Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-2490/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Shahin Alikhil

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Hegningarauki. Játningarmál. Umferðarlagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 12. maí 2026, á hendur Shahin Alikhil, kt. […], […], 113 Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 30. ágúst 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Austurveg á Selfossi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 11. maí 2026, gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 14. júlí 2023, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 23. febrúar 2024 gekkst ákærði undir greiðslu sektar fyrir akstur sviptur ökurétti. Aftur gekkst ákærði undir greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar með sekt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 13. september 2024, meðal annars vegna aksturs undir áhrifum ávana- og fíkniefna og aksturs sviptur ökurétti. Þá var ákærða með sekt lögreglustjórans á Suðurnesjum 4. október 2024 gert að greiða sekt vegna aksturs sviptur ökurétti, en sekt þessi var hegningarauki við sátt lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 23. febrúar 2024. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 17. desember 2025, gert að sæta fangelsi í sextíu daga og sviptur ökuréttindum ævilangt, fyrir akstur sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Að öðru leyti hefur sakaferill ákærða ekki þýðingu við úrlausn máls þessa.

Brot ákærða var framið fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms frá 17. desember 2025. Verður ákærða því dæmdur hegningarauki vegna þess brots nú, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í þriðja sinn, eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.

Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sín skýlaust. Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og dómvenju þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 15 daga fangelsi.

Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Shahin Alikhil, sæti fangelsi í 15 daga.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 70. gr.71. gr.78. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.