Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-2842/2025:

Málið nr. S-2842/2025:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Ingimundi Brynjari Kjartanssyni

Dómur:

(Snorri Sturluson lögmaður)

Fangelsi. Ítrekun. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir nokkur umferðarlagabrot og dæmdur í 4 mánaða fangelsi, jafnframt því sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Mál þetta var þingfest 27. október 2025 og dómtekið 29. apríl 2026. Málið höfðaði Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru útgefinni 23. september 2025 á hendur ákærða, Ingimundi Brynjari Kjartanssyni, kt. […], fyrir eftirgreind brot, svo sem ákæru var breytt á dómþingi 29. apríl:

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 29. janúar 2024 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Auðbrekku í Kópavogi, við hús nr. 10, þar sem ákærði ók aftan á bifreiðina […] og ekki sinnt skyldum sínum við umferðaróhapp heldur farið á brott af vettvangi.

Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 14. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 1. maí 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti, óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni ákærða mældist kókaín 26 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 7,4 ng/ml) og án þess að nota öryggisbelti um Reykjanesbraut í Reykjavík, við Sprengisand, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn […].

Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 77. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 30. júlí 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Auðbrekku í Kópavogi, við Útfararstofu Íslands.

Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga.

Af hálfu ákæruvaldsins er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til sviptingar ökuréttar samkvæmt 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Á dómþingi 17. nóvember 2025 neitaði ákærði sök samkvæmt 1. tölulið ákæru og neitaði þeirri sök samkvæmt 2. tölulið að hafa haft í sínum vörslum tvo kasthnífa sem lögregla fann í bifreiðinni […]. Í framhaldi féll ákæruvaldið frá ákæru fyrir meint vopnalagabrot. Á boðuðum aðalmeðferðardegi 29. apríl sl. breytti ákærði afstöðu sinni til sakarefnis samkvæmt 1. tölulið ákæru og játaði skýlaust þá háttsemi sem honum er þar gefin að sök. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar og sviptingar ökuréttar sem lög leyfa. Þá krefst verjandi þóknunar sér til handa að mati dómsins.

Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum máls, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefið að sök í 1., 2. og 3. tölulið hinnar breyttu ákæru og þar þykir í öllum tilvikum rétt heimfærð til refsiákvæða.

Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann 1. mars 2019 undir 900.000 króna fésekt, meðal annars fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum ávana- og fíkniefna og var jafnframt sviptur ökurétti í 30 mánuði frá þeim degi að telja. Með dómi 11. nóvember 2020 var ákærði dæmdur til greiðslu 2.290.000 króna fésektar fyrir að hafa í sex skipti ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna á tímabilinu 24. nóvember 2019 til 16. febrúar 2020, jafnframt því sem ákærði var þá sviptur ökurétti í fimm ár frá 1. september 2021 að telja. Loks var ákærði 27. september 2023 dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, jafnframt því sem hann var sviptur ökurétti ævilangt 30. september 2024.

Ákærði er nú í fjórða skipti sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þriðja skipti fyrir akstur sviptur ökurétti. Að gættum þeim sakaferli ákærða, fjölda brota sem hann er sakfelldur fyrir í þessu máli og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði.

Ákærði hefur jafnframt unnið til sviptingar ökuréttar samkvæmt 99. og 101. gr. umferðarlaga. Að gættum sakaferli ákærða ber að svipta hann ökurétti ævilangt frá dómsbirtingu að telja.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 204.010 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins og þóknun Snorra Sturlusonar verjanda ákærða hjá lögreglu og fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjandans hæfilega ákveðin 282.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dómurinn er kveðinn upp af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara.

Dómsorð:

Ákærði, Ingimundur Brynjar Kjartansson, sæti fangelsi í fjóra mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá dómsbirtingu að telja.

Ákærði greiði 486.730 krónur í sakarkostnað, þar með talda 282.720 króna þóknun Snorra Sturlusonar verjanda síns.

Jónas Jóhannsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 77. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 14. gr.2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 77. gr.1. mgr. 94. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.