Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1004/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgars

(Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Garðari Árnasyni

Akstur sviptur ökurétti. Fangelsi. Hegningarauki. Umferðarlagabrot. Útivist.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 16. febrúar 2026, á hendur Garðari Árnasyni, kt. […], […], Kópavogi, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 16. september 2025, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Suðurlandsbraut á vegarkafla við Grensásveg, Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. laga nr. 77/2019.

Við þingfestingu málsins í dag féll ákæruvaldið frá kröfu um sviptingu ökuréttar.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en hafði verið birt ákæra og fyrirkall. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 16. febrúar 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 2016. Það sem hefur þýðingu við úrlausn þessa máls er að með tveimur sáttum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 23. maí 2022 gekkst ákærði undir greiðslu sektar fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Þá gekkst ákærði undir greiðslu sektar með þremur sáttum Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 13. mars 2023 meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 8. september 2023 var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 16. apríl 2024 var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga en dómurinn var hegningarauki við áðurnefndan dóm frá 16. apríl sama ár. Þá var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga 15. nóvember 2024 fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 13. febrúar 2025 var ákærða gert að sæta fangelsi í 45 daga en dómurinn var hegningarauki við áðurnefndan dóm frá 15. nóvember 2024. Nú síðast var ákærða með dómi Héraðsdóms Reykjaness 10. nóvember 2025 gert að sæta fangelsi í 10 mánuði og gert að greiða fésekt meðal annars fyrir akstur sviptur ökuréttindum en dómurinn var hegningrauki að hluta við framangreind dóm frá 13. febrúar 2025.

Brot ákærða var framið fyrir uppkvaðningu dómsins frá 10. nóvember 2025. Ber því að dæma ákærða hegningarauka samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður því lagt til grundvallar að ákærði hafi nú í sjötta sinn eftir að hann varð fullra 18 ára og innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga gerst sekur um akstur sviptur ökurétti.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.

Með vísan til sakaferils ákærða þykir ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Einar Laxness aðstoðarsaksóknari.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Garðar Árnason, sæti fangelsi í 60 daga.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 71. gr.78. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.