Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

5 dómar fundust

Lykilorð: Sóttvarnarlög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. febrúar 2024

E-3149/2022

A (Arnar Þór Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Íslenska ríkið sýknað af kröfu einstaklings sem krafðist miskabóta þar sem honum hafi með ólögmætum hætti verið haldið í sóttkví vegna gruns um að hann væri smitaður af SARS-CoV-2 veirunni (COVID-19) í nóvember 2021.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. júlí 2022

S-447/2021

Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Reyni Erni Guðrúnarsyni (Friðrik Smárason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, brot gegn sóttvarnarlögum, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna sviptur ökurétti og vörslur fíkniefna og frammistöðubætandi efna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2022

S-6022/2021

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Björgvin Sigmari M. Ómarssyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir ofbeldi í nánu sambandi, tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, tilraun til hylmingar, fíkniefnabrot, þjófnað, húsbrot, eignaspjöll, nytjastuld, brot gegn lögreglulögum, brot gegn sóttvarnarlögum o.fl. Sýknað af hluta af ákæru eða háttsemi felld undir vægari refsiákvæði eða tilraun. Refsing var ákveðin 18 mánaða fangelsi og var um að ræða hegningarauka við eldri dóm.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. júní 2022

S-714/2022

Héraðssaksóknari (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn Mohamad Kourani (Stefán Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, húsbrot, brot gegn nálgunarbanni, eignaspjöll, skjalafals, nokkur brot gegn valdstjórninni, fyrir að gabba lögreglu, brot á sóttvarnarlögum og vopnalagabrot.

Landsréttur birt 7. apríl 2021

232/2021

Sóttvarnalæknir (Edda Björk Andradóttir lögmaður) gegn A (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Ágreiningur málsins laut að gildi ákvörðunar S um að A skyldi dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi á grundvelli 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 355/2021 þar til niðurstaða úr seinni sýnatöku reyndist neikvæð, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar. Í úrskurði Landsréttar kom fram að S skorti lögvarða hagsmuni af því að Landsréttur leysti úr kröfu hans og var málinu því vísað frá dómi án kröfu.