 17. júlí 2008

S-38/2008

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson settur saksóknari) gegn Unnsteini Óskari Guðmundssyni (Tryggvi Guðmundsson hdl)
Lykilorð: Börn. Klám. Fangelsi. Skilorð.
Málaflokkur: Barnaréttur

Karlmaður sakfelldur fyrir að hafa aflað sér 26 hreyfimynda sem sýndu börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Refsing ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. febrúar 2008

S-1117/2007

Ákæruvaldið (Ragna Bjarnadóttir ftr) gegn Páli Rúnari Geirdal (Guðbjarni Eggertsson hdl)
Lykilorð: Klám.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga og með því rofið skilorð dóms frá 3. september 2004. Refsing í heild 13 mánuðir, þar af 10 mánuðir skilorðsbundnir með vísun í 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga og einnig 1. og 2. tl. greinarinnar um sérstakt skilorð.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 5. febrúar 2008

S-14/2008

Ákæruvaldið (Guðjón Jóel Björnsson sýslumannsfulltrúi) gegn X (Arnar Sigfússon hdl)
Lykilorð: Klám. Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður á fertugsaldri dæmdur í 40 daga fangelsi fyrir að senda klámfengnar myndir af sjálfum sér, þannig að varði ma.a við 3. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga. Refsing skilorðsbundin. Málskostnaður.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 4. október 2007

S-230/2007

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir fulltrúi) gegn X (Örlygur Hnefill Jónsson hdl)
Lykilorð: Játningarmál. Klám.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður á fertugsaldri dæmdur til greiðslu 150.000 króna sektar fyrir brot gegn 3. mgr. 210. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. september 2007

S-190/2007

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Róberti Árna Hreiðarssyni (Einar Gautur Steingrímsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum ungum stúlkum. Tældi hann tvær þeirra til kynferðismaka, en greiddi tveim öðrum fyrir kynferðisleg samskipti. Þá var ákærði sakfelldur fyrir vörslur á barnaklámi. Refsing ákveðin fangelsi í 3 ár. Ákærði, sem er starfandi lögmaður, var jafnframt sviptur málflutningsréttindum sínum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 16. júlí 2007

S-445/2006

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn X (Ingvar Þóroddsson hdl)
Lykilorð: Klám. Vörslur.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Barnaklám finnst í vörslu refsifanga. Ákærði er sakaðuar um að hafa búið til þessa skrár ásamt fleiri skrám. Hann er sýknaður að hluta og málskostnaður að hluta lagður á ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2007

S-70/2007

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Guðmundi Guðmundssyni (Hilmar Baldursson hdl)
Lykilorð: Börn. Játningarmál. Klám.
Málaflokkur: Barnaréttur

Ákærði var dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir að hafa í vörslum sínum 50 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þar á meðal voru grófar myndir.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. júní 2006

S-624/2006

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Kristjáni Arasyni (Brynjar Níelsson hrl)
Lykilorð: Klám.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfelldur fyrir að hafa barnaklám í vörslum sínum.

Hæstiréttur birt 6. apríl 2006

472/2005

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Ólafi Eggert Ólafssyni (Brynjar Níelsson hrl, Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl)
Lykilorð: Kynferðisbrot. Börn. Klám.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ó var ákærður fyrir brot gegn 3. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa tælt þrjár ungar stúlkur til samræðis og annarra kynferðismaka með þeim hætti sem nánar var lýst í ákæru. Talið var sannað að Ó hefði tælt stúlkurnar til þeirra athafna sem í ákæru greindi og var ekki vefengt að samræði og munnmök ættu undir brotalýsingu ákvæðisins. Hins vegar var ekki talið að önnur háttsemi sem Ó var gefin að sök yrði heimfærð undir ákvæðið. Ó var jafnframt ákærður fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa haft í vörslum sínum ljósmyndir sem hann hafði tekið af stúlkunum nöktum og ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Sök var talin fyrnd vegna mynda sem eytt hafði verið 18. febrúar 2002, en Ó var sakfelldur fyrir aðrar sakargiftir í þessum þætti málsins. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í eitt ár.

Hæstiréttur birt 19. desember 2000

321/2000

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Sigurði John Lúðvíkssyni (Jón Magnússon hrl)
Lykilorð: Klám. Upptaka.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

S var ákærður fyrir að hafa haft klámmyndir til sölu og fjölfaldað klámmyndir til sölu í verslun sinni. Þá var hann ákærður fyrir að hafa tvívegis flutt inn frá Bandaríkjunum sams konar efni til útbreiðslu. Var S sakfelldur fyrir brotin, en þau voru talin varða við 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. sömu greinar. Við ákvörðun refsingar var höfð hliðsjón af því að háttsemin var liður í atvinnurekstri S og að hann hélt rekstrinum áfram. Var S dæmdur til greiðslu sektar og upptöku myndbanda, geisladiska og stafrænna myndadiska.