Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-50/2019:

Ákæruvaldið

(Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Adam Czarnowski

(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Gæsluvarðhaldsvist. Játningarmál. Skilorð. Þjófnaður.

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn fíkniefna- og hegningarlögum. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 5 mánuði, skilorðsbundið í tvö ár.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum   á   höfuðborgarsvæðinu   25.   janúar   2019,   á   hendur   Adam Czarnowski, kt. 000000-0000,         [---], 111 Reykjavík, fyrir eftirtalin hegningar- og fíkniefnalagabrot framin á árinu 2018:

I.

  1. Þjófnað með því að hafa, aðfaranótt fimmtudagsins 12. júlí, stolið úr reiðhjólageymslu, að Sturlugötu 8 í Reykjavík, reiðhjóli af tegundinni Cube S1 road að áætluðu verðmæti 100.000 kr. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
  2. Fíkniefnalagabrot með því að hafa, við handtöku í kjölfar þjófnaðar sem greinir í 1. tl., haft í vörslum sínum 0,26 g af amfetamíni sem fannst við líkamsleit lögreglu á ákærða og lagt var hald á.

    Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

II.

Þjófnað   með   því   að   hafa,   á   tímabilinu   frá   kl.   21:30   fimmtudaginn   8. nóvember til kl. 09:00 föstudaginn 9. nóvember, brotist inn í bifreiðina [---], að Skuggasundi í Reykjavík, og stolið úr henni íþróttatösku, íþróttafatnaði, Old spice svitalyktareyði, sólgleraugum, Ipod touch, farsíma af tegundinni Iphone 4s og vasahníf, allt að óþekktu verðmæti, en framangreindir munir, að undanskildum sólgleraugum, fundust í vörslum ákærða við Gistiskýli Reykjavíkurborgar að [---]í Reykjavík. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III.

Fíkniefnalagabrot   með   því   að   hafa,   fimmtudaginn   8.   nóvember,   haft   í vörslum sínum 0,66 g af amfetamíni sem fannst við líkamsleit lögreglu á ákærða, á lögreglustöð að Hverfisgötu 113 í Reykjavík, og lagt var hald á.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

IV.

Þjófnað með því að hafa, sunnudaginn 18. nóvember, stolið úr bifreiðinni [---] að Sölvhólsgötu í Reykjavík, við Skuggasund, Canon myndavél að áætluðu verðmæti 92.000 kr., Cameron myndavélalinsu og linsuvörn að áætluðu verðmæti 62.900 kr., tösku með hleðslutækjum að áætluðu verðmæti 20.000 kr., rafhlöðu fyrir   síma,   spjaldtölvu   af   tegundinni   Ipad   að   áætluðu   verðmæti   132.990   kr., fylgihlutum fyrir GoPro vélar að áætluðu verðmæti 20.000 kr., tveimur usb lyklum að áætluðu verðmæti 10.000 kr. og tveimur minniskortum að áætluðu verðmæti 12.000 kr., samtals verðmæti 349.890 kr., en spjaldtölvan og minniskortin fundust í vörslum ákærða í Gistiskýli Reykjavíkurborgar að [---] í Reykjavík. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

V.

  1. Þjófnað   með   því   að   hafa,   sunnudaginn   18.   nóvember,   brotist   inn   í bifreiðina [---], við Mýrargötu í Reykjavík, og stolið úr henni ljósmynda- og tölvubúnaði að áætluðu verðmæti 1.686.569 kr. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
  2. Fíkniefnalagabrot með því að hafa, á þeim tíma er ákærði var handtekinn í kjölfar brots í 1. tl., haft í vörslum sínum 0,99 g af amfetamíni sem fannst við leit lögreglu í tösku ákærða og lagt var hald á.

    Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

VI.

  1. Þjófnað   með   því   að   hafa,   þriðjudaginn   20.   nóvember,   brotist   inn   í bifreiðina [---], að Sölvhólsgötu 13 í Reykjavík, og stolið úr henni fartölvu og fartölvutösku að óþekktu verðmæti. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
  2. Fíkniefnalagabrot með því að hafa, við handtöku í kjölfar brots í 1. tl., haft í vörslum sínum 7,23 g af amfetamíni sem fannst við líkamsleit lögreglu á ákærða á lögreglustöð að Hverfisgötu 113 í Reykjavík og lagt var hald á.

    Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

VII.

Þjófnað með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 1. desember, brotist inn í hótelið Ice-apartments, að [---] í Reykjavík, og stolið þaðan þremur hnífum og poka að óþekktu verðmæti. Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VIII.

Þjófnað með því að hafa, laugardaginn 1. desember, brotist inn í hótel- og skrifstofuhúsnæði að [---] í Reykjavík, og stolið þaðan eftirfarandi munum að samtals áætluðu verðmæti 565.000 kr.:

Munanúmer: Lýsing munar: Fjöldi: Verðmæti:
476807 Armbandsúr, Paul Smith 1 stk. 30.000 kr.
477057 Armbandsúr 1 stk. 10.000
477058 Sólgleraugu, Ray-Ban 1 stk. 30.000 kr.
477059 Sólgleraugu, Giorgio Armani 1 stk. 40.000 kr.
477060 Skjávarpi, Epson 1 stk. 100.000 kr.
477061 Fartölva 1 stk. 50.000 kr.
477064 Skrúfvél, Makita 2 stk. 1 stk. 100.000 kr. 175.000 kr.
477066 Rafhlaða, Makita Swit S3602F 2 stk. 30.000 kr.
Munanúmer: Lýsing munar: Fjöldi: Verðmæti:
476807 Armbandsúr, Paul Smith 1 stk. 30.000 kr.
477057 Armbandsúr 1 stk. 10.000
477058 Sólgleraugu, Ray-Ban 1 stk. 30.000 kr.
477059 Sólgleraugu, Giorgio Armani 1 stk. 40.000 kr.
477060 Skjávarpi, Epson 1 stk. 100.000 kr.
477061 Fartölva 1 stk. 50.000 kr.
477064 Skrúfvél, Makita 2 stk. 100.000 kr.
477065 Myndbandstökuvél, Sony HXR- NX100 1 stk. 175.000 kr.
477066 Rafhlaða, Makita Swit S3602F 2 stk. 30.000 kr.

Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.   Þess   er   jafnframt   krafist   að   gerð   verði   upptæk   framangreind fíkniefni samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur í mars 1980. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 24. janúar 2019, hefur hann ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Við ákvörðun refsingar er litið til greiðrar játningar hans.

Með hliðsjón af sakarefni þessa máls og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 5 mánuði en fresta skal fullnustu   refsingarinnar   og   falli   hún   niður   að   liðnum   tveimur   árum   frá uppkvaðningu dóms þessa að haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Frá refsingu dregst gæsluvarðhald sem ákærði sætti við rannsókn málsins, eins og nánar greinir í dómsorði.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er gert upptækt til ríkisjóðs 9,14 g af amfetamíni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Inga   Freys Ágústssonar lögmanns, 1.475.600 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, á rannsóknarstigi málsins, Brynjólfs Eyvindssonar lögmanns, 105.400, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Af   hálfu   ákæruvaldsins   flutti   málið   Kristmundur   Stefán   Einarsson saksóknarafulltrúi. Benedikt Smári Skúlason, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Adam Czarnowski, sæti fangelsi í 5 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Til frádráttar refsingunni dregst gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 21. nóvember til 28. nóvember 2018 og frá 2. desember 2018 til 30. janúar 2019. Upptækt er gert til ríkissjóðs 9,14 g  af amfetamíni.

Ákærði   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Inga   Freys Ágústssonar lögmanns, 1.475.600 krónur.

Ákærði greiði þóknun verjanda síns, á rannsóknarstigi málsins, Brynjólfs Eyvindssonar lögmanns, 105.400 krónur.

Benedikt Smári Skúlason