Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lykilorð: Geymslugreiðsla
Stefnendur kröfðust viðurkenningar á forkaupsrétti sínum að hlutum í stefnda L ehf., sem stefndi H hafði selt stefndu G, Þ og N samkvæmt kaupsamningi. Í dóminum var talið að kaupsamningurinn hefði verið bindandi og virkjað forkaupsrétt stefnenda samkvæmt samþykktum félagsins. Ekki var fallist á að samningurinn væri ógildur, til málamynda eða að stefnendur hefðu sýnt af sér óheiðarleika við nýtingu forkaupsréttarins. Hins vegar var fallist á varakröfu stefndu um að forkaupsréttur hvors stefnanda tæki aðeins til tiltekinna hluta. Var forkaupsréttur stefnenda að þeim hlutum viðurkenndur og stefnda L ehf. gert að uppfæra hlutaskrá félagsins til samræmis við það.
Með dómi var ógilt að kröfu eins hluthafa, ákvörðun aðalfundar einkahlutafélags um hækkun hlutafjár og afnám ákvæða um forkaupsrétt hluthafa úr samþykktum félagsins.
Krafist var ógildingar á tveimur samþykktum á aðalfundi einkahlutafélags er vörðuðu hækkun hlutafjár og forkaupsrétt. Málinu vísað frá þar sem stefnandi var ekki talinn eiga lögvarða hagsmuni í málinu þar sem hann væri ekki lengur hluthafi.
Skuldamál
Skuldamál
Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda eftirstöðvar kröfu ásamt dráttarvöxtum og málskostnað.