Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-623/2018:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Einari Braga Þorkelssyni

(Guðni Jósep Einarsson lögmaður)

Hluti refsingar skilorðsbundinn og hluti óskilorðsbundinn. Hylming. Játningarmál. Skilorðsrof. Þjófnaður.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaði og hylmingu.

I

Fyrir eftirfarandi hlutdeild, með því að hafa, miðvikudaginn 19. september 2018, tekið HM armbandsúr frá Gilbert nr. […] að […], […], og yfirgefið íbúðina, er lögregla hafði þar afskipti að húsráðanda, A, kt. […], og öðrum aðila, B, kt. […], vegna   aðildar   að   þjófnaði   á   framangreindu   armbandsúri   úr   verslun   Georg  V. Hannah að […], […], þann sama dag, og með þeirri háttsemi sinni haldið ólöglega fyrir   eigandanum   armbandsúrinu,   þannig   aðstoðað   meðkærða   við   að   halda armbandsúrinu og halda við ólöglegum afleiðingum þjófnaðarins en ákærði var stöðvaður á gangi við […], […], með úrið falið í buxum sínum.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II

Fyrir innbrot og þjófnað, með því að hafa, aðfararnótt þriðjudagsins 23. október 2018, farið í heimildarleysi inn í verslunina Tjarnargrill, […], […], með því að brjóta neðri rúðu á aðalinngangi verslunarinnar og tekið þaðan ófrjálsri hendi 17 sígarettupakka og 7.500 kr. úr sjóðsvél verslunarinnar.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III

Fyrir þjófnað, með því að hafa, þriðjudaginn 23. október 2018, tekið ófrjálsri hendi pakka af kjúklingavængjum, samtals að verðmæti kr. 1.098,- úr versluninni Nettó við Krossmóa 4, Reykjanesbæ.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV

Fyrir þjófnað, með því að hafa, að kvöldi mánudagsins 22. október 2018 eða aðfaranótt   þriðjudagsins   23.   október   2018,   tekið   ófrjálsri   hendi   reiðhjól   og grillgaskút við […], […].

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar   og   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar. “

Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa vegna verjandastarfans.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði hefur játað sakargiftir og var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Svo sem áður greinir hefur ákærði játað sök í málinu. Að mati dómsins samrýmist játning hans framlögðum gögnum. Brot ákærða teljast því sönnuð og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Árið 2016 gekkst hann undir sektargerð lögreglustjóra vegna fíkniefnalagabrots. Hinn   25.   apríl   2017   var   ákærði   með   dómi   Héraðsdóms  Vestfjarða   dæmdur   í fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir fíkniefnalagabrot. Þá var ákærði með dómi sama dómstóls 7. júní 2017 dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir líkamsárás, brot gegn valdstjórninni og brot gegn lögreglulögum. Var ákærða með dómnum gerður hegningarauki við dóminn frá 25. apríl 2017 en ekki verður séð að sá skilorðsdómur hafi verið dæmdur upp. Þá var ákærði með dómi Héraðsdóms Suðurlands 19. febrúar 2018 dæmdur til greiðslu sektar en skilorð áðurnefndra tveggja dóma Héraðsdóms Vestfjarða látið halda sér. Að lokum gekkst ákærði undir sektargerð lögreglustjóra 23. október 2018 vegna umferðarlagabrota.

Með   brotum   sínum   nú   rauf   ákærði   skilorð   fyrrgreindra   tveggja   dóma Héraðsdóms   Vestfjarða.   Samkvæmt   því   og   með   vísan   til   60.   gr.   almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber að taka dómana upp og ákveða ákærða refsingu í einu lagi fyrir öll málin samkvæmt fyrirmælum 77. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði hefur játað sök í málinu og er honum virt það til málsbóta. Þá er hann að reyna að taka sig á og er nú í fastri vinnu. Samkvæmt því, öðru framangreindu og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin, eftir fyrirmælum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, fangelsi í ellefu mánuði. Eftir atvikum þykir mega fresta fullnustu tíu mánaða af refsingunni og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 24. október 2018 til 28. nóvember 2018 að fullri dagatölu, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Á grundvelli sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð   sakamála,   verður   ákærða   gert   að   greiða   allan   sakarkostnað   málsins. Ákærði dæmist því til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Guðna Jóseps Einarssonar lögmanns, sem hæfilega þykir ákveðin að virðisaukaskatti meðtöldum svo sem í dómsorði greinir. Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Einar Bragi Þorkelsson, sæti fangelsi í ellefu mánuði en fresta skal fullnustu tíu mánaða af refsingunni og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57.   gr.   almennra   hegningarlaga   nr.   19/1940.   Til   frádráttar   refsingunni   kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 24. október 2018 til 28. nóvember 2018 að fullri dagatölu.

Ákærði   greiði   þóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Guðna   Jóseps   Einarssonar lögmanns, 126.480 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

Kristinn Halldórsson