Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 29. júní 2021.
Mál nr. S-8451/2020:
Ákæruvaldið
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Heiðari Þór Guðmundssyni
(Ómar Örn Valdimarsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ávana- og fíkniefni. Dómvenja. Fíkniefnalagabrot. Ítrekun. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Refsiákvörðun. Svipting ökuréttar. Sviptingarakstur. Umferðarlagabrot. Viðurlög. Vopnalagabrot. Vopnalög.
Útdráttur
Akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna, vörslur á vopni og ávana- og fíkniefnum.
Dómur
I.
Ákæra og dómkröfur:
Mál þetta, sem dómtekið var 16. júní 2021, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 22. desember 2020, á hendur Heiðari Þór Guðmundssyni, kennitala [...], [...], [...], „fyrir eftirtalin umferðar-, [...], vopna- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa:
1. [...].
- Þriðjudaginn 9. október 2018 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 625 ng/ml og metýlfenídat 15 ng/ml) norður Kringlumýrarbraut í Reykjavík, við Listabraut, þar sem akstri lauk með árekstri og að hafa skömmu síðar á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 4,69 g af maríhúana og útdraganlega járnkylfu, sem lögreglumenn fundu við öryggisleit á ákærða. [M. 007-2018-68288] Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018 og c. lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
3. [...].
- Þriðjudaginn 20. nóvember 2018 utandyra við Grettisgötu í Reykjavík, til móts við hús nr. [...], haft í vörslum sínum 0,82 g af amfetamíni og 0,97 g af kókaíni, sem lögreglumenn fundu við leit á ákærða. [M. 007-2018-80019] Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Þriðjudaginn 18. desember 2018 á slysadeildinni í Fossvogi í Reykjavík haft í vörslum sínum 13,17 g af maríhúana, sem ákærði framvísaði við afskipti lögreglu. [M. 007-2018-85682] Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Miðvikudaginn 24. apríl 2019 við Grettisgötu í Reykjavík, við Snorrabraut, haft í vörslum sínum 10,09 g af maríhúana, sem ákærði framvísaði við afskipti lögreglu og lögreglumenn fundu við leit. [M. 007-2019-24418] Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Laugardaginn 29. ágúst 2020 ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 1100 ng/ml) um Reykjahlíð í Reykjavík, við Háteigsveg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. [M. 007-2020-49113] Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. laga nr. 77/2019. Krafist er upptöku á 27,95 g af maríhúana, 0,82 g af amfetamíni og 0,97 g af kókaíni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018. Ennfremur er krafist upptöku á útdraganlegri járnkylfu, sem lögregla lagði hald á, með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.“
Við meðferð málsins 16. júní 2021 féll ákæruvaldið frá 1. og 3. ákærulið. Ákærði hefur að öðru leyti játað skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök samkvæmt ákæru og er játningin studd sakargögnum. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Hið sama á við um önnur refsikennd viðurlög. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar til handa verjanda sem greiðist úr ríkissjóði.
Samkvæmt því sem að framan greinir verður ákærði sakfelldur fyrir brot samkvæmt fyrrgreindum ákæruliðum. Umferðarlagabrot ákærða samkvæmt 2. ákærulið voru framin í tíð eldri umferðarlaga nr. 50/1987 og vörðuðu við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. og 102. gr., þeirra laga. Um refsinæmi, refsingu og önnur refsikennd viðurlög fer eftir umferðarlögum nr. 77/2019, sbr. 2. gr. og 2. gr. a í almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Með þessum athugasemdum eru brot ákærða réttilega færð til refsiákvæða samkvæmt ákæru.
Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt sakavottorði 8. júní 2021 á hann að baki sakaferil fyrir ýmis brot á almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum sem nær aftur til ársins 1988. Það sem hér skiptir einkum máli er að ákærði var með dómi Landsréttar 30. apríl 2021 sakfelldur fyrir gripdeild og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og gert að sæta tíu mánaða fangelsi. Með þessu var staðfestur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 16. desember 2019 en hluti af refsingunni var eftirstöðvar fangelsisrefsingar vegna eldri dóma sem voru dæmdar upp, 280 dagar, samkvæmt 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar, sbr. 60. gr. í almennum hegningarlögum, vegna rofs á almennum skilyrðum reynslulausnar. Þessu til viðbótar ber að líta til þess að ákærði var með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 2. júlí 2014 dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti undir áhrifum fíkniefna. Í þeim dómi var lagt til grundvallar að um væri að ræða sjöundu ítrekun (8. brot) fyrir akstur sviptur ökurétti og þriðju ítrekun (4. brot) fyrir að aka undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Var dómur þessi hegningarauki við dóm Héraðsdóms Reykjavíkur 26. febrúar sama ár þar sem ákærði var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti. Þann 20. nóvember 2015 var reynslulausn veitt af hinum tveimur síðastnefndu dómum og miðast ítrekunaráhrif við það tímamark, sbr. 3. mgr. 71. gr. í almennum hegningarlögum. Að öðru leyti eru ekki efni til að rekja sakaferil ákærða.
Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir voru öll framin áður en að fyrrgreindur dómur Landsréttar var kveðinn upp, sbr. dóm héraðsdóms 16. febrúar 2019. Þar af voru brot samkvæmt 2., 4., 5. og 6. ákærulið framin áður en héraðsdómurinn var kveðinn upp. Verður ákærða nú dæmdur hegningarauki samkvæmt 78. gr., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Við refsiákvörðun í máli þessu þarf að taka mið af ríkjandi dómvenju, nánar tiltekið þess að óskilorðsbundið fangelsi er að jafnaði dæmt vegna ítrekaðra vímuakstursbrota við aðra ítrekun (3. brot) og síðari ítrekanir eftir það, að uppfylltum öðrum skilyrðum, sbr. 71. gr. almennra hegningarlaga. Í meginatriðum á hið sama við um ítrekuð brot varðandi akstur sviptur ökurétti. Umferðarlagabrot ákærða samkvæmt 2. og 7. ákærulið ber að fara með í einu lagi sem áttundu ítrekun (9. brot), að því er varðar akstur sviptur ökurétti, og fjórðu ítrekun (5. brot), að því er varðar akstur undir áhrifum fíkniefna. Heilt á litið horfir sakaferill ákærða til refsiþyngingar, sbr. 5. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Ákærða til málsbóta verður litið til játningar hans fyrir dómi, sbr. 8. tölul. 1. mgr. sömu lagagreinar. Ekki er unnt að fallast á sjónarmið ákærða um ætlað breytt viðhorf löggjafans til fíkniefnalagabrota svo þýðingu hafi við refsiákvörðun. Fyrir liggur að frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um ávana- og fíkniefni náði ekki fram að ganga á 151. löggjafarþingi. Vímuefnavandi ákærða leysir hann ekki undan refsingu, sbr. 17. gr. almennra hegningarlaga. Tafir hafa orðið á meðferð málsins fyrir útgáfu ákæru og verður tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Vegna sakaferils ákærða eru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 101. gr. laga nr. 77/2019 er áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.
Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018, eru gerð upptæk þau fíkniefni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins, eins og nánar greinir í dómsorði.
Með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga nr. 16/1998 er gerð upptæk járnkylfa sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins, eins og nánar greinir í dómsorði.
Með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 verður allur sakarkostnaður málsins felldur á ákærða, þar með talin þóknun skipaðs verjanda hans, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, vegna vinnu fyrir dómi, sem þykir út frá eðli og umfangi máls hæfilega ákveðin 400.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá greiði ákærði 155.094 krónur í annan sakarkostnað samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari vegna Elínar Hrafnsdóttur aðstoðarsaksóknara.
Daði Kristjánsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómarinn tók við meðferð málsins 16. febrúar 2021 en hafði fram að því ekki komið að meðferð þess.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Heiðar Þór Guðmundsson, sæti fangelsi í tólf mánuði. Áréttuð er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.
Gerð eru upptæk 27,95 g af maríjúana, 0,82 g af amfetamíni og 0,97 g af kókaíni og járnkylfa (munaskrá 132941).
Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins til ríkissjóðs, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, 400.000 krónur, og 155.094 krónur í annan sakarkostnað.
Daði Kristjánsson