Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
7 dómar fundust
Lykilorð: Skráning
Ákærða sýknuð af ákæru fyrir að hafa ekið rafhlaupahjóli án ökuréttinda og vanrækt skráningarskyldu hjólsins, en sakfelld fyrir að hafa ekið án fullnægjandi hemlabúnaðar.
Skráning stefndu í hlutaskrá hins meðstefnda einkahlutafélags og staðfesting aðalfundar félagsins, þess efnis að stefnda væri eigandi allra hluta í félaginu, var ógilt og stefndu gert að skrá stefnanda sem eiganda að 30% hlut í félaginu. Dagsektakröfu stefnanda var vísað frá dómi ex officio vegna vanreifunar.
Ágreiningur í fjöleignarhúsi um hvort rými væri séreign eða sameign.
Jens Guðmundur Jensson, Seaflower, Ísland og ehf (
Baldvin Hafsteinsson hrl)
gegn
Björgvini R. Kjartanssyni (enginn)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli J og SÍ ehf. gegn BK, S ehf., BJ og H ehf. var vísað frá dómi. Í málinu kröfðust J og SÍ ehf. þess annars vegar að ógiltur yrði með dómi kaupsamningur milli S ehf. og H ehf. þar sem sá fyrrnefndi seldi þeim síðarnefnda skipið S og hins vegar að hlutafjárhækkun í varnaraðilanum S ehf. yrði dæmd ólögmæt og lagt fyrir fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra að færa hlutafé félagsins aftur í fyrra horf. Í málinu lá fyrir að undir rekstri málsins hlutaðist H ehf. til um það með tilkynningu til fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra að skráð yrðu slit á S ehf. eftir heimild í 83. gr. a. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, sbr. 8. gr. laga nr. 52/2003, en á grundvelli þessi mun félagið hafa verið afskráð. Skorti félagið því hæfi til að eiga aðild að dómsmálum og var málinu því vísað frá héraðsdómi hvað varðar S ehf. Þar sem málatilbúnaður J og SÍ ehf. tók ekki mið af því hvernig með málið ætti að fara án aðildar S ehf. að málinu og ekki höfðu komið fram neinar haldbærar skýringar á því hvernig J og SÍ ehf. gætu haft lögvarða hagsmuni af dómi um ógildingu hlutafjárhækkunar í félagi sem ekki væri lengur til, var málinu í heild vísað frá héraðsdómi og staðfest þar með niðurstaða hins kærða úrskurðar.
Fallist var á það með stefnda að vísa bæri málinu frá dómi, þar sem það yrði ekki rekið á grundvelli XVII. kafla laga nr. 91/1991.
Karlmaður, sem ók óskráðu vélhjóli við að smala fé, sætti ákæru fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um náttúruvernd. Var hann sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, sem hann gekkst greiðlega við og dæmdur til greiðslu 80.000 króna sektar, en sýknaður af því að hafa brotið gegn lögum um náttúruvernd, þar sem talið var að aksturinn hefði verið honum heimill samkvæmt reglugerð um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands.
E var ákærður fyrir brot gegn 2. mgr. 27. gr. reglugerðar nr. 78/1997 um skráningu ökutækja með því að hafa látið festa spjald fyrir ofan skráningarmerki bifreiðar sem hann hafði umráð yfir. Spjaldið var ekki talið gert úr garði eins og skráningarmerki bifreiðar og nokkurt bil var á milli spjaldsins og merkisins. Ekki var talin slík hætta á að yfirvöld eða almenningur gæti villst á spjaldinu og skráningarmerki bifreiðarinnar að efni væru til að sakfella E. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu E staðfest.