Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 22. febrúar 2008.
Mál nr. S-1117/2007:
Ákæruvaldið
(Ragna Bjarnadóttir ftr)
gegn
Páli Rúnari Geirdal
(Guðbjarni Eggertsson hdl)
Lykilorð
Klám.
Útdráttur
Sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga og með því rofið skilorð dóms frá 3. september 2004. Refsing í heild 13 mánuðir, þar af 10 mánuðir skilorðsbundnir með vísun í 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga og einnig 1. og 2. tl. greinarinnar um sérstakt skilorð.
Mál þetta er dómtekið var 18. febrúar s.l. er höfðað með ákæru dagsettri 4. desember 2007 á hendur Páli Rúnari Geirdal, kennitala 000000-0000, Lyngbergi 23, Hafnarfirði, "fyrir kynferðisbrot, með því að hafa, þann 12. október 2006 haft í vörslu sinni á þáverandi dvalarstað sínum að Grófarsmára 18, Kópavogi, á fimm hörðum diskum í Fujitsu Siemens turntölvu, 14.713 ljósmyndir og 207 hreyfimyndir, sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt.
Telst þetta varða við 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 7. gr. laga nr. 39/2000 og 2. gr. laga nr. 74/2006.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Jafnframt er þess krafist með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga að ákærði verði dæmdur til að sæta upptöku á framangreindri turntölvu og fimm hörðum diskum."
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og eru brot hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Sakaferill ákærða er þannig að á árinu 2002 var tvívegis gerð við hann lögreglustjórasátt og honum gert að greiða sektir fyrir brot á umferðarlögum og sviptur ökurétti í 1 mánuð í annað skiptið, en ennfremur var hann 3. september 2004 dæmdur til að sæta fangelsi í 7 mánuði skilorðsbundið í 5 ár fyrir brot gegn 202. gr. almennra hegningarlaga.
Með því broti sem ákærður er nú sakfelldur fyrir hefur hann rofið skilorð þessa dóms og verður með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga að dæma upp refsinguna samkvæmt framangreindum dómi og dæma bæði málin í einu lagi og ákvarða refsinguna með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga.
Við refsiákvörðun í málinu verður að líta til þess, að um er að ræða mikinn fjölda ljósmynda og hreyfimynda, sem ákærður geymdi í tölvu sinni og meginhluti þeirra sýna grófa misnotkun á börnum og teljast brotin því stórfelld, en á hinn bóginn verður litið til tiltölulega ungs aldurs ákærða og að hann hefur játað brot sitt greiðlega. Þá er töluverður tími liðinn frá því að hann framdi brotin og samkvæmt því, sem fram kemur hjá verjanda er hann er nú í góðri vinnu og á unnustu. Þá er fram komið að ákærður leitaði sér sálfræðilegrar aðstoðar vegna fyrra málsins og leitaði sér aftur af sjálfsdáðum aðstoðar vegna síðara málsins og hefur verið í sálfræðilegri meðferð vegna þess með viðtölum hjá Birni Harðarsyni sálfræðingi frá því í janúar 2007 og kemur fram í vottorði Björns að hann hafi komið reglulega í viðtöl í samtals 29 tíma vegna barnahneigðar sinnar og er það álit sálfræðingsins að ákærði hafi nýtt sér tímann mjög vel og með því dregið úr hættu á að hann viðhaldi barnahneigð sinni áfram og sé þar af leiðandi ólíklegri til að brjóta af sér aftur. Sálfræðingur telur samkvæmt því mikilvægt að hann haldi áfram reglubundnum viðtölum, svo sem hann hafi í hyggju.
Af öllu þessu virtu þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin 13 mánaða fangelsi, en rétt þykir að fresta fullnustu á 10 mánuðum af fangelsisrefsingunni og falli hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955 og hlíti hann jafnframt sérstöku skilorði samkvæmt 2. og 3. tölulið greinarinnar, þar sem umsjónarmaður gæti þess m.a. að hann haldi áfram viðtalsmeðferð hjá sálfræðingi, svo lengi sem það er til nausynlegt að mati sálfræðings til að vinna bug á hneygð sinni til barna. Rétt er að Fangelsismálastofnun ríkisins hafi eftirlit með framkvæmd umsjónarinnar.
Samkvæmt 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga ber ákærða að hlíta upptöku á haldlagðri turntölvu í málinu og 5 hörðum diskum.
Dæma ber ákærða til greiðslu þóknunar til skipaðs verjanda síns Guðbjarna Eggertssonar hdl. vegna starfa hans á rannsóknarstigi og hér fyrir dómi sem ákveðst 323.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, en annan kostnað leiddi ekki sökinni.
Dóm þennan kveður upp Guðmundur L. Jóhannesson héraðsdómari.
Af hálfu ákæruvaldisns fór með málið Ragna Bjarnadóttir fulltrúi ríkissaksóknara.
DÓMSORÐ
Ákærður, Páll Rúnar Geirdal sæti fangelsi í 13 mánuði, en fresta skal fullnustu á 10 mánuðum af refsingunni og falli hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð samkvæmt 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955 og hlíti hann jafnframt sérstöku skilorði samkvæmt 2. og 3. tölulið greinarinnar, þar sem umsjónarmaður gæti þess m.a. að hann haldi áfram viðtalsmeðferð hjá sálfræðingi, svo lengi sem það er til nauðsynlegt að mati sálfræðings til að vinna bug á hneigð hans til barna. Rétt er að Fangelsismálastofnun ríkisins hafi eftirlit með framkvæmd umsjónarinnar.
Ákærður sæti upptöku á turntölvu og 5 hörðum diskum, sem haldlagðir voru í málinu.
Ákærður greiði skipuðum verjanda sínum Guðbjarna Eggertssyni héraðsdómslögmanni í þóknun vegna verjandastarfs hans á rannsóknarstigi og hér fyrir dómi 323.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Guðmundur L. Jóhannesson