Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lykilorð: Framhaldsákæra
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás og dæmdur í 60 daga fangelsi.
Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi.
Sakfellt og sýkna að hluta fyrir brot gegn valdstjórninni. Einnig sakfellt fyrir þjófnaði og endurtekinn akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna o.fl.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir gripdeild. Framhaldsákæru vísað frá dómi.
Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn
X (enginn)
Staðfest var ákvæði héraðsdóms um að vísa framhaldsákæru frá dómi þar sem annmarki á ákæru í máli sem höfðað var gegn X gat ekki talist til augljósrar villu í skilningi 1. mgr. 153. gr. laga nr. 88/2008. Á hinn bóginn var talið að fram hefði komið fullnægjandi krafa af hálfu A um að X yrði dæmdur til refsingar vegna húsbrots og því var ákvæði héraðsdóms um að vísa þeim ákærulið frá dómi fellt úr gildi.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa slegið A í andlitið með þeim afleiðingum að A hlaut sprungu og bólgu á efri vör. Við ákvörðun refsingar var talið auka á alvarleika verknaðarins að brot X beindist gegn fyrrverandi stjúpsyni hans. Á hinn bóginn var litið til þess að X hafði ekki áður hlotið refsidóm og að nokkur dráttur hafði orðið á málinu. Var refsing X ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 250.000 krónur í miskabætur.