Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

13 dómar fundust

Lykilorð: Hlutafjárhækkun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. mars 2023

E-3264/2021

Lífeyrissjóður verslunarmanna, Gildi - lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Stapi lífeyrissjóður og Birta lífeyrissjóður (Árni Freyr Sigurðsson lögmaður) gegn Brú II Íslandi hf (Viðar Lúðvíksson lögmaður)

Stefnendur kröfðust ógildingar ákvarðana sem teknar voru á tveim hluthafafundum í stefnda og lutu að hlutafjárhækkun í hinu stefnda félagi. Dómurinn taldi aðild þess hluthafa sem keypt hefði hina nýju hluti félagsins ekki nauðsynlega til að hægt væri að leysa úr sakarefni málsins og var jafnframt talið að stefnendur hefðu lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins. Þó var vísað frá kröfu um ógildingu ákvörðunar hluthafafundar um skráningu á áskriftum og nýjum hlutum í hlutaskrá félagsins enda þótti sýnt að stjórn félagsins hefði tekið þá ákvörðun en ekki hluthafafundurinn. Ákvörðun fyrri hluthafafundar stefnda um breytingu á samþykktum félagsins sem fól í sér hlutafjárhækkun var felld úr gildi þar sem tilskilin gögn vegna hlutafjárhækkunarinnar lágu ekki fyrir. Úr því var bætt fyrir seinni hluthafafund stefnda og var hann sýknaður af kröfu um ógildingu á samþykkt tillögu til sömu hlutafjárhækkunar og áður, sem og af kröfu um ógildingu á staðfestingu samþykkta með sömu breytingum og áður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2022

E-7223/2020

Þrotabú Sameinaðs Sílikons hf (Peter Dalmay lögmaður) gegn Ernst & Young ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (Tómas Jónsson lögmaður)

Stefndu voru sýknaðir af kröfum stefnanda, en stefnandi taldi sig hafa orðið fyrir tjóni vegna saknæmarar og ólögmætrar háttsemi endurskoðenda í tengslum við tíu hlutafjárhækkanir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2021

E-3965/2018

Þrotabú Sameinaðs Sílikons hf (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Ernst & Young ehf. og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (Tómas Jónsson lögmaður)

Stefnandi sem er þrotabú krafðist bóta frá stefndu, endurskoðunarfyrirtæki og löggiltum endurskoðanda, vegna mistaka sem talin voru hafa verið gerð í sérfræðistörfum þeirra. Ekki var talið að mistök þeirra hefðu valdið því tjóni sem bóta var krafist fyrir og voru stefndu sýknaðir vegna þess að nauðsynleg orsakatengsl til að bótaskylda stofnist voru ekki fyrir hendi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. febrúar 2021

E-3800/2018

Þrotabú Sameinaðs Sílikons ehf (Geir Gestsson lögmaður) gegn Ernst & Young ehf og Rögnvaldi Dofra Péturssyni (Tómas Jónsson lögmaður)

Aðila greindi á um hvort stefndu, R og EY ehf., bæru bótaábyrgð á tjóni sem stefnandi, þrotabú S hf., taldi stafa af saknæmri háttsemi við gerð sérfræðiskýrslu sem unnin var 29. desember 2016 í tengslum við hlutafjárhækkun í S hf. Ekki var talið sýnt fram á slíkt og voru stefndu þegar af þeirri ástæðu sýknaðir af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júní 2018

E-3330/2017

Ferðaþjónustan Óseyri ehf (Hilmar Gunnlaugsson lögmaður) gegn PricewaterhouseCoopers ehf (Gestur Jónsson lögmaður)

Sýkna af skaðabótakröfu vegna hlutabréfakaupa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. maí 2018

E-2451/2017

A (Jónas Friðrik Jónsson lögmaður) gegn B (Arnar Þór Stefánsson lögmaður), C (Þórarinn V. Þórarinsson lögmaður), D (Ragnar Halldór Hall lögmaður), E (Óttar Pálsson lögmaður) og F.

Skaðabótamáli vísað frá héraðsdómi. Vanreifun. Kröfu um álag á málskostnað hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2017

E-4550/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf Árna Harðarsyni og Magnúsi Jaroslav Magnússyni (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Samþykkt krafa hluthafa í einkahlutafélagi um að félaginu skyldi slitið vegna ótilhlýðilegra ráðstafana annarra hluthafa sem gerðar voru af ásetningi og bitnuðu á hagsmunum viðkomandi hluthafa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2017

E-4549/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Með dómi var ógilt að kröfu eins hluthafa, ákvörðun aðalfundar einkahlutafélags um hækkun hlutafjár og afnám ákvæða um forkaupsrétt hluthafa úr samþykktum félagsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. ágúst 2017

E-4550/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf Árna Harðarsyni og Magnúsi Jaroslav Magnússyni (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Krafist var slita á einkahlutafélagi. Kröfunni vísað frá þar sem stefnandi var ekki talinn eiga lengur lögvarða hagsmuni í málinu þar sem hann var ekki lengur hluthafi í félaginu vegna innlausnar annars hluthafa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. ágúst 2017

E-4549/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Krafist var ógildingar á tveimur samþykktum á aðalfundi einkahlutafélags er vörðuðu hækkun hlutafjár og forkaupsrétt. Málinu vísað frá þar sem stefnandi var ekki talinn eiga lögvarða hagsmuni í málinu þar sem hann væri ekki lengur hluthafi.