Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. febrúar 2007.
Mál nr. S-70/2007:
Ákæruvaldið
(Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Guðmundi Guðmundssyni
(Hilmar Baldursson hdl)
Lykilorð
Börn. Játningarmál. Klám.
Útdráttur
Ákærði var dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í 3 ár, fyrir að hafa í vörslum sínum 50 ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þar á meðal voru grófar myndir.
Mál þetta, sem dómtekið var 15. febrúar 2007, er höfðað með ákæru, útgefinni af ríkissaksóknara 24. janúar 2007, á hendur Guðmundi Guðmundssyni, [...], Njarðarholti 4, Mosfellsbæ, fyrir kynferðisbrot, með því að hafa haft í vörslu sinni á heimili sínu að Njarðarholti 4, á hörðum diskum í Fujitsu Siemens fartölvu og Chieftec turntölvu, 50 ljósmyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, en myndirnar voru skrifaðar á hörðu diskana 29. júlí og 19. september 2006 og höfðu 48 myndir verið afmáðar af hörðum diski turntölvunnar þegar lögregla gerði húsleit á heimili ákærða 19. september 2006.
Þetta er talið varða við 4. mgr. 210 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 7. gr. laga nr. 39/2000 og 2. gr. laga nr. 14/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku samkvæmt 1. tl. 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga á framangreindri fartölvu og turntölvu.
Verjandi ákærða krefst þess að ákærða verði gerð vægasta refsing er lög leyfa. Þá er krafist málsvarnarlauna að mati dómsins.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og rannsóknargögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
Við ákvörðun refsingar verður að hafa í huga að markmið þess að gera vörslur barnakláms refsiverðar er að auka vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun. Bann við því að hafa barnaklám í vörslum sínum er talið geta dregið úr eða jafnvel fyrirbyggt kynferðislega misnotkun barna í tengslum við gerð slíks efnis. Brot varða sektum, en fangelsi þegar brot er stórfellt. Ákærði er sakfelldur fyrir að hafa í vörslum sínum 50 ljósmyndir sem sýna börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þar á meðal eru grófar myndir. Gögn málsins bera með sér að ákærði hefur haft myndirnar í vörslum sínum í skamman tíma og svo eytt þeim. Við ákvörðun refsingar verður einnig að líta til þess að ákærði hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Jafnframt hefur hann játað brotið. Að öllu þessu virtu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð. Þar sem ákærði hefur ekki áður sætt refsingu þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar, eins og í dómsorði greinir.
Með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála ber að dæma ákærða til að greiða sakarkostnað. Um er að ræða þóknun verjanda hans fyrir dómi, Hilmars Baldurssonar héraðsdómslögmanns, sem þykir hæfilega ákveðin 77.688 kr., að virðisaukaskatti meðtöldum.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari.
Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir, settur héraðsdómari.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Guðmundur Guðmundsson, sæti fangelsi í 1 mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði sæti upptöku á Fujitsu Siemens fartölvu og Chieftec turntölvu.
Ákærði greiði í sakarkostnað 77.688 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Baldursson héraðsdómslögmanns.
Sandra Baldvinsdóttir