Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lykilorð: Leiðbeiningarskylda

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2024

E-4049/2023

A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Ógiltur var úrskurður kærunefndar útlendingamála þar sem kröfu um endurupptöku máls stefnanda var hafnað. Að virtum atvikum var ekki réttmætt að leggja til grundvallar að stefnandi bæri ábyrgð á þeirri töf sem varð á meðferð máls hans og leiddi til þess að ekki varð af flutningi hans úr landi innan 12 mánaða frests, sbr. síðari málsl. 2. Mgr. 36. Gr. laga nr. 80/2016. Var því fallist á kröfu stefnanda og hinn umdeildi úrskurður felldur úr gildi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2024

E-4047/2023

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. febrúar 2024

E-3149/2022

A (Arnar Þór Jónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Íslenska ríkið sýknað af kröfu einstaklings sem krafðist miskabóta þar sem honum hafi með ólögmætum hætti verið haldið í sóttkví vegna gruns um að hann væri smitaður af SARS-CoV-2 veirunni (COVID-19) í nóvember 2021.

Hæstiréttur birt 21. desember 2023

55/2023

A (sjálfur) gegn Maríu Lilju Þrastardóttur Kemp (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem máli A gegn M var vísað frá Landsrétti á þeim grundvelli að málatilbúnaður A væri ekki í samræmi við meginreglur einkamálaréttarfars um munnlegan málflutning og skýran og ljósan málatilbúnað og frágangur málsgagna í ósamræmi við reglur Landsréttar um málsgögn í einkamálum. Hæstiréttur taldi að ekki væru næg efni til að vísa málinu frá þrátt fyrir annmarka á málatilbúnaði A við rekstur málsins fyrir Landsrétti. Var úrskurður Landsréttar því felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til efnismeðferðar.

Héraðsdómur Vesturlands birt 27. apríl 2023

E-133/2021

Móabyggð ehf (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn Snæfellsbæ (Sveinn Jónatansson lögmaður)

Umsækjandi um byggingarleyfi til niðurrifs á húsi taldi sig eiga bótarétt gagnvart sveitarfélagi á grundvelli óeðlilegs dráttar á meðferð málsins og þar sem skort hafi á leiðbeiningar honum til handa. Sýkna.

Hæstiréttur birt 19. júní 2002

452/2001

Tölvukerfi ehf, Árveig Aradóttir, Bjarni Sigurðsson og Gunnlaugur Jónsson (sjálf) gegn Landsbanka Íslands hf (Gunnar Sólnes hrl)

T ehf. var dæmt til að greiða L hf. kröfu sem nam yfirdrætti á ávísanareikningi fyrrnefnda félagsins hjá L hf. Voru Á og B dæmd til að greiða hluta fjárhæðarinnar með T ehf. í samræmi við sjálfskuldarábyrgð sem þau höfðu tekist á hendur gagnvart L hf. Var héraðsdómari talinn hafa gætt leiðbeiningarskyldu gagnvart þeim með fullnægjandi hætti.