Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

859 dómar fundust

Lykilorð: Ítrekun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2026 kl. 14:52

S-2510/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi) gegn Gunnari Frey Kristinssyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Lykilorð: Fangelsi. Ítrekun. Rán. Skilorð.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir rán og dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-2842/2025

Málið nr. S-2842/2025 Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ingimundi Brynjari Kjartanssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir nokkur umferðarlagabrot og dæmdur í 4 mánaða fangelsi, jafnframt því sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Vesturlands birt 5. mars 2026

S-267/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ólafi Hauki Atlasyni (Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur og akstur án ökurréttinda. Um var að ræða hegningarauka og ákærða ekki gerð frekari refsins en ævilöng ökuleyfissvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2026

S-4825/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Eimantas Dumcius (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Maður, sem játaði sök fyrir dómi, sakfelldur fyrir sjö þjófnaðarbrot og brot gegn vopnalögum. Eldri dómur tekinn upp þar sem um skilorðsrof var að ræða að hluta til. Dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu þriggja mánaða af þessum sex frestað skilorðsbundið í tvö ár. Ísexi gerð upptæk.

Héraðsdómur Suðurlands birt 21. janúar 2026

S-334/2025

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jóni Þór Gíslasyni (Sverrir Sigurjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um líkamsárásir og umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í átta mánuði. Þá var ákærða gert að greiða brotaþola skaðabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. janúar 2026

S-600/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ismael Imaalitane Maali (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í fimm mánuði og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. janúar 2026

S-597/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Aroni Þormari Thomassyni (Andri Björgvin Arnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti og honum gert að sæta fangelsi. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldri dóms og var refsingin dæmd upp. Þá var ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. janúar 2026

S-4019/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Einari Sörla Einarssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir húsbrot og umferðarlagabrot en sýknað af ákæru um hótun. Ákærði dæmdur til að sæta skilorðsbundinni fangelsisvist í þrjá mánuði.

Landsréttur birt 20. nóvember 2025

106/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn Mohamed Hicham Rahmi (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

M var sakfelldur fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í sameiningu með öðrum staðið að því að flytja inn 1.988,99 grömm af kókaíni af tilteknum styrkleika, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa átt samtals 226,55 grömm af kókaíni sem ætlað var til sölu og dreifingar sem meðákærði í héraði hafði í vörslum sínum og fundust við leit í bifreið. Auk þessa var hann jafnframt sakfelldur fyrir brot gegn lyfjalögum nr. 100/2020 og lögum nr. 84/2018 um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum með því að hafa haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, samtals 234,45 grömm af kókaíni, 498,33 grömm af hassi, 4,75 grömm af metamfetamíni, 555 stykki af alprazolam Krka 1 milligramms töflum og 4 millilítra af testósteroni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot ákærða lutu að innflutningi á miklu magni sterkra fíkniefna í samverknaði við aðra. Þá hefðu brot ákærða verið framin í ágóðaskyni og einkennst af sterkum brotavilja auk þess sem hann hafði skipulagt innflutninginn. Þá var jafnframt horft til þess að hann hafði áður verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir brot á 173. gr. a almennra hegningarlaga auk þess sem hann hafði hlotið eins og hálfs árs fangelsisdóm í Svíþjóð fyrir fíkniefnasmygl sem einnig hefur ítrekunaráhrif hér á landi. Refsing M var ákveðin fangelsi í fjögur ár og sex mánuði en til frádráttar refsingunni kæmi gæsluvarðhald sem hann hefði sætt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. nóvember 2025

S-402/2025

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Jakobi Smára Erlingssyni (sjálfur)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta fangelsi í 15 daga. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Suðurlands birt 2. október 2025

S-383/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Ralf Raagas Landayan (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og ítrekaðan akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 120 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar hans.

Landsréttur birt 2. október 2025

807/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir ríkissaksóknari) gegn Kristni Magnússyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

K var í héraði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa tvívegis ekið bifreið sviptur ökurétti. Með brotunum rauf K skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og var K gert að sæta 32 mánaða fangelsi. Fyrir Landsrétt lagði K fram ný gögn um breytta hagi hans til hins betra. Í ljósi sakarefnis málsins og dómvenju taldi Landsréttur ekki efni til annars en að staðfesta hinn áfrýjaða dóm. Var þá meðal annars litið til þess að samkvæmt dómvenju væri ekki gerður greinarmunur á akstri undir áhrifum áfengis eða vímuefna og akstri án ökuréttinda.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. september 2025

S-277/2025

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Kjartani Þór Kristgeirssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot með því að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökurétti, auk ölvunaraksturs í eitt framangreindra skipta. Voru brot ákærða ítrekuð og honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, auk þess sem honum var gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. september 2025

S-4179/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Eva Lind Ingadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jóni Gunnþórssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í 8 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð þjófnaðarbrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nytjastuld og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júlí 2025

S-3668/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Stefáni Erni Oddssyni (Elimar Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 165 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. júlí 2025

S-3357/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Guðmundi Helga Birgissyni (Jóhann Baldursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, um var að ræða skilorðsrof og var refsing samkvæmt fyrri dómi dæmd upp.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2025

S-2039/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Jhon Sebastian A. Sevillano (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsinar og sviptingu ökuréttar ævilangt fyrir fíkniefna-, vopna-, umferðar- og lögreglulagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. maí 2025

S-1166/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Guðbjörgu Birgisdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Dæmd í 90 daga fangelsi og ævilöng svipting áréttuð.

Landsréttur birt 10. apríl 2025

717/2024

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Anítu Ósk Haraldsdóttur (Steinbergur Finnbogason lögmaður)

A var sakfelld fyrir eignaspjöll, brot gegn valdstjórninni, vopnalagabrot, brot gegn lögreglulögum og umferðarlagabrot samkvæmt nokkrum ákæruliðum. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hún hefði gerst sek um fjölmörg afbrot á tæplega átta mánaða tímabili. Skýlaus játning A var virt henni til refsimildunar en á hinn bóginn þótti ekki unnt að horfa fram hjá því að brot hennar væru ítrekuð og bæru vott um einbeittan ásetning sem hefði áhrif til refsihækkunar, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var refsing A ákveðin sem hegningarauki við fyrri dóm. Sá dómur, sem var skilorðsbundinn, var jafnframt tekinn upp og A dæmd refsing í einu lagi. Þá hafði dómurinn ítrekunaráhrif á brot A samkvæmt II. kafla ákæru. Enn fremur var litið til þess að brot A samkvæmt II. kafla ákæru voru framin þegar hún var í gæslu lögreglu. Samkvæmt öllu framangreindu þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði, en fullnustu 11 mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var henni gert að sæta upptöku á úðavopni og viðurkennd bótaskylda hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. apríl 2025

S-666/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Björgvini Sigurðarsyni (Sverrir Halldórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í 225 daga fangelsi. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. apríl 2025

S-7817/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ragnheiði Sif Arnfjörð Smáradóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Dæmd í 30 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. mars 2025

S-680/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Sveinbirni Á. S. Fanndal (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur sviptur ökurétti. Með broti sínu hafði ákærði rofið skilorðs eldri dóms og var refsingin dæmd upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, sem skilorðsbundið var að hluta. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. mars 2025

S-828/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Dainis Jekabsons (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. febrúar 2025

S-6860/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Kristleifi Kristleifssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði, sem játaði brot sín, var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, m.a. líkamsárásir, rán, þjófnað og gripdeildir, auk vopnalaga- og umferðarlagabrots. Var ákærði dæmdur í fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði og gert að sæta sviptingu ökuréttar og upptöku haldlagðra fíkniefna og muna, auk þess sem hann var dæmdur til greiðslu skaða- og miskabóta.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. febrúar 2025

S-362/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jóni Gunnþórssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ýmis hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot, þ.m.t. ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna og akstur sviptur ökurétti. Var honum dæmdur hegningarauki við eldri dóm og gert að sæta að fangelsi í níu mánuði, jafnframt sekt. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. febrúar 2025

S-462/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn Dagnýju Birgisdóttur (Þuríður B. Sigurjónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundin sek um ítrekaðan ölvunarakstur sem og akstur svipt ökurétti. Var henni gert að sæta fangelsi í 60 daga jafnframt sekt og hún svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. janúar 2025

S-5138/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Aroni Ívari Sigurbjörnssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 7 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2024

S-274/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Óskari Svani Barkarsyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur til refsingar fyrir akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna. Var honum gert að greiða 150.000 króna sekt auk þess sem hann var sviptur ökurétti í þrjú ár frá birtingu dómsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. desember 2024

S-2543/2024

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Valgeiri Elís Marteinssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, fyrir að aka sviptur ökurétti í annað sinn og akstur undir áhrifum í þriðja sinn innan ítrekunartíma.

Landsréttur birt 17. desember 2024

767/2023

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Einari Inga Kristinssyni (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

E var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot E teldist ítrekað í þriðja sinn í skilningi 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og þótti refsing E hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Hleð fleiri dómum…