Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. apríl 2026.
Mál nr. S-4276/2025:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Vigni Blæ Sigurðarsyni
(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð
Játningarmál. Skilorð. Upptaka. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærði, sem játaði sök, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnalagabrot.
Dómur
- Mál þetta, sem fyrst var dómtekið 17. mars 2026 en síðan endurupptekið 13. apríl 2026 og dómtekið að nýju þann dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 5. ágúst 2025, á hendur Vigni Blæ Sigurðarsyni, kt. […], […], „fyrir brot gegn vopnalögum með því að hafa:
- Laugardaginn 30. júlí 2022 við […] í Hafnarfirði haft í vörslum sínum og borið á almannafæri án viðhlítandi heimildar og án þess að gæta fyllstu varúðar, loftskammbyssu af gerðinni Dan Wesson.
M:007-2022-[…]
Telst brot þetta varða við 13. gr. og 1. mgr. […] 21. gr., allt sbr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
- Föstudaginn 5. ágúst 2022, á heimili sínu að […] í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum án viðhlítandi heimildar og án þess að vopnin væru skráð á hann og án þess að tryggja viðeigandi geymslu þeirra í aðskildum og læstum hirslum þar sem óviðkomandi aðili næði ekki til þeirra, eftirtalin skotvopn, skotfæri og önnur vopn sem fundust víða um húsnæðið og lögregla lagði hald á við húsleit:
- Litboltabyssu af gerðinni INFERNO
- Litboltabyssu af óþekktri tegund með camo teipi á skafti.
- Ósamsetta litboltabyssu af óþekktri tegund.
- Skotfæri ætlaða í litboltabyssur.
- Gasbyssu hlaðna með járnkúlum og gasi í skotgeymi.
- Sverð í hulstri með 48 sm löngu blaði.
- Tvo stóra gasbyssubrúsa ætlaða í litboltabyssur.
- Skotfæri í haglabyssu 5 stk. 9. 9 mm skotfæri af gerðinni Luger, 25 stk.
- Skotgeymi af gerðinni Luger með 3 stk. af 9 mm skotum í.
- Sex lítil gashylki ætluð í gasbyssur.
- Tvö ílát með 177 cal skotfærum.
M:007-2022-[…]
Telst brot þetta varða við 13. gr., 1. mgr. 23. gr. og 2. mgr. 30. gr. allt sbr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998 sbr. 33. gr. reglugerðar um skotvopn, skotfæri o.fl. nr. 787/1998.
- Laugardaginn 5. ágúst 2022 ofan á afturdekki bifreiðar fyrir utan […] varslað loftskammbyssu af gerðinni Dan Wesson, án viðhlítandi heimildar og án þess að skotvopnið væri skráð á hann og án þess að tryggja viðeigandi geymslu byssunnar í aðskildum og læstum hirslum þar sem óviðkomandi aðili næði ekki til hennar, sem hann vísaði lögreglu á við húsleit.
M:007-2022-[…]
Telst brot þetta varða við 13. gr., og 1. mgr. 23. gr. sbr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998 sbr. 2. mgr. 33. gr. reglugerðar um skotvopn, skotfæri o.fl. nr. 787/1998.
- Að heimili sínu að […] í Hafnarfirði framleitt og varslað þrívíddarprentað skotvopn auk íhluta fyrir skotvopn án viðhlítandi heimildar og án þess að skotvopnið væri skráð á hann og án þess að tryggja viðeigandi geymslu þeirra í aðskildum og læstum hirslum þar sem óviðkomandi aðili næði ekki til þeirra, s.s. skammbyssu, skotgeyma og ýmsa íhluti af ófullgerðum skotvopnum sem lögregla lagði hald á við húsleit þann 5. ágúst 2022.
M: 007-2022-[…]
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. 13. gr., allt sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998 sbr. 2. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 787/1998. […] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá er með vísan til 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998 og 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 krafist upptöku á haldlögðum skotvopnum, skotfærum, íhlutum, tæki til vopnagerðar og öðrum vopnum skv. munaskrá nr. […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […] og […].“
- Upphaflega stóð til að þingfesta mál þetta 25. september 2025 en þar sem birting ákæru og fyrirkalls tókst ekki var gefið út nýtt fyrirkall og málið var þingfest 30. október 2025. Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu þann dag en skipaður verjandi hans sótti þing fyrir hans hönd og óskaði eftir fresti til að fara yfir ákæru og gögn málsins með ákærða. Í þinghaldi 27. nóvember 2025 sótti ákærði þing í gegnum fjarfundarbúnað og játaði sök í ákæruliðum 1 og 3, en neitaði sök í ákæruliðum 2, 4 og 5. Málinu var frestað til aðalmeðferðar til 17. mars 2026, en daginn fyrir aðalmeðferð upplýsti verjandi ákærða dóminn og sækjanda um að ákærði hygðist breyta afstöðu sinni til ákærunnar og játa sök í öllum ákæruliðum. Í þinghaldi síðast greindan dag játaði ákærði skýlaust sök samkvæmt öllum ákæruliðum og samþykkti upptökukröfur.
- Samkvæmt framangreindu voru skilyrði til að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsingin verði skilorðsbundin. Þá krefst verjandi hæfilegrar málsvarnarþóknunar í samræmi við tímaskýrslu.
- Eftir dómtöku málsins 17. mars sl. áttaði dómari sig á því að í ákærulið 5 í ákærunni er ekki tilgreint hvaða lagaákvæði brotið telst varða við, sbr. c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008. Var málið því endurupptekið og sakflytjendum gefinn kostur á að tjá sig um þetta í þinghaldi 13. apríl 2026. Sækjandi upplýsti í þinghaldinu að ákæruvaldið félli frá þessum ákærulið. Var málið dómtekið að nýju að svo búnu og úrskurður kveðinn upp samdægurs.
- Ákærði hefur skýlaust játað brot sín fyrir dómi samkvæmt framangreindu. Með játningu ákærða, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök samkvæmt ákæru með þeim breytingum sem að framan greinir og eru brotin rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.
- Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt sakavottorði, dags. 7. júní 2025, á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 20. nóvember 2018 var ákærða gerð sekt vegna umferðarlagabrots og sviptur ökuréttindum í tvo mánuði. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 12. júní 2020 var ákærða gerð sekt vegna umferðarlaga- og vopnalagabrota og sviptur ökuréttindum í tvö ár. Ákærði var dæmdur í 45 daga fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness 3. maí 2021 vegna umferðarlagabrota og sviptur ökurétti ævilangt. Þá var ákærði dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness 12. janúar 2023 vegna brots gegn 248. gr. almennra hegningarlaga og var þar um hegningarauka að ræða. Loks gekkst ákærði undir sátt hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 7. maí 2024 vegna brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir, sbr. ákæruliði 1–4, eru hegningarauki við dóminn frá 12. janúar 2023 og ber því að ákvarða refsingu hans með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Ákærða til málsbóta verður litið til skýlausrar játningar hans fyrir dómi. Þá hafa miklar tafir orðið á málinu sem ákærða verður ekki kennt um. Jafnframt var upplýst fyrir dóminum að ákærði hefur snúið lífi sínu til betri vegar og hefur hætt allri neyslu og sinnir fullu starfi sem sjómaður í dag. Á hinn bóginn verður ekki með öllu litið fram hjá því að brot ákærða varða vörslur á nokkru magni hættulegra vopna án viðhlítandi heimildar og án þess að gæta fyllstu varúðar eða tryggja viðeigandi geymslu þeirra.
- Að framangreindu virtu og með vísan til 3. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr., sbr. 78. gr., almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga, en í ljósi þeirra tafa sem orðið hafa á málinu þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið eins og nánar greinir í ákæru.
- Samkvæmt greindri niðurstöðu og með vísan til lagaákvæða í ákæru er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er þar fram sett og nánar greinir í dómsorði. Í því sambandi áréttast að einnig er fallist á upptöku á fjaðurhníf (munanr. […]) og piparúða (munanr. […]) þótt fallið hafi verið frá ákærulið 5, en ákærði afsalaði sér þessum munum til lögreglu 22. maí 2024 og staðfesti það í síðari skýrslutöku 25. nóvember 2024.
- Vegna úrslita málsins og með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður ákærða gert að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem með hliðsjón af tímaskýrslu og viðmiðunarreglum dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir hæfilega ákveðin 777.480 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Ekki hlaust annar kostnaður af rekstri málsins.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sonja Wiium saksóknarfulltrúi.
- Guðrún Sesselja Arnardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Vignir Blær Sigurðarson, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði sæti upptöku á haldlögðum skotvopnum, skotfærum, íhlutum, tækjum til vopnagerðar og öðrum vopnum samkvæmt munaskrá nr. […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […], […] og […]. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar, 777.480 krónur.
Guðrún Sesselja Arnardóttir