Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

18 dómar fundust

Lykilorð: Hluthafi

Héraðsdómur Vesturlands birt 1. desember 2025

E-186/2025

Emco ehf (Gunnlaugur Garðarsson lögmaður) gegn Emil Þór Jónssyni (Ólafur Kristinsson lögmaður)

Eigandi 50% hlutafjár í einkahlutafélagi sýknaður af kröfum félagsins um endurgreiðslu á kostnaði sem félagið hafði greitt fyrir hann um árabil en dæmdur til að greiða skuld við félagið samkvæmt viðskiptamannareikningi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2023

E-1027/2022

Hjalti Atlason (Almar Þór Möller lögmaður) gegn Kviknu ehf (Stefán Árni Auðólfsson lögmaður)

Ágreiningur reis vegna viðskipta með hluti í óskráðu félagi sem starfaði við hugbúnaðargerð og hönnun lækningartækja. Í kjölfar sölu á rúmlega 6% hlut stefnanda í félaginu til stefnda var ráðandi hlutur seldur til bandarísks fjáfestis þremur mánuðum síðar. Talið var að stefnandi hefði mátt gera sér grein fyrir að til stóð að fá bandaríska fjárfesta að félaginu og að slík sala gæti gengið eftir á næstu mánuðum og hann hafi tekið tillit til þess við verðlagningu bréfanna, en stefnandi verð með próf í verðbréfamiðlun og naut ráðgjafar við kaupin. Þá var ekki talið að viðræður við bandaríska fjárfestinn sem var stærsti viðskiptavinur félagsins hefðu verið komnar á það stig við sölu stefnanda á hlutnum að raunhæft hafi verið að draga einhverja ályktun um möguleg áhrif þeirra á söluna. Var stefndi því sýknaður af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2020

E-1215/2020

Skástræti ehf (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn Seaproducts Iceland ehf. og Bacco Seaproducts ehf (Atli Björn Þorbjörnsson lögmaður)

Stefndu töldu samninga aðila frá mars 2018 fallna niður vegna þess að forsendur hafi brostið í öndverðu eða ella eftir að samningar voru gerðir. Samningar hins vegar taldir gildir og stefnandi talinn hafa eignast með þeim þriðjungshlut í einkahlutafélagi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. júlí 2019

E-977/2018

Sigríður Svanborgardóttir (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður) gegn Magnúsi Valþórssyni og Framkvæmd og þjónustu ehf (Almar Þór Möller lögmaður)
Lykilorð: Einkahlutafélag. Hluthafi.

Gerð var krafa um að einkahlutafélagi yrði slitið. Komst dómurinn að því að stefnandi væri ekki eigandi að hlutum í félaginu og brást því aðild að kröfunni. Voru stefndu sýknaðir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. júní 2018

E-3330/2017

Ferðaþjónustan Óseyri ehf (Hilmar Gunnlaugsson lögmaður) gegn PricewaterhouseCoopers ehf (Gestur Jónsson lögmaður)

Sýkna af skaðabótakröfu vegna hlutabréfakaupa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2017

E-4549/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Með dómi var ógilt að kröfu eins hluthafa, ákvörðun aðalfundar einkahlutafélags um hækkun hlutafjár og afnám ákvæða um forkaupsrétt hluthafa úr samþykktum félagsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. ágúst 2017

E-4549/2014

Matthías H Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Aztiq Pharma Partners ehf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl)

Krafist var ógildingar á tveimur samþykktum á aðalfundi einkahlutafélags er vörðuðu hækkun hlutafjár og forkaupsrétt. Málinu vísað frá þar sem stefnandi var ekki talinn eiga lögvarða hagsmuni í málinu þar sem hann væri ekki lengur hluthafi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. september 2016

E-2807/2016

Ásbjörn Arnarsson og Erla Birgisdóttir (Lúðvík Bergvinsson hdl) gegn HH byggingum ehf (Kristinn Hallgrímsson hrl)

Krafist var ógildingar á ákvörðunum hluthafafundar og breytinga á þeim. Málinu vísað frá þar sem dómurinn taldi nauðsynlegt að stefna einnig tilteknum hluthafa í málinu þar sem dómkröfurnar fólu í sér að eignarhlutur hans í félaginu minnkaði og réttindi hans yrðu sett í uppnám, væri á þær fallist.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. nóvember 2016

E-3519/2012

Matthías H. Johannessen (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Árna Harðarsyni Vilhelm Róberti Wessman og Magnúsi Jaroslav Magnússyni (Baldvin Björn Haraldsson hrl)

Stjórnendur einkahlutafélags dæmdir skaðabótaskyldir gagnvart hluthafa, þar sem talið var að verðmæt eign hafi verið framseld út úr félaginu á undirverði.

Hæstiréttur birt 29. október 2015

175/2015

Gunnar Smári Egilsson (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Svenn Aage Hyllerød Dam og Morten Nissen Nielsen (Eyvindur Sólnes hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. júní 2012

E-8680/2009

Signý Eiríksdóttir, Óskar Örn Eiríksson, Sigyn Eiríksdóttir og Eiríkur Óskarsson (Björn Líndal hdl) gegn Mango Tree B.V. (Sigurður G. Guðjónsson hrl) og Bergsveini Jónssyni og Mogul Holding ehf. (Jónas Örn Jónasson hdl)

Viðurkennt að forgangshlutir í stefnda Mogul Holding ehf. hafi breyst í almenna hluti við samruna félagsins við dótturfélag sitt. Jafnframt var fellt úr gildi hluthafasamkomulag milli stefnda Mogno Tree B.V. og stefnenda.

Hæstiréttur birt 29. mars 1999

405/1998

Eydís Björg Hilmarsdóttir (Einar Gautur Steingrímsson hdl) gegn Herrafatnaði ehf Jóhanni Birgissyni og Láru Höllu Elínbergsdóttur (Jón Magnússon hrl)

E krafðist þess að einkahlutafélaginu H yrði slitið með dómi samkvæmt 1. mgr. 81. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Talið var að E hefði átt ótvíræðan rétt til þess að teljast hluthafi í félaginu frá upphafi. Hvorki vanefnd E um að inna af hendi hlutafé til félagsins, né þau atvik að annar aðili hafði veitt atbeina sinn til að leysa hana undan þeirri vanefnd, þóttu breyta því að hana bar réttilega að telja eiganda að helmingshlut í félaginu. Fullnægði E því skilyrði 1. mgr. 81. gr. laga nr. 138/1994 til þess að hafa uppi kröfu um slit félagsins. Talið var að E hefði verið meinað að sækja aðalfund í félaginu, þar sem ráðstafanir hefðu verið gerðar á eignum þess. Hefði þannig verið brotið gegn X. kafla laga nr. 138/1994. Var krafa E um slit á félaginu tekin til greina.