Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Athafnaleysi

Landsréttur birt 5. febrúar 2026

618/2024

Jakob Adolf Traustason (sjálfur) gegn Sigurði G. Guðjónssyni og SGG lögstofu ehf (Almar Þór Möller lögmaður)

Með dómi Hæstaréttar í janúar 2020 var fallist á með J að hann hefði eignast skaðabótakröfu á hendur hálfsystkinum sínum vegna ráðstöfunar á nánar tilgreindri landspildu. Systkinin voru aftur á móti sýknuð af kröfunni á grundvelli fyrningar. Mál þetta höfðaði J á hendur S og SGG lögstofu ehf. til heimtu skaðabóta fyrir það tjón sem hann varð fyrir vegna fyrningar kröfunnar. J byggði meðal annars á því að S hefði látið hjá líða að gagnstefna í máli sem hálfsystur hans höfðuðu gegn honum í janúar 2010, auk þess sem hann hélt því fram að S hefði fallið frá frávísunarkröfu í málinu án hans vitneskju og samþykkis. Í dómi Landsréttar kom fram að samkvæmt lögum um meðferð einkamála bæri að höfða gagnsök innan mánaðar frá þingfestingu aðalsakar. Þar sem S hefði fyrst komið að málinu að liðnum þeim fresti yrði hann þegar af þeirri ástæðu ekki talinn hafa sýnt af sér saknæmt athafnaleysi með því að höfða ekki gagnsök í því fyrir hönd J. Landsréttur taldi jafnframt að J hefði ekki sýnt fram á orsakatengsl milli þess að fallið var frá frávísunarkröfunni og þess tjóns sem hann varð fyrir þegar skaðabótakrafan fyrndist. Þá tók Landsréttur fram að J hefði haft fjögur ár til að rjúfa fyrningu kröfunnar en á því tímabili hefði S gætt hagsmuna J í rúma fimm mánuði eða allt þar til hann afturkallaði umboðs sitt til S. Frá því tímamarki hefði J enn haft tæp þrjú ár til að rjúfa fyrningu kröfunnar. Var það niðurstaða Landsréttar að J hefði ekki fært á það sönnur að S hefði á því tímabili sem hann gætti hagsmuna J sýnt af sér saknæma háttsemi sem leitt hefði til þessi að J höfðaði ekki mál um kröfuna fyrr en að liðnum fyrningarfresti hennar þannig að jafnframt mætti telja uppfyllt skilyrði skaðabótaréttar um orsakatengsl og sennilega afleiðingu. Staðfesti Landsréttur því niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sýknu S og SGG lögstofu ehf. af kröfum J.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. apríl 2021

E-3490/2020

S (Sigrún Ísleifsdóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)

Stefnandi vann í skóla og studdist tímabundið við hækjur vegna meiðsla á fæti. Þegar hún gekk inn í mötuneyti skólans lenti hækjan á fitubletti og skrikaði til. Til þess að detta ekki keyrði stefnandi veika fótinn í gólfið og hlaut af varanlegt tjón. Talið var að atvikið hefði verið óhapp og yrði ekki rakið til saknæms athafnaleysis starfsmanna skólans. Tryggingafélag skólans var því sýknað.