Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-708/2026:

Héraðssaksóknari

(Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)

gegn

Vali Sigurðssyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Brot gegn valdstjórninni. Hegningarauki. Játningarmál.

Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið til tveggja ára.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 7. maí 2026, var höfðað með ákæru, útgefinni af héraðssaksóknara 29. janúar 2026, á hendur Vali Sigurðssyni, kt. […], […], „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa að kvöldi þriðjudagsins 10. september 2024, í bílskúr að […] í Reykjavík, veist að lögreglumanni A og hrint henni á bílskúrshurð með þeim afleiðingum að hún hlaut tognun á litla fingri hægri handar auk yfirborðsáverka á úlnlið og handarbak sömu handar, en lögreglumaðurinn var við skyldustörf.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.“

  2. Verjandi ákærða krefst fyrir hans hönd vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar málsvarnarþóknunar sér til handa.

    Niðurstaða varðandi sekt ákærða o.fl.

  3. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
  4. Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

    Niðurstaða varðandi refsingu ákærða og önnur atriði

  5. Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 29. janúar 2026, á ákærði nokkurn sakaferil að baki en sakaferill hans nær allt aftur til ársins 2001. Verður látið nægja að rekja hér nýjustu dóma, en með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá […] 2019 var ákærða gert að sæta fangelsi í 15 mánuði fyrir peningaþvætti og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, lyfjalögum, tollalögum og vopnalögum. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá […] 2025 var ákærða gert að sæta fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið í tvö ár, vegna brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Brot ákærða samkvæmt ákæru í þessu máli var framið fyrir uppkvaðningu þess dóms. Er sú refsing sem ákærði hlýtur í þessu máli þar af leiðandi hegningarauki við þá refsingu sem honum var dæmd í síðast nefndum dómi, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
  6. Undir meðferð málsins játaði ákærði brot sitt skýlaust og lýsti yfir iðrun vegna þess.

    Horfir það honum til málsbóta, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.

    Eins er nokkuð um liðið síðan ákærði framdi það brot sem hann er hér sakfelldur fyrir.

  7. Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
  8. Ákærði greiði með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 233. gr., laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin 318.060 krónur, að teknu tilliti til tímayfirlits lögmannsins og að meðtöldum virðisaukaskatti, og 50.859 krónur í annan sakarkostnað.
  9. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari.
  10. Jóhannes Rúnar Jóhannsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Valur Sigurðsson, sæti fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 318.060 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 50.859 krónur í annan sakarkostnað.

Jóhannes Rúnar Jóhannsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 70. gr.77. gr.78. gr.1. mgr. 106. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 233. gr.1. mgr. 235. gr.