Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

102 dómar fundust

Lykilorð: Dómvenja

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. apríl 2026 kl. 22:03

S-5029/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Maciej Zbigniew Jablonski (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti. Refsing var ákveðin 11 mánaða fangelsi með hliðsjón af dómvenju um stighækkandi refsingu vegna endurtekinna brota, en um var að ræða 13 brot af sömu tegund.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2024

S-6467/2024

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Marius Raducan (Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Endurtekinn þjófnaður og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. september 2024

S-1950/2024

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Ingólfi Fannari Sigurðssyni (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ítrekaður vímuefna- og sviptingarakstur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. maí 2024

S-884/2024

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sebastian Artur Oklejak (Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Landsréttur birt 22. mars 2024

278/2023

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn Kolbrúnu Gígju Björnsdóttur (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

K var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og misst stjórn á bifreiðinni. Í dómi Landsréttar kom fram að framburður K um að hún hefði ekki ekið bifreiðinni, heldur ónafngreindur aðili, færi ekki saman við framburð lögreglumanna sem komið hefðu á vettvang og hefðu báðir borið um að ummerki á vettvangi hefðu ekki bent til þess að neinn annar en K hefði verið þar og að þegar þeir hefðu komið að bifreiðinni hefði K verið í ökumannssæti hennar og hallað yfir farþegasætið. Voru skýringar K á því af hverju hún hefði verið í ökumannssæti bifreiðarinnar þegar að var komið metnar óskýrar og ekki trúverðugar. Að virtum sakaferli K og í samræmi við dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 60 daga. Þá var K svipt ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 15. mars 2024

582/2023

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Guðna G. Kristjánssyni (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

G var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja og á sama tíma haft í vörslum sínum fíkniefni. Fyrir héraðsdómi játaði G þá háttsemi sem honum var gefin að sök og var farið með málið í samræmi við ákvæði 164. gr. laga um meðferð sakamála. Í dómi Landsréttar var vísað til þeirrar dómvenju að fjórða brot þar sem ekið er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna varðar almennt 60 daga óskilorðsbundið fangelsi og hið sama eigi við um fjórða brot þar sem ekið er sviptur ökurétti. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um ákvörðun refsingar og G gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.

Landsréttur birt 15. mars 2024

118/2023

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Arnbirni Þorsteinssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti. Fyrir héraðsdómi játaði A þá háttsemi sem honum var gefin að sök og var farið með málið í samræmi við ákvæði 164. gr. laga um meðferð sakamála. Að virtum sakarferli ákærða og að teknu tilliti til dómvenju var staðfest niðurstaða héraðsdóms um ákvörðun refsingar og A gert að sæta fangelsi í 30 daga.

Landsréttur birt 2. febrúar 2024

769/2022

Ákæruvaldið gegn Magnúsi Jónssyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. M viðurkenndi að hafa ekið bifreiðinni en neitaði því að hafa verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Kvaðst hann hafa verið á lyfjum vegna athyglisbrests sem hefðu ekki áhrif á aksturshæfni hans og lagði fyrir dóm gögn sem sýndu lyfjanotkun hans samkvæmt ávísun lækna. Í dómi Landsréttar kom fram að þegar lögregla hafði afskipti af M framvísaði hann ekki vottorði læknis um að hann væri haldinn tilteknum sjúkdómi eða ástandi og þyrfti af þeim sökum að neyta þeirra efna sem í blóði hans kynnu að mælast, sem var forsenda þess að unnt væri að koma við læknisskoðun þar sem fram færi mat á því hvort M væri fær um að stjórna ökutæki örugglega, sbr. 8. mgr. 101. umferðarlaga nr. 77/2019. Þar sem ávana- og fíkniefni mældust í blóði M var hann óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega, sbr. 2. mgr. 50. gr. umferðalaga og varnir M um að saknæmisskilyrði hefðu skort voru taldar haldlausar. Í niðurstöðu héraðsdóms um ákvörðun viðurlaga, sem Landsréttur staðfesti, var horft til þess að M var nú í þriðja sinn gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna innan ítrekunartíma 71. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og með vísan til framangreinds, sakarefnis málsins, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga, var M gert að sæta 30 daga fangelsi, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 19. janúar 2024

93/2023

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn Maríönnu Lind Mánadóttur (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður, Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

M var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa fjórum sinnum ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var miðað við að akstur M undir áhrifum ávana- og fíkniefna væri ítrekaður í annað sinn og henni gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing M ákveðin 60 daga fangelsi. Tók Landsréttur fram að með hliðsjón af ákvæði 78. gr. laga nr. 19/1940 væru ekki efni til þess að kveða á um áréttingu ævilangrar sviptingar ökuréttar.

Landsréttur birt 15. desember 2023

809/2022

Ákæruvaldið gegn Þorvaldi Ægi Þorvaldssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ítrekað ekið bifreið sinni undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Að virtum sakaferli Þ og með vísan til dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Landsréttur birt 15. desember 2023

622/2022

Ákæruvaldið gegn Ingvari Ragnari Snæbjörnssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotinu gerðist I í þriðja sinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Í dómi Landsréttar kom fram að dómur um sekt og sviptingu ökuréttar fyrir ölvunarakstur sem kveðinn hefði verið upp 20. janúar 2017 hefði ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem hann væri nú sakfelldur fyrir. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur og I gert að sæta 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 23. júní 2023

537/2022

Ákæruvaldið gegn Haraldi Árna Harðarsyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis, í þrígang gegn rauðu umferðarljósi og of hratt miðað við aðstæður og ekki sinnt fyrirmælum lögreglu um að stöðva bifreiðina. Í dómi Landsréttar var ekki fallist á að vísa bæri málinu frá héraðsdómi á þeim grunni að H hefði verið boðið að ljúka málinu með sektargerð, enda hefði formleg ákvörðun um að gefa H kost á að ljúka málinu með greiðslu sektar ekki verið tekin af lögreglustjóra. Þá var ekki fallist á kröfu H um frávísun málsins frá Landsrétti á þeim grundvelli að lagaskilyrði hefðu ekki staðið til þess að ákæruvaldið áfrýjaði málinu til þyngingar refsingar hans. Við meðferð málsins í héraði var farið með málið samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var H dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Í dómi Landsréttar var til þess vísað að H hefði tvisvar áður verið gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum áfengis og teldist brot hans nú af sama tagi ítrekað öðru sinni. Skírskotaði Landsréttur til þeirrar dómvenju að dæma þann, sem gerst hefði sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í þriðja sinn svo að ítrekunaráhrif hefði, til óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar. Refsing H var ákveðin með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, sem í samræmi við nefnda dómvenju yrði ekki bundin skilorði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 31. mars 2023

331/2022

Ákæruvaldið gegn Stefáni Pálma Gíslasyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelldur fyrir að hafa tilgreint sinn ekið bifreið sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Með hinum áfrýjaða dómi var refsing S ákveðin 90 daga fangelsi. Fyrir Landsrétti kröfðust Á og S þess að refsing hans yrði milduð. Í dómi Landsréttar kom fram að þótt umferðarlög mæli ekki fyrir um lögbundin ítrekunaráhrif að því er refsingu varðar byggi dómvenja um að litið sé til brotaferils manns við ákvörðun refsingar á hliðstæðum sjónarmiðum og ítrekunaráhrif þar sem þeirra er getið í lögum. Fyrir lægi að S hefði með hinum áfrýjaða dómi verið ákvörðuð viðurlög í fjórða sinn fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna og í fyrsta sinn fyrir akstur sviptur ökurétti. Samkvæmt því og að virtum sakarferli ákærða en jafnframt með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing hans ákveðin fangelsi í 75 daga. Þá voru ákvæði hins áfrýjaða dóms um sakarkostnað og sviptingu ökuréttar ævilangt staðfest.

Landsréttur birt 16. desember 2022

47/2022

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Hafsteini Thorberg Pálssyni (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var sakfelldur fyrir að hafa í sex skipti ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af þrisvar óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Þá að hafa í tveimur umræddra tilvika haft amfetamín í vörslum sínum og í einu þeirra einnig framið skjalabrot. Í dómi Landsréttar var vísað til þeirrar dómvenju að litið væri til brotaferils manns við ákvörðun refsingar fyrir umferðarlagabrot á hliðstæðum sjónarmiðum og ítrekunaráhrif þar sem þeirra væri getið í lögum. Samkvæmt sakaferli H hefðu ítrekunaráhrif ekki rofnað á milli brota hans og því yrði við ákvörðun refsingar að líta til brotaferils hans allt frá árinu 2004. Samkvæmt því og með vísan til 78. og 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing H ákveðin fangelsi í tvö ár.

Landsréttur birt 9. desember 2022

88/2022

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Þorkeli Frey Sigurðssyni (Guðbjarni Eggertsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var ákærður fyrir að hafa fjórum sinnum ekið bifreið sviptur ökurétti. Fyrir héraðsdómi játaði Þ þá háttsemi sem honum var gefin að sök og var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála. Í dómi Landsréttar var rakið að dómur héraðsdóms hafi verið kveðinn upp fjórum vikum og tveimur dögum eftir dómtöku málsins. Á hinn bóginn þóttu ekki efni til að ómerkja hinn áfrýjaða dóm af þeim sökum. Í samræmi við dómvenju var refsing Þ ákvörðuð fangelsi í 150 daga.

Landsréttur birt 9. desember 2022

15/2022

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Florin Feraru (Eggert Páll Ólason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

F var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Refsing F var ákveðin fangelsi í 60 daga en hún bundin skilorði í tvö ár. Þá var hann sviptur ökurétti í þrjú ár og gert að sæta upptöku fíkniefna. Fyrir Landsrétti krafðist F þess að ökuréttarsvipting yrði ákveðin frá og með uppsögu héraðsdóms en ekki frá 23. nóvember 2023 líkt og héraðsdómur kvað á um. Í dómi Landsréttar kom fram að F hefði með dómi Héraðsdóms Reykjaness 1. október 2020 verið sviptur ökurétti tímabundið í þrjú ár og sex mánuði frá og með 29. maí 2020. Hefði verið gert ráð fyrir því í hinum áfrýjaða dómi að ökuréttarsvipting samkvæmt honum tæki við þegar ökuréttarsvipting samkvæmt hinum fyrri dómi rynni sitt skeið á enda. Sá háttur væri í samræmi við dómvenju. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um annað en sakarkostnað.

Landsréttur birt 9. desember 2022

737/2021

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Sindra Frey Jenssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökurétti, þar af tvívegis einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í annað skiptið að auki fyrir hraðakstur. Þá var S sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa við afskipti lögreglu í eitt þessara skipta haft hníf í vörslum sínum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að í málinu væri S sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og þrívegis sviptur ökuréttindum. Í fyrra tilvikinu væri um fjórða brot að ræða en í því síðarnefnda þriðja brot. Samkvæmt dómvenju og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þótti refsing S fyrir brotin hæfilega ákveðin fangelsi í 150 daga en þau hraðaksturs- og vopnalagabrot sem S var einnig sakfelldur fyrir þóttu ekki gefa tilefni til frekari refsingar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2022

S-3533/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Steinari Sveinssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Ákærði einnig sviptur ökurétti og gerð voru upptæk fíkniefni og munir til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2022

S-3196/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Bang-Orn Sribunruang
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. september 2022

S-3260/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Magnúsi Gunnari Baldvinssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar hans var áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. september 2022

S-2898/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jóni Emil Bragasyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. ágúst 2022

S-2572/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Tomasz Grzegorz Szmirski
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, en með brotunum rauf hann skilorð fyrri dóms, og var gert að sæta fangelsi í 5 mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. ágúst 2022

S-2479/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Arnari Þór Helgasyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 30 daga auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 24. júní 2022

740/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Kristjáni Má Guðnasyni (Þórður Már Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

K var sakfelldur í héraði fyrir brot gegn 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti í tvö skipti og honum gert að sæta fangelsi í 15 mánuði. Áður hafði K verið gerð refsing 17 sinnum fyrir sams konar brot frá því hann varð fullra 18 ára. Í dómi Landsréttar kom fram að af gögnum málsins væri ljóst að K hefði verið fullkunnugt um að hann væri sviptur ökurétti og ásetningur hans því einbeittur. Af háttsemi hans hefði aftur á móti ekki stafað sérstök hætta og hann játað brot sín skýlaust. Að því virtu og með vísan til sakarferils K og dómvenju þótti refsing hans réttilega ákvörðuð fangelsi í 18 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2022

S-617/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Grzegorz Rokuszewski (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, en með brotunum rauf hann skilorð reynslulausnar, og var gert að sæta fangelsi í 11 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júní 2022

S-1988/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Evu Marý Þórönnudóttur (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir vopnalaga- og umferðarlagabrot, en með brotunum rauf hún skilorð fyrri dóms, og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar. Upptaka á úðavopni.

Landsréttur birt 10. júní 2022

247/2021

Íslenska ríkið (Óskar Thorarensen lögmaður) gegn A (Kristinn Hallgrímsson lögmaður, Bragi Björnsson lögmaður, 3. prófmál)

A höfðaði mál á hendur Í til heimtu miskabóta vegna frelsissviptingar er hann sætti í tengslum við rekstur sakamáls sem lauk endanlega með dómi Landsréttar […] maí 2019 í máli nr. [...]/2018. Var A dæmdur í fangelsi í tvo mánuði fyrir brot gegn 4. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til frádráttar refsingu kom gæsluvarðhald sem hann sætti frá 17. ágúst 2017 til 10. janúar 2018. Miskabótakrafa A byggði á því að hann hafi sætt gæsluvarðhaldi í 269 daga og farbanni í 57 daga að ósekju. Þá hafi hann sætt hindrun við að komast úr landi í 15 daga eftir dóm héraðsdóms í fyrrnefndu sakamáli þar til honum var fylgt úr landi. Í dómi Landsréttar kom fram að samkvæmt 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrár skuli maður eiga rétt til skaðabóta, hafi hann verið sviptur frelsi að ósekju. Samkvæmt 3. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 skuli eftir föngum gæta þess að sakborningur verði ekki látinn sæta gæsluvarðhaldi lengur en sýnt þyki að fangelsisrefsing verði dæmd. Með vísan til þess dagafjölda er A sat í gæsluvarðhaldi og ákvæðis 3. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 hefði A sætt gæsluvarðhaldi langt umfram efni og þar með sviptur frelsi að ósekju. Væri Í einnig talið bera ábyrgð á gæsluvarðhaldsvist sem A sætti á Ítalíu að beiðni íslenskra yfirvalda. Ætti hann því rétt til miskabóta úr hendi Í vegna gæsluvarðhaldsvistar í 269 daga. Ekki var fallist á kröfu um miskabætur vegna farbanns, enda hefði verið lögmætt eins og á stóð að takmarka för hans með farbanni meðan ekki lá fyrir niðurstaða dómstóla í því sakamáli sem rekið var gegn honum. Þá var að virtum gögnum málsins ekki talið sannað að för A úr landi hafi verið hindruð. Að því er varðaði fjárhæð til miskabóta vegna gæsluvarðhaldsvistar að ósekju þótti mega hafa hliðsjón af athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 128/2019, um heimild til að greiða bætur vegna dóms Hæstaréttar í máli nr. 521/2017, sem og dómvenju á þessu réttarsviði. Að því virtu þóttu miskabætur til A hæfilega ákveðnar 19.000.000 króna, með vöxtum í samræmi við kröfugerð A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2022

S-1802/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Agnari Kristni Hermannssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, en með brotunum rauf hann skilyrði reynslulausnar, og var gert að sæta fangelsi í 2 ár og 7 mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2022

S-1638/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga auk þess sem hún var svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júní 2022

S-1635/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Genrich Obolevic (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, en með brotunum rauf hann skilorð fyrri dóms, og var gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2022

S-2037/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Luai Ómar Einarsson (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 6 mánuði. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2022

S-1585/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Helga Lindusyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2022

S-1268/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Kristni Magnússyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 10 mánuði. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2022

S-1575/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gints Apsans (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 60 daga. Svipting ökuréttar ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. maí 2022

S-1633/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhanni Inga Björnssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. maí 2022

S-1583/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Friðriki Sölva Gylfasyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 5 mánuði. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2022

S-1579/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Arnari Val Valssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 13 mánuði. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Hleð fleiri dómum…