Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-19/2017:

S-19/2017:

Ákæruvaldið

(Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Kristni Helga Eiríkssyni

(Þórdís Bjarnadóttir hrl)

Hylming. Játningarmál. Upptaka.

Ákærði var sakfelldur fyrir hylmingu og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.

lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru útgefinni 27. desember 2016 á hendur Kristni Helga Eiríkssyni, kt. [...], [...], Kópavogi, „fyrir peningaþvætti en til vara fyrir hylmingu með því að hafa, um nokkurt skeið frá nóvember 2012 og fram til 5. desember 2012, haft í vörslum sínum muni að áætluðu verðmæti kr. 3.327.708,- sem honum hlaut að vera ljóst að væru til komnir vegna auðgunarbrota annarra manna. Munir þessir fundust við leit lögreglu í geymslum hjá og á vegum ákærða dagana 5., 6., og 7. desember 2012 en þeim hafði verið stolið í innbrotum víða um land í nóvember 2012 og voru í kjölfarið afhentir ákærða sem í kjölfar viðtöku flutti þá til geymslu, þaðan sem hann hugðist flytja stóran hluta þeirra úr landi til endursölu. Nánar tiltekið var um að ræða eftirfarandi tilvik:

  1. Munir, að áætluðu verðmæti kr. 164.500,-. sem stolið var úr aðstöðu Efnalaugar Suðurnesja, [ ... ], Iðavöllum 11b, Reykjanesbæ, fundust í geymslu á vegum ákærða á bænum Víðiholti, Skagafirði. Um var að ræða DeWalt borvélahleðslutæki, verkfærakistu með ýmsum handverkfærum, Hitachi hjólsög, Bosch slípirokk, tvö vasaljós, þrjár rafmagnstangir, rafmagnstengi, glussadælu, smurkönnu, þrýstimæli, hníf og bláan plastkassa. M. 008-2012-15454
  2. Munir, að áætluðu verðmæti kr. 1.228.889.- sem stolið var úr aðstöðu HUG- verktaka, [ ... ], Iðavöllum 11b, Reykjanesbæ, fundust í geymslum á vegum ákærða. Á bænum Víðiholti, Skagafirði fannst Lux topplyklasett, tvenn skíðaskópör ásamt töskum, tímabyssa, verkfærataska með föstum lyklum, Dewalt hjólsög, rafsuðuhjálmur, Pioneer bifreiðaútvarp, þrír hátalarar í bifreiðar, Hitachi hjólsög, Hitachi borvél, Bosch rafgeymahleðslutæki, Bosch hjólsög, málningarsprauta og Delda smergel (slípivél). Í bifreiðinni EA-486 fannst Polaris fjórhjól (skráningarnr. JP182), þrjár Hitachi hjólsagir og Boch hjólsög. Í bifreiðinni AR-453 fannst verkfærakassi með ýmsum handverkfærum. M. 008-2012- 14418 3. [ ... ] M. 033-2012-7276
  3. Munir, að áætluðu verðmæti kr. 346.319,- sem stolið var í innbroti að Stapahrauni 21, Reykjanesbæ, fundust í geymslu á vegum [sic.] á bænum Víðiholti, Skagafirði. Um var að ræða AMG Benz felgur, hjólbarðar og upptökutæki fyrir myndavélakerfi. M. 008-2012-14148

    5. [ ... ] M. 008-2012-65451

  4. Munir, að áætluðu verðmæti kr. 103.000,- í það minnsta, sem stolið var í innbroti í geymsluhúsnæði að Auðnum 2, Vatnsleysustrandarhreppi, fundust í geymslu á vegum ákærða að Víðiholti, Skagafirði. Um var að ræða hljómtæki, straumbreyti, tvö slökkvitæki, áttavita, upptakara, plástrakassa og gardína [sic.], samtals að áætluðu verðmæti kr. 43.000,- úr bifreiðinni SE-940, skjá af bakkmyndavél, að áætluðu verðmæti kr. 60.000, úr bifreiðinni LX-414, og rafgeymi, verkfærapoka, dýptarmæli, fiskleitartæki og GPS tæki, að óþekktu verðmæti, úr Zodiac slöngubát. M. 008-2012-14748

    Telst   framangreind   háttsemi   ákærða   varða   við   1.   mgr.   264.   gr.   almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara við 1. mgr. 254. gr. sömu laga. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

    Þá er þess krafist að ákærði verði, aðallega með heimild í 1. mgr. 69. gr., 69. gr. b., og 2. mgr. 69. gr. f. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 2. gr. laga nr. 149/2009, en til vara með heimild í 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga og 1. og 3. mgr. 69. gr. d. sömu laga, dæmdur til að þola upptöku á eftirfarandi munum, að óþekktri tegund nema annað sé tekið fram, sem fundust við framangreinda leit lögreglu á bænum Víðiholti, Skagafirði. Um var að ræða: [ ... ], belti, hjálm, [ ... ], skópar, [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ], jakka og peysu (munanr. 12), Fini loftpressu (munanr. 14), rafmagnshitara (munanr. 16), tvær ísaxir (munanr. 20), [ ... ], [ ... ], [ ... ], reiðhjólafestingu, krafttöng, skiptilykill, skrúfjárn, fasta lykla, [ ... ] og spreybrúsa (munanr. 21), tvær luktir, gönguskópar, beisli, þrjá startkapla og þrjá spreybrúsa (munanr. 22), [ ... ], [ ... ], [ ... ], [ ... ] og stígvélapar (munanr. 24), hallamál og eftirlitsmynda-vélabúnað (munanr. 26), áltösku (munanr. 28) og [ ... ].“ Málsnúmer 008-2012-14748 Kröfur ákærða:

    Ákærði   krefst   vægustu   refsingar   sem   lög   leyfa.   Ákærði   samþykkir upptökukröfu ákæruvaldsins með þeim hætti sem nánar er lýst í kafla A hér á eftir. Verjandi ákærða krefst þóknunar sér til handa.

A

Birting fyrirkalls, sem gefið var út 7. febrúar 2017, tókst ekki. Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins 6. apríl 2017, enda staddur í Póllandi. Var ákærða skipaður verjandi að hans ósk og málinu frestað til 11. maí sama ár. Þann dag mætti ákærði og viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem greinir í 1.- 2. tölulið, 4. tölulið og 6. tölulið ákærunnar. Þá viðurkenndi ákærði að hafa haft kerru þá sem tilgreind er í 3. tölulið ákæru í sínum vörslum, en kvaðst ekki hafa vitað að henni hefði verið stolið. Kvaðst ákærði hafa geymt kerruna. Einnig kvaðst ákærði viðurkenna að hafa haft í vörslum sínum bifreiðalyftu með skrásetningarnúmerinu [...], en kvaðst ekki hafa vitað að henni hefði verið stolið. Loks   neitaði   ákærði   því   að   sjö   ljóskastarar   af   ljósamastursvélum   ásamt   11 ljósaperum, sem fundust í bifreiðinni [...1], og í kari fyrir utan bæinn Auðnir 2 á Vatnsleysuströnd,   hefðu   verið   þar   í   hans   vörslum.   Þá   samþykkti   ákærði upptökukröfu ákæruvaldsins á öllum munum nema svartri tösku, rafgeymi, tveimur úðabrúsum,   Freetime-bakpoka,   straumbreyti,   ljósaperum,   hleðslurafmagnssnúrum, ýmislegu barnadóti, hundaól, skrúfjárni, sexkant, topplyklasetti, kuldagalla, vindfatnaði, dekkjaviðgerðarsetti, segldúk, rafmagnssnúrum, vasaljósi, EMS- þrýstikút, Hitatchi-slípirokk, Bosch-borvél, svartri tösku og Scan Brit rafgeymi. Var málinu við svo búið frestað til 30. maí 2017 og fékk ákærði frest til þess dags til að skila greinargerð í málinu af sinni hálfu. Þann dag upplýsti verjandi ákærða að hann myndi   ekki   skila   greinargerð.   Var   aðalmeðferð   málsins   ákveðin   12.   september síðastliðinn. Í þinghaldi 12. september síðastliðinn var bókað að ákæruvaldið félli frá sakargiftum á hendur ákærða sem tilgreindar eru í 3. og 5. tölulið í ákæru málsins. Jafnframt að fallið væri frá upptökukröfu ákæruvaldsins á þeim munum sem taldir eru upp í þingbók málsins 11. maí síðastliðinn, þ.e. svartri tösku, rafgeymi, tveimur úðabrúsum,   Freetime-bakpoka,   straumbreyti,   ljósaperum,   hleðslurafmagnssnúrum, ýmislegu barnadóti, hundaól, skrúfjárni, sexkant, topplyklasetti, kuldagalla, vindfatnaði, dekkjaviðgerðarsetti, segldúk, rafmagnssnúrum, vasaljósi, EMS- þrýstikút, Hitatchi-slípirokk, Bosch-borvél, svartri tösku og Scan Brit rafgeymi.

Í ljósi breyttrar afstöðu ákæruvaldsins og með því að ákærði játaði brot sitt í þinghaldi 11. maí síðastliðinn og að dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning   ákærða   væri   sannleikanum   samkvæmt   var   ákveðið   að   fara   með   málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi ákærða höfðu tjáð sig stuttlega um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

B

Samkvæmt því sem fram er komið hefur ákærði skýlaust játað sök. Sannað er með játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Í ákæru eru brot ákærða talin varða við 1. mgr. 264. gr. almennra hegningar nr. 19/1940, en til vara við 1. mgr. 254. gr. sömu laga. Síðarnefnda ákvæðið þykir eiga við um þá háttsemi sem   ákærði   hefur   greiðlega   gengist   við,   en   hylmingarákvæðið   felur   í   sér eftirfarandi hlutdeild í auðgunarbroti, sem þegar er fullframið. Felst hylmingin í að halda ólöglega fyrir eiganda verðmæti sem aflað hefur verið með brotum er varða við ákvæði 244., 245. eða 247.-252. gr. nefndra hegningarlaga, taka þátt í ávinningi af slíku broti eða stuðla að því að halda við ólöglegum afleiðingum brotsins. Verður ákærði sakfelldur fyrir brot gegn ákærði 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði dæmdur í Póllandi 6. maí 2011 til tveggja mánaða fangelsisrefsingar sem var skilorðsbundin til tveggja ára fyrir   brot   gegn   vinnulöggjöfinni.   Þá   gekkst   ákærði   undir   tvær   sáttir   hjá lögreglustjóra 27. mars 2013 og 10. júní 2015 og samþykkti greiðslu sektar í báðum tilvikum fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir eru hegningarauki við fyrrgreindar sáttir og verður ákærða því ákvörðuð refsing fyrir brotin með vísan til 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði er sakfelldur fyrir hylmingu, sbr. 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Fallist er á kröfu ákæruvalds um upptöku á munum, tilgreindum í munaskrá lögreglu, eins og greinir í dómsorði. Með vísan til sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað málsins. Ákærði greiði því 188.427 krónur samkvæmt tveimur yfirlitum ákæruvalds um sakarkostnað í málunum númer 008-2012-14148 og 008-2012-14748. Þá verður ákærða að auki gert að greiða hluta af þóknun verjanda síns og aksturskostnað, svo sem   í   dómsorði   greinir.   Við   ákvörðun   þóknunar   hefur   verið   tekið   tillit   til virðisaukaskatts. Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Kristinn Helgi Eiríksson, sæti fangelsi í fjóra mánuði, en fresta skal   fullnustu   refsingarinnar   og   falli   hún   niður   að   liðnum   tveimur   árum   frá dómsuppsögu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði sæti upptöku á eftirtöldum munum: belti, hjálm, skópari, jakka, peysu, Fini loftpressu, rafmagnshitara, tveimur ísöxum, reiðhjólafestingu, krafttöng, skiptilykli,   skrúfjárni,   föstum   lyklum,   spreybrúsa,   tveimur   luktum,   gönguskópari, beisli, þremur startköplum og þremur spreybrúsum, stígvélapari, hallamáli, eftirlitsmyndavélabúnaði og áltösku. Ákærði greiði 188.427 krónur í sakarkostnað. Þá greiði 2/3 hluta þóknunar og aksturskostnaðar verjanda síns, Þórdísar Bjarnadóttur hrl. Nemur þóknunin í heild   590.240   krónum   og   aksturskostnaður   verjanda   10.260   krónum   1/3   hluti greiðist úr ríkissjóði.

Jón Höskuldsson