Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1159/2025:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Hildur Sunna Pálmadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Elíasi Shamsudin,

(Leifur Runólfsson lögmaður)

Jónasi Shamsudin,

(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

[...], [...], [...], [...], Örvari Reyr Söndrusyni,

(Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)

[...], [...], [...], [...], [...], Sergey Gaysin og

(Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)

[...], Róberti Óskari Friðrikssyni

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Ákæra. Hegningarauki. Skilorð. Stórfellt fíkniefnalagabrot. Þjófnaður. Vopnalagabrot.

Ákærðu sem játuðu brot sín dæmdir til fangelsisrefsingar fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og auðgunarbrot. Var um að ræða hegningarauka við fyrra dóma.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var 20. ágúst sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 25. febrúar 2025 „á hendur Elíasi Shamsudin, kt. […], […], Jónasi Shamsudin, kt. […], […], […], […], […], […], Örvari [Reyr] Söndrusyni, kt. […], […], […], […], […], […], […], Sergey Gaysin, kt. […], […], […], Róberti Óskari Friðrikssyni, kt. […], […], og […] fyrir eftirtalin brot:

I.

1. […] 2. […] 3. […] 4. […] 5. […]

II.

1. gegn ákærðu Örvari [Reyr] Söndrusyni, […] og […] fyrir þjófnað […] en […] skipulögðu þjófnað á átta stólum úr verslun A, […], Reykjavík, samtals að verðmæti 650.000 kr. en ákærði Örvar Reyr stal stólunum aðfaranótt 4. nóvember 2020 úr húsnæðinu, að […], Reykjavík.

Telst brot þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

2. […]

III.

1. gegn ákærðu Jónasi Shamsudin […] fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots, með því að hafa staðið […] að innflutningi á 347,16 g af kókaíni í sölu- og dreifingarskyni, sem flytja átti til landsins í desember 2020 með pakka frá B […], en fíkniefnin voru falin í rafhlöðuhólfi svifbrettis (e. hoverboard), en efnin voru haldlögð af belgískum yfirvöldum þann 10. desember 2020 og var gerviefnum komið fyrir í staðinn. Þann 16. desember 2020 var pakkinn frá B afhentur […] að heimili hennar […].

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum, sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV.

Gegn ákærðu Örvari [Reyr] Söndrusyni […] fyrir þjófnað […] en ákærðu Örvar […] skipulögðu eftirfarandi þjófnaði:

1. ákærði Örvar með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 14. desember 2020 stolið kerru af gerðinni Ifor Williams við […] í Reykjavík með skráningarnúmerið […] og gröfu af gerðinni Yanmar ViO 3.3 með skráningarnúmerið […], sem stóð við […] í Reykjavík, samtals að andvirði 9.000.000 kr., en ákærði Örvar flutti gröfuna á kerrunni sömu nótt að […] í Kópavogi, þar sem […] var að byggja fasteign.

2. ákærði Örvar með því að hafa aðfaranótt 15. desember 2020 stolið kerru að andvirði 855.782 kr. og sama dag stolið beltavél af gerðinni Yanmar með skráningarnúmerið […] að andvirði 5.000.000 kr., við […], Selfossi og flutt beltavélina á kerrunni að […] að […] í Grindavík, þar sem beltavélin og kerran fundust.

Teljast [brot] þessi varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

V.

1. gegn ákærðu […], Elíasi Shamsudin og Jónasi Shamsudin fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 12. mars 2021 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 487,80 g af amfetamíni. Ákærði Elías bað […] þann dag um að taka efnin úr frysti á heimili þeirra að […] í Grindavík sem hún gerði og ók með til Elíasar þar sem hún afhenti honum þau við […] í Reykjavík. Ákærði Elías setti fíkniefnin í bifreiðina […]. Síðar um daginn afhenti hann Jónasi fíkniefnin sem ók með þau til Akureyrar á bifreiðinni […], þar sem hann var handtekinn, en fíkniefnin fundust við leit lögreglu í bifreiðinni. Teljast brot þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.

2. gegn ákærða Jónasi fyrir fíkniefnalagabrot og hylmingu með því að hafa þann 12. mars 2021 haft í vörslum sínum 30 stk. af Rítalín Uno sem lögregla fann við leit í bifreiðinni […] og fyrir hylmingu en bifreiðinni […] hafði verið stolið þann 26. febrúar 2020 af óþekktum aðila.

Telst brot þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. og 4. mgr., 3. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974, og 2., 3. og 6. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.

3. gegn ákærða Elíasi Shamsudin fyrir fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot með því að hafa þann 12. mars 2021 haft í vörslum sínum í bifreiðinni […] 506,9 g af amfetamíni í sölu- og dreifingarskyni og skammbyssu af gerðinni Browning (munur nr. […]) en lögregla stöðvaði ákærða Elías í akstri sama dag og lagði hald á fíkniefnin og skotvopnið eftir leit í bifreiðinni […].

Teljast brot þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, sbr. lög nr. 60/1980, lög nr. 13/1985, lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001, og við 2., 3. og 6. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/[2001] um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 808/2018 og 1. mgr. 12. gr., sbr. nú 1. mgr. 13. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

VI.

1. […]

VII.

1. gegn […] Róberti Óskari Friðrikssyni fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa fimmtudaginn 28. maí 2020, í íbúð […] að […], Reykjanesbæ, haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni samtals 112 kannabisplöntur og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum.

VIII.

1. gegn ákærðu […] Sergey Gaysin og […], í […] fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots […] en ákærðu stóðu […] að innflutningi á 49 g af kókaíni en fíkniefnin voru falin í umslagi sem kom hingað til lands með póstsendingu […] frá Mexíkó þann 27. júlí 2020. Lögreglan lagði hald á fíkniefnin í tollsal [Flugstöðvar] Leifs Eiríkssonar.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með síðari breytingum, sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IX.

[…]

X.

Gegn ákærðu Örvari [Reyr] Söndrusyni […] fyrir þjófnað […] með því að hafa:

1. aðfaranótt miðvikudagsins 9. september 2020 stolið stæðu af doka-plötum af vinnusvæði C ehf., við […], Reykjavík, að verðmæti 250.000 kr.

2. á tímabilinu 24.–25. september 2020 stolið 70 doka-plötum að áætluðu verðmæti 500.000 kr. af vinnusvæði D ehf. við […], Garðabæ.

3. á tímabilinu 3.–5. október 2020 stolið 20 mótaborðum af tegundinni Kaufman af vinnusvæði E ehf. við […], Garðabæ.

4. á tímabilinu 2.–5. október 2020 stolið 100 doka-plötum að áætluðu verðmæti kr.

300.000 af vinnusvæði F ehf. við […], Garðabæ.

5. […] Teljast brot þessi varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

6. […] 7. […] 8. […] 9. […] 10. […] 11. […] 12. […] Þess er krafist að ákærðu verði dæmd[ir] til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002, er krafist upptöku á ofangreindum fíkniefnum sem lögregla lagði hald á, samtals 958,71 g af kókaíni, 994,7 g af amfetamíni, 30 stk. af Rítalín Uno, 112 kannabisplöntum, 2,44 g af tóbaksblönduðu kannabisefni (007-2020-[…]), 30 ml af kannabisblönduðum vökva (007-2020-[…]), tveimur plastglösum með efnisle[i]fum (munur nr. […]), töflu í ziplock-poka (munur nr. […]) og 2 ambúlum af Ovigil-sterum (munur nr. […]).

Þá er krafist upptöku á haldlögðu reiðufé, 5.000.000 kr. (munur nr. […]), með vísan til 69. gr. og 69. gr. a, b og d almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a er krafist upptöku á haldlögðu svifbretti (e. hoverboard) (munur nr. […]), Alcatel-farsíma (munur nr. […]), símkorti (munur nr. […]), beiðnabók (munur nr. […]), tjaldi (munur nr. […]), Browning-skammbyssu (munur nr. […]), 8 stk. af 22 cal. byssukúlum (munur nr. […]), rafmagnskvörn (munur nr. […]), tölvuvog (munur nr. […]), skothylki (munur nr. […]), 1 stk. riffilskoti (munur nr. […]), heimagerðri raflostbyssu (munur nr. […]), 4 stk. af lömpum af gerðinni Ice Jungle (munir nr. […]), 4 stk. af lömpum af óþekktri tegund (munir nr. […]), loftsíu af gerðinni Systemair (munur nr. […]), gróðurhúsalampa af gerðinni Ice Jungle (munur nr. […]), loftsíu af óþekktri tegund (munur nr. […]), 2 stk. af tjöldum til kannabisræktunar af óþekktri tegund (munir nr. […] og […]) og með vísan til 69. gr. og 69. gr. b er krafist upptöku á bifreiðinni […] (munur nr. […]) og kveikjuláslykli (munur nr. […]).“

Ákæran var upphaflega á hendur 16 aðilum. Hún var í alls 29 liðum sem skiptust niður á 11 kafla. Í þinghaldi í málinu 28. apríl sl. féll sækjandi frá sakargiftum á hendur öðrum hinna ákærðu í IX. kafla ákæru og þar með ákærunni á hendur umræddum aðila. Með tölvupósti, dags. 7. apríl sl., upplýsti sækjandi að hann félli frá öllum ákæruliðum I. kafla ákæru og þar með ákæru á hendur fjórum hinna ákærðu til viðbótar. Þá upplýsti sækjandi með tölvupósti, dags. 27. maí sl., að fallið væri frá 12. ákærulið X. kafla ákærunnar og þar með ákærunni á hendur þeim sem þar var ákærður. Í þinghaldi 20. ágúst sl. afturkallaði sækjandi síðan lið 2 í II. kafla ákæru, hlut ákærðu Jónasar og Elíasar í kafla II, hlut eins ákærðu í kafla III, og þar með ákæruna á hendur viðkomandi, hlut ákærða Elíasar í kafla IV, hlut eins ákærða í kafla V, og þar með ákæruna á hendur viðkomandi, hlut tveggja ákærðu í kafla VI, og þar með ákæruna á hendur þeim, hlut ákærðu Jónasar og Elíasar í kafla VII, hlut eins ákærða í kafla VIII, og þar með ákæruna á hendur viðkomandi, og hlut ákærðu Elíasar og Jónasar í kafla X og lið 5 í kafla X í heild. Þá féll sækjandi frá hlut ákærða Jónasar í ákærukafla VI og hlut ákærða Elíasar í ákæruköflum VI, VIII og IX. Loks féll ákæruvaldið frá kröfu um upptöku á bifreiðinni […] og kveikjuláslykli.

Með framangreindu afturkallaði ákæruvaldið að fullu 16 af upphaflegum 29 liðum ákærunnar. Af þeim 13 ákæruliðum sem eftir stóðu afturkallaði ákæruvaldið síðan 11 að hluta. Afturkallaði ákæruvaldið með því málið á hendur 11 af þeim 16 ákærðu sem upphaflega voru ákærð í málinu. Eftir stendur ákæran á hendur ákærðu Elíasi og Jónasi, með þeim breytingum sem að framan greinir, og ákærðu Örvari Rey, Sergey og Róberti. Ákærði Róbert játaði sök samkvæmt VII. kafla ákæru í þinghaldi í málinu 9. apríl sl. Í þinghaldi 20. ágúst sl. játaði ákærði Örvar Reyr sök samkvæmt lið 1 í kafla II, liðum 1 og 2 í kafla IV og liðum 1–4 í kafla X. Í sama þinghaldi játaði ákærði Sergey sök samkvæmt ákæru í kafla VIII. Þá játaði ákærði Elías sök samkvæmt liðum 1 og 3 í V. kafla ákæru og ákærði Jónas sök samkvæmt ákærukafla III og liðum 1 og 2 í V. kafla ákæru. Hann mótmælti hins vegar upptökukröfu á haldlögðu reiðufé að fjárhæð 5.000.000 króna. Ákærðu hafa skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu þeirra og öðrum gögnum málsins að ákærðu eru sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök og eru brot þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjendum ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði, ákvörðun viðurlaga og kröfur um upptöku.

Ákvörðun refsingar:

Ákærði Elías

Ákærði Elías er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 24. febrúar 2025, hefur hann fimm sinnum verið dæmdur til refsingar með dómum héraðsdóms. Ákærði var fyrst með dómi 1. desember 2015 dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár vegna líkamsárásar sem talin var varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með dómi 5. febrúar 2016 var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi en þar af voru fjórir mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár vegna brots gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Ákærði var með dómi 17. október 2016 dæmdur í átta mánaða fangelsi en þar af voru sjö mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár vegna líkamsárása sem taldar voru varða við 1. mgr. 218. gr. og 1. mgr. 217. gr. laga nr. 19/1940. Þá var ákærði með dómi 19. maí 2017 dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, sbr. 173. gr. a, sbr. 20. gr., laga nr. 19/1940. Voru tveir síðastgreindu dómarnir hegningarauki vegna eldri dóms. Loks var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 12. febrúar 2025 dæmdur í fangelsi í tvö ár og sex mánuði fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot.

Refsingu ákærða nú ber að tiltaka sem hegningarauka við þá refsingu sem hann hlaut samkvæmt fyrrnefndum dómi 12. febrúar sl., sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, er samsvari þeirri þyngingu hegningarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu. Er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegur dráttur varð á ákærumeðferð málsins. Þá játaði ákærði brot sitt greiðlega. Á hinn bóginn er litið til þess að ákærði flutti til landsins verulegt magn fíkniefna sem ætluð voru til sölu og dreifingar. Ákveðst refsingin að þessu athuguðu fangelsi í 12 mánuði. Ekki þykir fært að binda hana skilorði þegar af þeirri ástæðu að um er að ræða hegningarauka við óskilorðsbundinn fangelsisdóm sem einnig var vegna stórfelldra fíkniefnalagabrota ákærða.

Ákærði Jónas

Ákærði Jónas er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 24. febrúar 2025, var hann með dómi héraðsdóms 5. febrúar 2016 dæmdur í átta mánaða fangelsi en þar af voru fimm mánuðir skilorðsbundnir í tvö ár vegna brots gegn lögum nr. 65/1974. Þá var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 12. febrúar 2025 dæmdur í fangelsi í tvö ár og sex mánuði fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Einnig hefur ákærði tvisvar sinnum gengist undir sektargerð lögreglustjóra vegna umferðarlagabrota.

Refsingu ákærða nú ber að tiltaka sem hegningarauka við þá refsingu sem hann hlaut samkvæmt fyrrnefndum dómi 12. febrúar sl., sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, er samsvari þeirri þyngingu hegningarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu. Er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegur dráttur varð á ákærumeðferð málsins. Þá játaði ákærði brot sitt greiðlega. Á hinn bóginn er litið til þess að ákærði flutti til landsins verulegt magn fíkniefna sem ætluð voru til sölu og dreifingar. Ákveðst refsingin að þessu athuguðu fangelsi í 12 mánuði. Ekki þykir fært að binda hana skilorði þegar af þeirri ástæðu að um er að ræða hegningarauka við óskilorðsbundinn fangelsisdóm sem einnig var vegna stórfelldra fíkniefnalagabrota ákærða.

Ákærði Örvar Reyr

Ákærði Örvar Reyr er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 24. febrúar 2025, á hann að baki nokkur sakaferil og hefur hlotið 14 dóma fyrir auðgunarbrot og brot gegn umferðarlögum og tvívegis gengist undir sektargerðir hjá lögreglu. Hann var 1. febrúar 2021 dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir gripdeild. Þann 27. maí 2021 var ákærði sakfelldur fyrir fjársvik, þjófnað og umferðarlagabrot og dæmdur í fangelsi í þrjá mánuði auk sektar fyrir umferðarlagabrot. Þann 19. október 2022 var ákærði sakfelldur fyrir tvö umferðarlagabrot og honum dæmdur hegningarauki, en ekki gerð sérstök refsing. Þá var ákærði, þann 31. október 2022, dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir þjófnað, fjársvik og peningaþvætti. Var þar um hegningarauka að ræða. Þá var hann 14. apríl 2023 dæmdur í 30 daga fangelsi og til greiðslu sektar fyrir þjófnað og umferðarlagabrot en þar var einnig um hegningarauka að ræða. Loks var hann með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra, þann 23. febrúar 2024, dæmdur til að greiða 250.000 króna sekt vegna umferðarlagabrots.

Refsingu ákærða nú ber að tiltaka sem hegningarauka við þá refsingu sem hann hlaut samkvæmt fyrrnefndum dómum, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, er samsvari þeirri þyngingu hegningarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin með þeim. Er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegur dráttur varð á ákærumeðferð málsins. Þá játaði ákærði brot sitt greiðlega. Ákveðst refsingin að þessu athuguðu fangelsi í 30 daga, en ekki þykir fært að binda hana skilorði þegar af þeirri ástæðu að um er að ræða hegningarauka við fyrrnefndan óskilorðsbundinn fangelsisdóm 14. apríl 2023, sem einnig var m.a. vegna auðgunarbrota ákærða.

Ákærði Sergey

Ákærði Sergey er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 24. febrúar 2025, nær sakaferill hans hér á landi allt aftur til ársins 2015. Gekkst hann undir þrjár sektargerðir lögreglustjóra. Þá var hann, þann 31. janúar 2017, dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og umferðarlagabrot. Þann 3. október 2019 var hann dæmdur í 30 daga fangelsi vegna umferðarlagabrots. Með dómi Landsréttar frá 13. desember 2019 var hann dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot og hótanir. Þá var hann með dómi Héraðsdóms Reykjaness, þann 15. janúar 2015, dæmdur í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir fíkniefnalagabrot. Loks var hann með dómi Héraðsdóms Reykjaness, þann 27. maí 2024, dæmdur í fangelsi í tvo mánuði fyrir sams konar brot og hér er til meðferðar.

Refsingu ákærða nú ber að tiltaka sem hegningarauka við þá refsingu sem hann hlaut samkvæmt fyrrnefndum dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 27. maí 2024, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, er samsvari þeirri þyngingu hegningarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin með þeim. Er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegur dráttur varð á ákærumeðferð málsins. Þá játaði ákærði brot sitt greiðlega. Í ljósi alls framangreinds og að virtum atvikum máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 dag. Ekki þykir fært að binda hana skilorði þegar af þeirri ástæðu að um er að ræða hegningarauka við fyrrnefndan óskilorðsbundinn fangelsisdóm frá síðasta ári sem var vegna sams konar brots ákærða og hér er dæmt fyrir.

Ákærði Róbert

Ákærði Róbert er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dags. 24. febrúar 2025, var hann með dómi Héraðsdóms Reykjaness, þann 20. maí 2015, dæmdur til 30 daga skilorðsbundins fangelsis fyrir fíkniefnalagabrot. Þá var hann dæmdur til 200.000 króna sektar með dómi Héraðsdóms Reykjaness 4. desember 2023. Hefur hann einnig fjórum sinnum gengist undir sektargerðir lögreglu vegna umferðarlagabrota.

Við ákvörðun refsingar er litið til þess að verulegur dráttur varð á ákærumeðferð málsins. Þá játaði ákærði brot sitt greiðlega. Í ljósi framangreinds og að virtum atvikum máls þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga sem bundin er skilorði eins og nánar greinir í dómsorði.

Upptökukröfur:

Ákærði Jónas mótmælir upptöku á 5.000.000 króna í reiðufé. Fannst umrætt reiðufé við húsleit sem fram fór 13. mars 2021 í húsnæði einkahlutafélagsins […] að […], Reykjavík. Var reiðuféð allt í 10.000 króna seðlum og fannst undir pullu í leðursófa í umræddu húsnæði. Er ákærði Jónas skráður eigandi félagsins.

Samkvæmt 1. mgr. 69. gr. b í almennum hegningarlögum má gera upptæk verðmæti, að hluta eða í heild, sem tilheyra einstaklingi sem gerst hefur sekur um brot þegar brotið er til þess fallið að hafa í för með sér verulegan ávinning og það getur varðað að minnsta kosti sex ára fangelsi. Bæði þessi skilyrði eru uppfyllt í þessu máli. Þá má samkvæmt 3. mgr. sömu greinar, með sömu skilyrðum, gera upptæk verðmæti, að hluta eða í heild, sem runnið hafa til lögaðila sem viðkomandi einstaklingur, einn eða með sínum nánustu, hefur ráðandi stöðu í. Segir síðan í 4. mgr. umræddrar greinar að ef viðkomandi sýni fram á að verðmætanna hafi verið aflað á lögmætan hátt skuli þau ekki gerð upptæk. Það hefur ákærði ekki gert. Þá féllst ákærði á að málið yrði tekið til dóms sem játningarmál og krafðist þess ekki að fram færi aðalmeðferð í því, sbr. 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Með vísan til alls framangreinds fellst dómurinn á kröfu ákæruvaldsins um að umræddar 5.000.000 króna í reiðufé skuli gerðar upptækar eins og krafist er í ákæru. Þá er að öðru leyti fallist á upptökukröfu eins og hún er sett fram í ákæru.

Málskostnaður

Mál þetta á sér langa sögu. Voru fyrst teknar skýrslur af ákærðu hjá lögreglu síðari hluta ársins 2020 og fyrri hluta ársins 2021. Tók rannsókn málsins um tvö ár eftir það. Þá var málið til meðferðar hjá ákæruvaldi í tvö ár áður en ákæra var gefin út í því. Var ákæra þá gefin út á hendur 16 aðilum og var ákæran í 29 liðum í 11 köflum. Féll ákæruvaldið sem fyrr sagði frá 16 ákæruliðum undir rekstri málsins, og hluta af 11 af þeim 13 ákæruliðum sem eftir stóðu, og þar með ákærunni á hendur 11 hinna ákærðu. Voru þá fimm ákærðir eftir í málinu og játuðu þeir allir sök. Hefur þessi saga málsins áhrif á ákvörðun sakarkostnaðar í því eins og rakið verður hér að neðan.

Ákærði Elías

Upphaflega beindust 22 liðir ákæru gegn ákærða Elíasi. Undir meðferð málsins féll ákæruvaldið frá 20 þeirra. Eftir standa tveir ákæruliðir og hefur ákærði játað sök. Verjandi ákærða í málinu hefur verið verjandi hans í því frá því skýrsla var tekin af ákærða 13. mars 2021. Hefur reynt á ýmis réttarfarsatriði undir rannsókn málsins. Þá var málið afar umfangsmikið í upphafi, eins og áður var rakið. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða dómsins að hæfileg málsvarnarþóknun til handa verjanda ákærða Elíasar, Leifs Runólfssonar, lögmanns, sé 7.000.000 króna, að meðtöldum virðisaukaskatti. Er ákærða gert að greiða 1/4 hluta hennar en 3/4 hlutar greiðist úr ríkissjóði.

Ákærði Jónas

Upphaflega beindust 19 ákæruliðir gegn ákærða Jónasi. Undir meðferð málsins féll ákæruvaldið frá 16 þeirra. Eftir standa þrír ákæruliðir og hefur ákærði játað sök. Verjandi ákærða Jónasar tók við málinu eftir að ákæra hafði verið gefin út. Það var afar umfangsmikið í upphafi, eins og áður var rakið. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða dómsins að hæfileg málsvarnarþóknun til handa verjanda ákærða Jónasar, Sveins Andra Sveinssonar, lögmanns, sé 1.800.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti. Er ákærða gert að greiða 1/4 hluta hennar en 3/4 hlutar greiðist úr ríkissjóði.

Ákærði Örvar Reyr

Upphaflega beindust níu ákæruliðir gegn ákærða Örvari Reyr en ákæruvaldið féll frá tveimur þeirra. Hefur ákærði játað sök samkvæmt þeim sem eftir standa. Verjandi ákærða í málinu hefur verið verjandi hans í því frá því skýrsla var tekin af ákærða 23. október 2020. Var málið afar umfangsmikið í upphafi, eins og áður var rakið. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða dómsins að hæfileg málsvarnarþóknun til handa verjanda ákærða Örvars Reyrs, Inga Freys Ágústssonar, lögmanns, sé 2.000.000 króna, að meðtöldum virðisaukaskatti. Er ákærða gert að greiða 4/5 hluta hennar en 1/5 hluti greiðist úr ríkissjóði.

Ákærði Sergey

Ákærði játaði sök samkvæmt þeim ákærulið sem að honum beindist. Verjandi ákærða í málinu hefur verið verjandi hans í því frá því skýrsla var tekin af ákærða 23. mars 2021. Var málið afar umfangsmikið í upphafi, eins og áður var rakið. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða dómsins að ákærði Sergey greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Njáls Guðmundssonar, lögmanns, sem sé hæfilega ákveðin 1.100.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ákærði Róbert

Ákærði játaði sök samkvæmt þeim ákærulið sem að honum beindist. Verjandi ákærða tók við málinu eftir að ákæra hafði verið gefin út. Var málið afar umfangsmikið í upphafi, eins og áður var rakið. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða dómsins að ákærði Róbert greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar, lögmanns, sem sé hæfilega ákveðin 600.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti.

Annar sakarkostnaður

Ákærðu Elías og Jónas greiði sameiginlega 282.486 krónur í annan sakarkostnað og ákærði Jónas að auki 226.898 krónur. Þá greiði ákærði Sergey 83.222 krónur í annan sakarkostnað.

Björn Þorvaldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Elías Shamsudin, sæti fangelsi í 12 mánuði.

Ákærði, Jónas Shamsudin, sæti fangelsi í 12 mánuði.

Ákærði, Örvar Reyr Söndruson, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði, Sergey Gaysin, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði, Róbert Óskar Friðriksson, sæti fangelsi í 30 daga, en fullnustu refsingarinnar skal frestað og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Upptæk eru gerð 958,71 g af kókaíni, 994,7 g af amfetamíni, 30 stk. af Rítalín Uno, 112 kannabisplöntur, 2,44 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 30 ml af kannabisblönduðum vökva, tvö plastglös með efnisleifum, tafla í ziplock-poka, tvær ambúlur af Ovigil-sterum, 5.000.000 króna í reiðufé, svifbretti, Alcatel-farsími, símkort, beiðnabók, tjald, Browning-skammbyssa, átta stk. af 22 cal. byssukúlum, rafmagnskvörn, tölvuvog, skothylki, riffilskot, heimagerð raflostbyssa, fjögur stk. af lömpum af gerðinni Ice Jungle, fjórir lampar af óþekktri tegund, loftsía af gerðinni Systemair, gróðurhúsalampi af gerðinni Ice Jungle, loftsía af óþekktri tegund og tvö stk. af tjöldum til kannabisræktunar af óþekktri tegund.

Ákærði, Elías Shamsudin, greiði 1/4 hluta 7.000.000 króna málsvarnarþóknunar skipaðs verjanda síns, Leifs Runólfssonar, lögmanns, en 3/4 hlutar hennar greiðist úr ríkissjóði.

Ákærði, Jónas Shamsudin, greiði 1/4 hluta 1.800.000 króna málsvarnarþóknunar skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar, lögmanns, en 3/4 hlutar hennar greiðist úr ríkissjóði.

Ákærði, Örvar Reyr Söndruson, greiði 4/5 hluta 2.000.000 króna málsvarnarþóknunar skipaðs verjanda síns, Inga Freys Ágústssonar, lögmanns, en 1/5 hluti hennar greiðist úr ríkissjóði.

Ákærði, Sergey Gaysin, greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Njáls Guðmundssonar, lögmanns, 1.100.000 krónur.

Ákærði, Róbert Óskar Friðriksson, greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar, lögmanns, 600.000 krónur.

Ákærðu Elías og Jónas greiði sameiginlega 282.486 krónur í annan sakarkostnað og ákærði Jónas að auki 226.898 krónur. Þá greiði ákærði Sergey 83.222 krónur í annan sakarkostnað.

Björn Þorvaldsson

Heimildaskrá