Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 27. maí 2026.
Mál nr. S-5560/2025:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Breka Þór Frímannssyni
(Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fíkniefnalagabrot. Hegningarauki. Játningarmál. Rán. Sérstaklega hættuleg líkamsárás. Upptaka. Vopnalagabrot.
Útdráttur
Ákærði sem játaði sök var dæmdur til að sæta fangelsi í 8 mánuði fyrir m.a. sérstaklega hættulega líkamsárás og rán. Var um að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómi.
Dómur
Mál þetta sem dómtekið var 8. maí sl. var höfðað með tveimur ákærum á hendur Breka Þór Frímannssyni, kt. […], […]. Sú fyrri var útgefin af héraðssaksóknara 9. október 2025, „fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 5. febrúar 2023, í […], Reykjavík, íbúð […], veist með ofbeldi að A, kt. […], með því að kýla A ítrekað í höfuðið með krepptum hnefa þannig að hann féll í gólfið og framhaldinu stappað ítrekað á höfði A þar sem hann lá í gólfinu, allt með þeim afleiðingum að A hlaut yfirborðsáverka og opið sár á hársverði, marga yfirborðsáverka á höfði, yfirborðsáverka á eyra og mar á augnloki og augnsvæði.
Telst þetta varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Síðari ákæran er útgefin af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 28. október 2025 fyrir „I Vopna- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 15. nóvember 2023, við […] í Reykjavík, haft í vörslum sínum fjaðurhníf með svörtu skafti á almannafæri, 7,67 grömm af amfetamíni, 0,76 grömm af kókaíni, 0,98 grömm af MDMA og 0,43 grömm af metamfetamíni sem fannst við öryggisleit á ákærða á lögreglustöðinni við Hverfisgötu [113] í Reykjavík.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 30. gr., sbr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998 og 2., sbr. 5. og 6., gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
II.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa sunnudaginn 24. mars 2024, við Hverfisgötu [113] í Reykjavík, haft í vörslum sínum 51,21 [gramm af] amfetamíni sem [fannst] við öryggisleit á ákærða.
Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 5. og 6., gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
III.
Fyrir rán, vopna- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 4. desember 2024, við […] í Reykjavík, í félagi við þekktan aðila, farið inn í bifreið B, kt. […], ógnað honum með hníf og þannig fengið hann til þess að millifæra 36.000 kr. á reikning ákærða og tekið af honum 15.000 kr. í peningaseðlum, við öryggisleit á ákærða fundust 0,83 grömm af marijúana í úlpuvasa.
Telst háttsemi þessi varða við 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 30. gr., sbr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998 og 2., sbr. 3., sbr. 5. og 6., gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
IV.
Vopnalagabrot með því að hafa laugardaginn 18. janúar 2025, við […] í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum á almannafæri hníf með svörtu skafti sem lögregla fann við öryggisleit.
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 30. gr., sbr. 36. gr., vopnalaga nr. 16/1998.
V.
Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 1. febrúar 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist amfetamín 310 ng/ml og MDMA 65 ng/ml) um […], Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2., mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr., umferðarlaga nr. 77/2019.
VI.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 28. desember 2023, haft í vörslum sínum 0,86 grömm af kókaíni sem fundust við öryggisleit á ákærða í fangelsinu Hólmsheiði.
Telst háttsemi þessi varða við 2., sbr. 5. og 6., gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
Þá er krafist upptöku á 1,62 grömmum af kókaíni, 58,88 grömmum af amfetamíni, 0,98 grömmum af MDMA, 0,43 grömmum af metamfetamíni, 0,83 grömmum af marijúana, hníf með svörtu skafti (munur nr. […]), hníf með svörtu skafti (munur nr. […]) sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.“
Málin voru sameinuð.
Ákærði hefur játað brot sín skýlaust. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærum.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Verjandi ákærða krefst þess að hann verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir hann kröfu um málsvarnarlaun sér til handa. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði á hann nokkurn sakaferil að baki. Með dómi Landsréttar í máli 637/2024, 26. júní 2025, var hann dæmdur til að sæta fangelsi í tvö ár og sex mánuði fyrir hlutdeild í hættubroti og vopnalagabrot. Var þar dæmdur upp eldri skilorðsdómur ákærða vegna líkamsárásar, frá 29. mars 2023. Þá var umræddur dómur Landsréttar hegningarauki við tveggja mánaða fangelsisdóm vegna sérstaklega hættulegrar líkamsárás frá 23. apríl 2025.
Við ákvörðun refsingar ákærða er litið til þess til refsiþyngingar að líkamsárás ákærða samkvæmt ákæru héraðssaksóknara 9. október 2025 var fólskuleg og fyrirvaralaus og beindist gegn lífi og heilsu brotaþola. Þá var ránsbrot ákærða samkvæmt III. kafla ákæru dagsettrar 28. október 2025 framið í félagi við annan aðila. Horfir hvort tveggja til refsiþyngingar. Á móti kemur að ákærði játaði greiðlega brot sín auk þess sem langt er um liðið síðan brot ákærða voru framin. Þá er hér um að ræða hegningarauka við fyrrgreindan dóm Landsréttar og er því litið til 78. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar og ákærða dæmdur hegningarauki sem samsvarar þeirri þyngingu hegningarinnar, sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í hinu fyrra máli. Með vísan til alls framangreinds er það niðurstaða dómsins að dæma ákærða til að sæta fangelsi í átta mánuði. Ekki þykir fært að binda refsingu ákærða skilorði enda er um að ræða hegningarauka við óskilorðsbundinn fangelsisdóm. Þá er ákærði sviptur ökurétti í þrjú ár frá 7. júlí 2027 að telja, vegna ítrekaðs aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Með vísan til þeirra lagaákvæða sem í ákæru greinir er ákærða gert að sæta upptöku á fíkniefnum og hnífum eins og nánar greinir í dómsorði.
Ákærði greiði sakarkostnað málsins, þ.m.t. málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, vegna vinnu hans á rannsóknarstigi og fyrir dómi, sem þykir, með hliðsjón af tímaskýrslu hans og umfangi málsins, hæfilega ákveðin 1.800.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá fellur þar undir annar sakarkostnaður, samtals 123.424 krónur.
Björn Þorvaldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Breki Þór Frímannsson, sæti fangelsi í átta mánuði.
Ákærði er sviptur ökurétti í þrjú ár frá 7. júlí 2027 að telja.
Ákærði sæti upptöku á 1,62 grömmum af kókaíni, 58,88 grömmum af amfetamíni, 0,98 grömmum af MDMA, 0,43 grömmum af metamfetamíni, 0,83 grömmum af marijúana og tveimur hnífum.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Þorgils Þorgilssonar lögmanns, 1.800.000 krónur, og 123.424 krónur í annan sakarkostnað.
Björn Þorvaldsson