Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 18. desember 2025.
Mál nr. S-569/2025:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Hauki Atlasyni
(Skarphéðinn Pétursson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað.
Dómur
Mál þetta, sem var dómtekið 9. desember sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 20. október 2025, á hendur Ólafi Hauki Atlasyni, kt. […], […], […], „fyrir þjófnaðarbrot framin í verslun Vínbúðarinnar á Akureyri […]. Tilvikin eru eftirfarandi:
- Að hafa föstudaginn 3. janúar 2025, stolið einni 200 millilítra flösku og einni 700 millilítra flösku af Koskenkorva vodka úr versluninni.
- Að hafa laugardaginn 4. janúar 2025, kl. 11:08 stolið einni 1000 millilítra flösku af Koskenkorva vodka úr verslunni.
- Að hafa skömmu síðar sama dag komið aftur í verslunina og þá sömu leiðis stolið einni flösku af 1000 millilítra Koskenkorva vodka.
- Að hafa þriðjudaginn 18. febrúar 2025, stolið einni 500 millilítra flösku af Eldurís vodka. Telst þetta varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“ Af hálfu ákærða er krafist að ákærða verði ekki gerð sérstök refsing í máli þessu. Þá er krafist þóknunar til handa skipuðum verjanda. Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök samkvæmt ákæru og fallist á bótakröfu. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, og gögnum málsins, er nægilega sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu, sbr. heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008. Ákærði hefur þó nokkurn sakaferil, en að því er hér skiptir máli, er hann sá að þann 4. febrúar 2025 hlaut ákærði dóm fyrir umferðarlagabrot. Reynslulausn vegna eldri brota var dæmd upp og refsing ákveðin fangelsi í þrjú ár og tíu mánuði. Þann 17. febrúar 2025 gekkst ákærði undir greiðslu lögreglustjórasektar vegna fíkniefnalagabrots. Þá hlaut ákærði dóm þann 5. september 2025 fyrir þjófnað. Var um hegningarauka að ræða og ákærða ekki gerð sérstök refsing. Ákærði er nú sakfelldur fyrir þjófnað í fjögur skipti. Brot ákærða í fyrstu þremur töluliðunum er framið fyrir dóminn, 4. febrúar 2025, lögreglustjórasektina 17. febrúar 2025 og dóminn 5. september 2025. Brot ákærða í tölulið fjögur er framið fyrir dóminn 5. september 2025. Verður refsing ákærða því ákveðin sem hegningarauki við fyrrgreinda dóma og sekt, í samræmi við það sem að ofan greinir, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákærða er ákveðin fangelsi í 30 daga. Þá liggur fyrir bótakrafa í málinu þar sem þess er krafist að ákærða verði gert að greiða Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins skaðabætur vegna brota sem tilgreind eru í ákæru í fjórum töluliðum auk vaxta og dráttarvaxta samkvæmt lögum nr. 38/2001. Framangreind bótakrafa er studd nægilegum gögnum. Verður hún því tekin til greina eins og nánar greinir í dómsorði. Bótakrafan var kynnt ákærða í skýrslutöku hjá lögreglu 30. september 2025 og reiknast dráttarvextir frá því mánuður er liðinn frá þeim degi. Ekki var sótt þing af hálfu bótakrefjanda heldur mætti ákæruvaldið af hans hálfu. Verður honum því ekki dæmdur málskostnaður eins og krafist er. Að kröfu ákæruvalds og með vísan til dómsniðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns, eins og hún ákveðst í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum. Berglind Harðardóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Ólafur Haukur Atlason, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærði greiði Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins 33.046 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 9.048 krónum frá 3. janúar 2025 til 4. janúar 2025 og af krónum 28.246 frá þeim degi til 18. febrúar 2025, og af krónum 33.045, frá þeim degi til 30. október 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði 133.920 krónur í sakarkostnað, þ.e. þóknun skipaðs verjanda síns, Skarphéðins Péturssonar lögmanns.