Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Gunnari Frey Kristinssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir rán og dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Breka Þór Frímannssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sem játaði sök var dæmdur til að sæta fangelsi í 8 mánuði fyrir m.a. sérstaklega hættulega líkamsárás og rán. Var um að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómi.
Ákærðu S, L og M var gefið að sök manndráp, frelsissvipting og rán með því að hafa í félagi svipt A lífi og beitt hann í aðdraganda þess margþættu og hrottafengnu líkamlegu ofbeldi, sbr. ákærulið I, og tilraun til fjárkúgunar, sbr. ákærulið II. Þá var ákærða X gefið að sök peningaþvætti með því að hafa samþykkt, að beiðni L og M, að taka við millifærslu inn á bankareikning sinn af bankareikningi A, sbr. ákærulið III. Loks var ákærðu R gefin að sök hlutdeild í frelsissviptingu og ráni í ákærulið I, sbr. ákærulið IV. Með hinum áfrýjaða dómi voru S, L og M sakfelldir samkvæmt ákærulið I og var S einnig sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið II en L og M sýknaðir. Þá var X sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið III en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið. Loks var R sýknuð af sakargiftum samkvæmt ákærulið IV. Var ákærðu S og L gert að sæta fangelsi í 17 ár og M fangelsi í 14 ár. Loks var S, L og M gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Í dómi Landsréttar var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að S, L og M hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem lýst væri í ákærulið I og staðfesti Landsréttur sakfellingu ákærðu fyrir manndráp, sbr. 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, frelsissviptingu og rán. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms varðandi ákærulið II. Að mati Landsréttar þótti ákæruvaldinu ekki hafa tekist að sanna, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði haft vitneskju um að upplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti og að hann hefði verið bær til að veita samþykki sitt til þess á verknaðarstundu. Sýknaði Landsréttur því X samkvæmt ákærulið III. Loks taldi Landsréttur að þáttur R í aðdraganda frelsissviptingar A uppfyllti skilyrði til að teljast hlutdeild í frelsissviptingu A en ákæruvaldinu hefði aftur móti ekki tekist sönnun um það að ásetningur R hefði staðið til þess að A yrði beittur líkamlegu ofbeldi til að ná af honum fé. Var R því sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknuð af hlutdeild í ráni samkvæmt ákærulið IV. Var refsing S og L ákveðin fangelsi í 16 ár, refsing M fangelsi í 12 ár auk þess sem þeim var gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Loks var R gert að sæta fangelsi í 6 mánuði sem bundið var skilorði.
Ákærði X var sakfelldur fyrir tvö rán framin annars vegar í félagi við meðákærða Gabríel og hins vegar í félagi við meðákærða Y, tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir, aðra framda í félagi við meðákærða Gabríel, auk sérrefsilagabrota. Ákærði Gabríel var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og hlutdeild í ráni, framið í félagi við meðákærða X. Ákærði Y var sakfelldur fyrir rán framið í félagi með X. Var ákærði X dæmdur í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi, Gabríel var dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi og Y var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ákærði X var jafnframt sviptur ökurétti í 18 mánuði og gert að sæta upptöku fíkniefna og vopna.
Allir ákærðu sakfelldir fyrir fjárkúgun, rán og brot á barnaverndarlögum eða fyrir hlutdeild í þeim brotum. Einnig sakfellt fyrir minniháttar líkamsárás, eignaspjöll, þjófnað o.fl.
Ákærði sakfelldur fyrir rán, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Hegningarauki.
Ákærðu voru báðir sakfelldir fyrir rán og annar þeirra að auki fyrir að aka bifreið undir áhrifum sviptur ökurétti, vörslur fíkniefna og vopnalagabrot. Ákæru vegna peningaþvættis vísað frá dómi.
Þrír menn voru sakfelldir fyrir manndráp, rán og frelsissviptingu og einn þeirra þar að auki fyrir tilraun til fjárkúgunar. Var tveimur þeirra gert að sæta fangelsi í 17 ár, en þeim þriðja í 14 ár, þar sem þótti hafið yfir allan vafa að það sem olli andláti brotaþola voru þeir áverkar sem ákærðu veittu honum, þeir hafi staðið saman að því allir þrír að beita brotaþola ofbeldi ásamt því að skilja hann eftir varnarlausan og ennfremur að ákærðu hafi ekki geta dulist mögulegar afleiðingar brota þeirra en þeir látið sér það í léttu rúmi liggja. Þá var fjórði maðurinn fundinn sekur um peningaþvætti, en ákvörðun um refsingu hans var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Loks var kona sýknuð af ákæru af hlutdeild í áðurnefndri frelsissviptingu og ráni. Þá var þremur mönnum gert að greiða brotaþolum skaða- og miskbætur ásamt málskostnaði. Þá var ákærðu gert að greiða sakarkostnað.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Ísaki Gunnlaugssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um rán, sem og akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ekki var fallist á að skilyrði væru til að færa refsingu niður úr því lágmarki sem 252. gr. hegningarlaga mælir fyrir um. Var ákærða því gert að sæta fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærða jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti tímabundið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Vilhjálmi Frey Björnssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og tilraun til ráns.
Ákæruvaldið (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Alex Laxdal Apelewicz
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, rán og tilraun til ráns.
G var ákærður fyrir rán og sérstaklega hættulega líkamsárás með því að hafa brotist inn í íbúð og með hótunum, vopnaður hnífi, neytt A til að afhenda sér nánar tiltekna fjárhæð og veist að B með ofbeldi, tekið hana hálstaki og stungið hana með hnífnum í hægri framhandlegg og hægri fótlegg með nánar tilteknum afleiðingum. Ákærði neitaði sök en Landsréttur taldi framburð beggja brotaþola um að hann hefði veist að þeim í umrætt sinn trúverðugan og mun trúverðugri en framburð ákærða. Var framburður þeirra því lagður til grundvallar í málinu. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærða og heimfærslu til refsiákvæða. Refsing ákærða, 15 mánaða fangelsi, var jafnframt talin hæfilega ákveðin í hinum áfrýjaða dómi en við ákvörðun refsingar leit Landsréttur meðal annars til þess að brot ákærða hefðu verið alvarleg og hann ætti nokkurn sakarferil að baki. Á hinn bóginn var einnig litið til þess að af nýjum gögnum í málinu yrði ráðið að ákærði hefði náð að bæta ráð sitt. Þá voru ákvæði héraðsdóms um miskabætur staðfest, að því frátöldu að miskabætur B þóttu hæfilega ákveðnar 1.000.000 króna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ívari Smára Guðmundssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, umferðar-, vopna-, fíkniefna- og lögreglulögum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rebekku Eir Stefánsdóttur (
Oddgeir Einarsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir þjófnaði, rán og umferðarlagabrot.
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot, m.a. ofbeldisbrot, rán, nytjastuld og brot á vopnalögum. Hann játaði brot sín skýlaust.
F var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa farið grímuklæddur og vopnaður hlaðinni og afsagaðri haglabyssu inn á tilgreindan veitingastað og beint henni í átt að þremur viðskiptavinum og barþjóni, sem voru við barborð staðarins, og án viðvörunar og fyrirvaralaust hleypt af einu skoti þannig að höglin höfnuðu í innréttingu staðarins og áfengisflöskum, rétt ofan og til hliðar við fólkið, með þeim afleiðingum að flöskurnar splundruðust og glerbrotum rigndi yfir þau. Þá voru F og A sakfelldir fyrir að hafa í félagi svipt E frelsi sínu, í um fimm klukkustundir, á heimili E, og beitt hann ofbeldi og hótunum í því skyni að ná frá honum verðmætum, en þeir bundu E á höndum og fótum við rúm hans, þar sem F hótaði honum lífláti og annars konar ofbeldi og neyddi hann þannig til að gefa upp lykilorð að farsíma og heimabanka, meðan A safnaði saman tilgreindu lausafé í eigu E sem þeir báru í sameiningu út í bifreið og hurfu á braut og skildu E eftir bundinn, allt með þeim afleiðingum að E varð fyrir líkamstjóni. F var jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun og annars konar kynferðisbrot með því að hafa í framangreint sinn þar sem E lá bundinn í rúminu haft við hann önnur kynferðismök með nánar tilgreindum hætti og á sama tíma tekið athæfið upp á farsíma og hótað dreifingu þess ef hann leitaði til lögreglu. Loks var A sakfelldur fyrir margvísleg umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og tilgreint þjófnaðarbrot. Við ákvörðun refsingar F og A var höfð hliðsjón af 1., 2. og 3. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og samverknaðar þeirra við hluta brotanna, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Var þeim jafnframt gerður hegningarauki, sbr. 1. mgr. 78. gr. sömu laga. Loks voru eldri skilorðsdómar teknir upp og þeim gerð refsing í einu lagi sbr. 60. gr. og 1. mgr. 77. gr. sömu laga. Jafnframt var vísað til þess að kynferðisbrot F gegn E hefði verið framið á sérstaklega sársaukafullan og meiðandi hátt, sbr. c-lið 195. gr. sömu laga. Refsing F var ákveðin fangelsi í 10 ár og A fangelsi í þrjú ár. Var þeim jafnframt gert að greiða brotaþolum skaða- og miskabætur.
Tveir ungir karlmenn voru sakfelldir fyrir rán og fleiri auðgunarbrot, auk sérrefsilagabrota. Hlaut annar þeirra 10 mánaða fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðsbundiið, fyrir tvö ránsbrot framin í félagi við aðra. Hinn átti langan sakaferil að baki og var sakfelldur fyrir tvö ránsbrot og mikinn fjölda þjófnaðarbrota. Hlaut hann tveggja ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm. Ákærðu var báðum metið til tekna að hafa játað öll brotin greiðlega fyrir dómi og gengist við bótaskyldu gagnvart tjónþolum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis hegningar- og sérrefsilagabrot, en refsing var ekki talin bera árangur sbr. 16. gr. almennra hegningarlaga og ákærða var gert að sæta vistun á viðeigandi stofnun.
Þjófnaður og rán.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Brynjari Leó Hjartarsyni (
Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir nytjastuld, rán, umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kristófer Axel Smith Axelssyni (
Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, m.a. fyrir rán, húsbrot og umferðarlagabrot.
Tvö ungmenni voru sakfelld fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, rán og eignaspjöll fyrir að ráðast á þriðja ungmennið þar sem það sat í bifreið og berja það í höfuðið með hamri sem og að slá það ítrekað. Það ungmennið sem vopnað var hamrinum var sakfellt um að hafa í framhaldi af árásinni brotið rúður í bifreið sem brotaþoli sat í, auk þess að valda öðrum skemmdum á bifreiðinni.
Ákæruvaldið (
Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gabríel Aroni Sigurðarsyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir rán og sérstaklega hættulega líkamsárás
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
X..., og Uvis Salmanis
Maður sakfelldur fyrir líkamsárás og rán.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Íris Þóra Júlíusdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eduards Baumanis (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir rán og dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Ákærðu sakfelldir fyrir rán og líkamsárás og dæmdir í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu bóta og gert að sæta upptöku á hníf og hamri. Annar ákærðu var einnig dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti vegna umferðarlagabrota.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hannesi Björgvini Kristiansson (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir rán. Hann játaði brot sitt skýlaust. Refsimildandi sjónarmið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Benedikt Má Ingibjargarsyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sín, dæmdur í fangelsi í 7 mánuði fyrir fjársvik og rán, nytjastuld og umferðarlagabrot, húsbrot og þjófnað.
Ákærðu sakfelldir fyrir nokkur brot, ýmist framin saman eða í sitthvoru lagi, þar með talið rán.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn
Aleksandrs Cvetkovs
Maður sakfelldur fyrir líkamsárás og rán.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Pétur Fannar Gíslason saksóknarfulltrúi)
gegn
Adam Erni Andersen (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ofbeldisbrot og rán. Hann játaði brot sitt skýlaust. Hegningarauki.
Rán.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi)
gegn
Birni Sigurðssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Sakfellt fyrir rán.
Ákæruvaldið (
Benedikt Smári Skúlason saksóknarfulltrúi)
gegn
Gunnari Frey Kristinssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Sakfellt fyrir rán, þjófnað, gripdeild og vopnalagabrot.
Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem Þ var sakfelldur fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 226. gr., 2. mgr. 218. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í félagi við aðra svipt A frelsi sínu í um fjórar klukkustundir við ógnvekjandi aðstæður, hótað honum og beitt hann alvarlegu ofbeldi. Ý var sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu A, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. Jafnframt var Þ sakfelldur fyrir nánar tilgreind brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, áfengislagabrot og vopnalagabrot. Þá var Þ sakfelldur fyrir ólögmæta nauðung, frelsissviptingu, tilraun til fjárkúgunar og rán gagnvart B, sbr. 1. mgr. 255. gr., 1. sbr. 2. mgr. 226. gr., 251. gr. sbr. 20. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa í félagi við annan mann svipt B frelsi sínu í um tvær klukkustundir, hótað honum og beitt hann ofbeldi. Var Þ gert að sæta fangelsi í fjögur ár og greiða A 3.500.000 króna í miskabætur óskipt með Ý ásamt nánar tilgreindum vöxtum og B 1.500.000 króna í miskabætur ásamt nánar tilgreindum vöxtum. Var Ý gert að sæta fangelsi í 12 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. rán, eignaspjöll, þjófnað og umferðarlagabrot og dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti í 3 ár.
Eignaspjöll, rán og umferðarlagabrot. Refsing ákveðin sem hegningarauki við eldri skilorðsdóm sem var dæmdur upp og fésekt dæmd vegna umferðarlagabrota, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar. Einnig voru dæmdar miska- og skaðabætur.
Ákærði sakfelldur fyrir rán og vopnalagabrot og dæmdur til greiðslu miskabóta. Sekt. Upptaka. Játningarmál.
Ákærðu voru sakfelldir fyrir fyrir frelsissviptingu og rán framið í félagi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Theódóri Gunnari Smith (
Birkir Már Árnason lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fjölmörg brot, m.a. auðgunarbrot, fíkniefnalagabrot, rán, vopnalagabrot, umferðarlagabrot og hættubrot. Hann játaði brot sín skýlaust.
Ákærðu O, A og S voru sakfelldir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu, rán og hótanir auk greiðslu skaða- og miskabóta til brotaþola. Þeir voru einnig sakfelldir fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og ólögmæta nauðung gagnvart C en hann lést fyrir aðalmeðferð málsins. Ákærði O var sakfelldur fyrir nytjastuld og til greiðslu skaðabóta. Ákærða R var sakfelld fyrir hótanir en sýknuð af greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Óðni Þór Ingólfssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefna-, hegningar- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 16 mánuði. Hann játaði brot sín skýlaust að hluta til.
Sakfellt og sýknað af ákæru vegna ráns.
Ákæruvaldið (
Sonja H. Berndsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðmundi Viktori Viðarssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir rán, tilraun til þjófnaðar, vopnalagabrot og lyfja- og fíkniefnaakstur
Ákærðu sakfelld fyrir ýmis brot samkvæmt fimm ákærum, þ. á m. tvær frelsissviptingar, stórfellda líkamsárás, rán, hótanir, ólögmæta nauðung, fjársvik, brot á vopnalögum, fíkniefnalögum og áfengislögum. Tvö hinna ákærðu voru sýknuð. Hin sakfelldu voru dæmd til fangelsisvistar frá einu og upp í fjögur ár. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 3.500.000 krónur og öðrum brotaþola 1.750.000 krónur. Loks var ákærðu gert að greiða þriðja brotaþola 3.716.454 krónur í skaðabætur.
Héraðssaksóknari (
Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hinrik Inga Óskarssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir frelsissviptingu, rán, líkamsárás, eignaspjöll, brot á nálgunarbanni, akstur undir áhrifum fíkniefna og lyfja og fleiri umferðarlagabrot.
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot og rán. Ákærði játaði brot sín að hluta. Litið var til refsimildandi sjónarmiða við ákvörðun refsingar, m.a. andlegs þroska ákærða.
Sakfellt fyrir tilraun til ráns, þjófnað, vopnalagabrot og fíkniefna-, sviptingar- og hraðakstur.
Ákæruvaldið (
Sonja H. Berndsen aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Magnús Jónsson lögmaður)
Ungur karlmaður var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir tvö vopnuð rán í apótekum og fyrir vopnalagabrot með því að hafa farið in í þriðja apótekið með hníf í fórum sínum.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Martin Erni Arnarsyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, vopnalaga-, fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot.