Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 4. júní 2026.
Mál nr. S-2510/2026:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Gunnari Frey Kristinssyni
(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Ítrekun. Rán. Skilorð.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir rán og dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 1. júní sl., var höfðað með ákæru, útgefinni af Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu 13. maí 2026, á hendur: „Gunnar Freyr Kristinsson, […], fyrir tilraun til ráns, með því að hafa, föstudaginn 10. nóvember 2023, farið inn í verslun Lyfju að […] í Reykjavík, vopnaður tveimur hnífum og ógnað starfsmanni verslunarinnar, A, kt. […], með öðrum hnífnum og krafið hana um að afhenda sér lyfin Oxycontin og Sobril, en ákærði var handtekinn af lögreglu á vettvangi áður en honum tókst að komast yfir lyfin.
Telst háttsemi þessi varða við 252. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
M: 007-2023-[…]
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
I
- Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.
II
- Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 24. apríl 2026, á ákærði sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2016. Við ákvörðun refsingar ákærða nú hefur einkum þýðingu að ákærði var með dómi héraðsdóms 24. febrúar 2021 gert að sæta fangelsi í fimm mánuði vegna þjófnaðar, ráns, líkamsárásar, eignaspjalla og brots gegn sóttvarnalögum. Var refsingin hegningarauki við þriggja mánaða skilorðsbundna fangelsisrefsingu samkvæmt dómi héraðsdóms frá 14. október 2020 vegna þjófnaðar og var sá dómur dæmdur upp. Þá var ákærði með dómi héraðsdóms 27. júní 2023 dæmdur í 8 mánaða fangelsi vegna ráns, gripdeildar og þjófnaðar og brots gegn vopnalögum.
Þann 3. október 2023 fékk ákærði reynslulausn í eitt ár vegna eftirstöðva refsingarinnar, 90 daga. Var ákærði, með úrskurði héraðsdóms 11. nóvember 2023, talinn hafa rofið reynslulausnina með broti því sem hann hefur nú verið sakfelldur fyrir. Ákærði lauk afplánun dómsins 9. febrúar 2024.
- Við ákvörðun refsingar verður til refsiþyngingar litið til sakarferils ákærða en brot ákærða telst vera ítrekað vegna framangreindra dóma frá 24. febrúar 2021 og 27. júní 2023, sbr. 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og til alvarleika brotsins.
Ákærða til málsbóta er litið til þess að hann játaði skýlaust brot sitt fyrir dómi, sbr. 8. töluliður 1. mgr. 70. gr. sömu laga. Samkvæmt skýrslu sem ákærði gaf 11. nóvember 2023, eða daginn eftir að hann var handtekinn, kvaðst hann hafa framið brotið af því að hann yrði að komast í fangelsi til að láta renna af sér, fara í niðurtröppun. Eins og að framan er rakið var ákærði þá talinn hafa rofið reynslulausn og var hann færður í afplánun. Samkvæmt framlögðu vottorði frá Meðferðarheimilinu í […], dagsettu 1. júní sl., hóf ákærði meðferð í […] er hann lauk afplánun 9. febrúar 2024 og útskrifaðist þaðan 2. október 2024. Við meðferð málsins kom fram að ákærði býr nú á […] og er í […] og er fyrirhugað að hann útskrifist þaðan í desember 2026. Einnig kom fram að hann hafi sótt og sækir enn AA-fundi. Af þessu verður ráðið að ákærði hefur unnið mikið í sínum málum og er staða hans gjörbreytt frá því hann framdi brotið. Þá voru liðin um tvö og hálft ár frá því brotið var framið þegar ákæra málsins var gefin út en samkvæmt málsgögnum lauk rannsókn þess að mestu 11. nóvember 2023, daginn eftir að ákærði var handtekinn. Er ekki fram komin skýring á þeim drætti sem orðið hefur á meðferð málsins.
Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði skilorðsbundið eins og í dómsorði greinir.
- Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar, sem alls er ákveðin 150.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá greiði ákærði 193.440 krónur í annan sakarkostnað.
- Sigríður Elsa Kjartansdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Gunnar Freyr Kristinsson, sæti fangelsi í átta mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústsonar lögmanns, sem alls er ákveðin 150.000 krónur, og 193.440 krónur í annan sakarkostnað.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir (sign)